Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Qupperneq 28
28
HeÍQarbtaö DV LAUGARDAGUR lö. JANÚAR 2003
Snillingurinn frá Sardiníu
í síðustu viku kusu stuðningsmenn Chelsea ítalann Gi-
anfranco Zola besta leikmann félagsins fyrr og síðar í
könnun á heimasiðu félagsins. Zola vann kjörið með mikl-
um yfirburðum en hann hlaut 60% atkvæða og var langt á
undan Peter Osgood sem varð í öðru sæti í kjörinu en
hörkutólið Dennis Wise varð í því þriöja.
Meðal eftirminnilegra leikmanna sem komust inn á
topp tíu listann má nefna menn eins og Jimmy Greaves,
Ruud Gullit, Gianluca Vialli og Peter Bonetti þannig að
það voru engir aukvisar sem Zola skaut aftur fyrir sig í
kjörinu. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki á meðal 10
efstu enda ekki leikið lengi með félaginu.
Velgengni með Chelsea
Eins og áöur segir lá leið hans i raðir Chelsea í nóvem-
ber 1996 og eftir hið frábæra fyrsta ár hans með Chelsea lá
leiðin enn frekar upp á við því leiktíðina 1997-98 sigraði
Chelsea í Evrópukeppni bikarhafa og skoraði Zola sigur-
markið i leiknum og tryggði sér strax þá sess í sögu félags-
ins. Chelsea vann einnig enska deildabikarinn þá leiktíð
og fylgdi því eftir í byrjun næstu leiktíðar með sigri i hin-
um árlega leik milli sigurvegara Meistaradeildarinnar og
Evrópukeppni bikarhafa um „Ofurbikarinn".
Næstu tvö árin voru þau erfiðustu á ferli Zola því hann
lék ekki eins og hann átti að sér og var í raun og veru að
glíma við mótlæti í fyrsta skipti á ferlinum. Talað var um
að selja hann aftur til Ítalíu og var hátt talað um að hann
væri orðinn of gamall.
Zola lét ekki mótlætið buga sig heldur lagði hann sig
enn frekar fram til þess að sýna og sanna að hann ætti nóg
eftir.
Það hefur hann gert svo um munar á þessari leiktíð orð-
inn 36 ára gamall. Hann hefur hreinlega farið á kostum og
er að sýna ekki síðri takta en hann gerði á fyrstu leiktíð
sinni með félaginu fyrir sex árum og hefur sannað svo
ekki verður um villst að aldur er afstæður í knattspyrnu.
-HBG
Bestur fyrsta árið með Chelsea
Zola var keyptur til Chelsea frá ítalska félaginu Parma
í nóvember 1996 fyrir 4.5 milijónir punda og hann lék sinn
fyrsta leik fyrir félagið 16. nóvember sama ár, þá 30 ára að
aldri, og þeir voru örugglega ekki margir þá sem reiknuöu
með því að hann yrði lykilmaður í liðinu sex árum síðar.
Hann fór á kostum á sínu fyrsta ári með félaginu og
leikni hans og leikgleöi vakti aðdáun, sama hvar hann
spilaði. Sérstaka athygli vöktu þó aukaspyrnuhæfileikar
hans og var engu líkara en hann skoraði úr þeim að vild
þetta ár. Fór nú svo að lokum þetta tímabil að Chelsea
vann enska bikarinn og Zola var síðan valinn leikmaður
ársins á Englandi fyrir frammistöðu sína.
„Allir knattspyrnumenn vilja vinna slíka viðurkenn-
ingu. Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig og mér finnst
ég vera mjög lánsamur. Það er erfitt að útskýra það með
orðum hvernig mér líöur. Það er ekki auðvelt að vera val-
inn besti knattspyrnumaður ensku deildarinnar þegar
maður er að spila í hópi eins frábærra knattspyrnumanna
og raun ber vitni,“ sagði hinn hógværi Zola er hann tók
við verðlaunum sínum.
Frábær byrjun hjá þessum litla ítala sem er ekki nema
168 sentímetrar á hæð en þetta var þó aðeins forsmekkur-
inn af því sem koma skyldi því Zola var hvergi nærri
hættur að láta að sér kveöa í bláu treyjunni.
Lét fljótt að sér kveða
Zola byrjaði sinn atvinnumannaferil með ítalska félag-
inu Nuorese árið 1984, þá 18 ára gamall, en þaö ágæta fé-
lag lék þá í ítölsku 3. deildinni. Hann fékk fjórum sinnum
tækifæri með félaginu á sínu fyrsta ári en tókst ekki að
skora en hann átti eftir að bæta úr því ári seinna.
Þá var hann orðinn fastamaður í liðinu og lék hann 27
leiki þá leiktíð og tókst honum að skora 10 mörk i þessum
27 leikjum og fyrir vikið vakti hann mikla athygli á sér
um alla Ítalíu.
Úr varð að Torres keypti hann til sín en það félag haföi
mikla drauma og setti stefnuna á að komast í Serie A og
þeir vildu að Zola yrði maðurinn sem leiddi þá þangað. Sú
áætlun gekk vel fyrsta árið þar sem Torres vann ítölsku 3.
deildina það ár og skoraði Zola 8 mörk í 30 leikjum og
lagði þar að auki upp aragrúa marka fyrir félaga sína.
Næsta leiktíð með Torres gekk ekki eins vel og skoraði
Zola aðeins 2 mörk í þeim 24 leikjum sem hann spilaði og
ekki tókst Torres ætlunarverk sitt að komast upp úr 2.
Þeir Zola og Eiður Smári liafa fagnað mörgtim mörkurn satnan nteð Chelsea og hefur Eiður oft talað um að
liann ltafi lært mikið af ítalantini. Reuter
deildinni í Serie A.
Þriðja árið með Torres blómstraði Zola algjörlega og var
greinilegt að hann hafði tekið út mikinn knattspyrnuleg-
an þroska árið áður í mótlætinu. Hann skoraði 11 mörk í
34 leikjum og mörg þeirra marka voru stórglæsileg beint
úr aukaspyrnum.
Þessi frammistaða Zola vakti svo mikla athygli að hann
var keyptur skömmu síðar til þess að taka við hlutverki
besta knattspyrnumanns heims - hlutverk sem ekki marg-
ir knattspymumenn hefðu þorað að taka að sér og hvað þá
ráðið við.
Arftald Maradona
Það var nefnilega ítalski risinn Napoli, sem þá var besta
knattspyrnufélag Ítalíu, sem keypti Zola til sín og var hon-
um ætlað að fylla það skarð sem Diego Maradona hafði
skilið eftir sig hjá félaginu en Maradona hafði gert ótrú-
lega hluti með liðinu og meðal annars leitt það til sigurs í
deildinni og það var ekki öfundsvert hlutverk að reyna að
fylla það skarð sem hann skyldi eftir sig hjá félaginu.
Zola sannaði þá að hann var þyngdar sinnar virði i gulli
því hann tók áskoruninni opnum örmum og lék eins og
engill á sinni fyrstu leiktíð með Napoli. Skoraði reyndar
aðeins 2 mörk í 18 leikjum en lagði upp fjölmörg mörk og
var maðurinn á bak við sigur Napoli í ítölsku deildinni
leiktíðina 1989-90. Það þótti ótrúlegt afrek sem seint
gleymist í Napoliborg.
Ótrúleg frammistíiða með Parma
Zola lék næstu þrjú árin með Napoli og vann með því
Evrópukeppni félagsliða og ítölsku bikarkeppnina en ekki
tókst honum að vinna ítölsku deildina aftur með liðinu.
Árið 1991 lék hann einnig sinn fyrsta landsleik með Italiu
og lék hann þá við hlið Gianluca Vialli í framlínu lands-
liðsins en þeir áttu eftir að endurnýja kynni sín siðar hjá
Chelsea.
Sumarið 1993 keypti Parma hann síðan frá Napoli fyrir
1.4 milljónir punda og það var góð ákvörðun hjá Zola því
ný áskorun var nákvæmlega það sem hann þurfti á að
halda á þessum tíma og þeir eru margir sem segja að hann
hafl átt sin bestu knattspyrnuár í treyju þess félags.
Zola var i rúm þrjú ár með Parma og lék á þeim tíma
eina 103 leiki fyrir félagið og skoraði i þeim leikjum ein 49
mörk sem er nálægt því að vera mark í öðrum hverjum
leik. Hann lék frábærlega með liðinu og á þessum tíma
hafði hann fullkomnað aukaspyrnuhæfileika sína og skor-
aði hann hvert glæsimarkið á fætur öðru með Parma og er
hann var seldur til Chelsea hafði hann eignað sér metið yf-
ir ílest aukaspymumörk í ítölsku deildinni en það met var
reyndar slegið árið 2000 af Sinisa Mihaljovic, leikmanni
Lazio.
Ásamt þvi að leika vel með Parma leiddi hann liðið til
sigurs í Evrópukeppni félagsliða leiktíðina 1994-95 en ekki
tókst honum að sigra í ítölsku deUdinni með félaginu og
hæst náði Parma í þriðja sæti deildarinnar með Zola inn-
anborðs og var það sama ár og þeir unnu Evrópukeppni fé-
lagsliða.
Zola hefur farið á kostum með Cltelsea í vetur og hér sést liann fagna einu iuarka sinna með Spánverjanum
Enrique de Lucas. Reuter