Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Page 32
32
H&lgctrblað X>"V LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
Steinn Armcmn
Maqnússon,
leikari,
skemmtikraftur
og smiður, leik-
ur eitt aðalhlut-
verkið íKvetch,
grátbroslequ
leikriti um ang-
ist og kvíða nú-
tímamannsins.
Steinn Armann
talar við DV um
kvíðann, svit-
ann og mátt
orðsporsins.
í klóm kvíðans
Steiiin Ármann Magnússon leikur
aöallilutverkið í Kveteh, svörtum
gamanleik um kvíða og óhamingju
sem vakið hefur inikla athygli.
Steinn svitnar svo á sviðinu að
hann sér á köflum ekki
áhorfendur.
DV-mynd Ilari
Orðið kvetch er komið úr jiddísku og mun þýða
kvíði eða angist eða einhvers konar sambland af
þessu tvennu. Samnefnt leikrit eftir Steven Berkoff,
sem leikhópurinn Á senunni setti upp í haust í
Vesturporti á Vesturgötu, hefur vakið mikla og
verðskuldaða athygli. Öflugasta auglýsingastofa ís-
lands, almannarómur, hefur náð þeim árangri að í
síðustu viku var sýningin flutt úr þrengslunum í
Vesturporti, þar sem 70 áhorfendur rúmast, og
færð upp á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu þar
sem 200 manns geta hlegið saman að sálarangist
amerískra gyðinga. Það gerðu þeir svikalaust því
almannarómurinn segir að sýningin hafi lengst um
20-30 mínútur vegna stöðugra hlátraskalla áhorf-
enda. Slíkar viðtökur æsa leikarana upp og þeir
fara að leggja sig enn meira fram. Það kallar síðan
fram enn meiri viðbrögð áhorfenda og þarna mynd-
ast yndislegur vítahringur sem frábært er að vera
hluti af.
Samt er eitthvert grátt gaman við þetta allt sam-
an því fólkið sem við erum að hlæja að þjáist. Það
engist sundur og saman i efaköstum, kvíðaköstum,
reiðiköstum og lostaköstum en tekur aldrei ofan
grímuna. Það sýnist alltaf vera allt í lagi. Þess
vegna erum við sennilega, þegar betur er að gáð, að
hlæja að sjálfum okkur.
í grasrótarstíl
Með eitt aðalhlutverkið í sýningunni fer Steinn Ár-
mann Magnússon sem fer á kostum í hlutverki Franks.
Steinn Ármann drakk kaffi og át kleinu með blaða-
manni DV í vikunni og upplýsti þá að þessi leikhópur
væri upphaflega stofnaður af Felix Bergssyni, í tengsl-
um viö einleikinn Hinn fullkomni jafningi, og þetta
verk Stevens Berkoffs hefði verið draumaverkefni Felix
árum saman og hann hefði átt það þýtt í fórum sínum
mjög lengi áður en draumurinn rættist. Stefán Jónsson
leikari er leikstjóri Kvetch og þetta mun vera önnur
sýningin sem hann leikstýrir í atvinnuleikhúsi.
„Það fengust listamannalaun fyrir leikarana sem
tóku þátt í þessu og þannig var hægt að gera þetta. Það
var sannkallaður grasrótarstíll á þessu fyrst. Viðtök-
urnar urðu mjög góðar og þetta fékk fljúgandi start og
þá var ákveðið að fara með það á stærra svið í Borgar-
leikhúsinu.
Við höfum ákveðið sýningar út mánuðinn en skipu-
lag er svolítið erfitt þar sem hluti leikaranna er bund-
inn bæði í Honk í Borgarleikhúsinu og Með fullri reisn
í Þjóðleikhúsinu," segir Steinn og bítur ábúðarfullur á
svip í kleinuna.
Elvis sem aldrei var sýndur
- Svo undarlega vill til að Stefán Jónsson hefur
leikstýrt Steini Ármanni áður í leikriti sem var æft
nær alla leið að frumsýningu en hefur aldrei verið
sýnt. Þetta leikrit, sem heitir Eldað með Elvis, átti
að vera á sýningarlista Leikfélags Islands í Iðnó en
segja má að skipið hafi sokkið áður en menn náðu
í höfn því félagið varð gjaldþrota.
Steinn lék þar lamaða Elvis-eftirhermu sem stóð
þó stundum upp úr stólnum og tók lagið. Þetta kall-
ast á við veruleikann með þeim hætti að á ferli sín-
um sem skemmtikraftur hefur Steinn Ármann
stundum komið fram i gervi Elvis og vakið fima-
góða hrifningu. Þetta er meinfyndið og undarlegt
verk og þarna innanborðs voru einnig Friðrik Frið-
riksson, Edda Björgvinsdóttir og Edda Björg Eyj-
ólfsdóttir.
„Þetta er svartur og fínn húmor og það er ekki
búið að gefa þetta upp á bátinn. Kannski á þetta eft-
ir að komast á svið.“
Litíð í mörg hom
- Steinn Ármann er ekki við eina fjölina felldur
í leikhúsheiminum því hann hefur á ferli sínum
fengist við gamanleik, þáttagerð i útvarpi og sjón-
varpi, leikið ofurvinsælan kött í Stundinni okkar
árum saman, troðið upp með hljómsveitinni Kátum
piltum í Hafnarfirði, lesið hlutverk illmenna í
teiknimyndum, smíðað leikmyndir á smíðaverk-
stæði Sjónvarpsins í mörg ár og er nú að lesa út-
varpssöguna ásamt því að leika í Kvetch.
„Þetta er sagan Amsterdam eftir Ian McEwan
sem fékk Bookerverðlaunin 1998. Þetta er fín saga.“
Síðan er Steinn að hefja störf við að leikstýra
nemendum í Menntaskólanum í Kópavogi en segir
að enn sé óráðið hvaða verkefni verður fyrir val-
inu, en þetta er í annað sinn sem hann leikstýrir,
fyrir utan einstök verkefni á því sviði í sjónvarpi
og útvarpi, sérstaklega í Stundinni okkar. Steinn
setti einnig upp Barpar eftir Jim Cartwright hjá
Leikfélagi Keflavíkur. En er gaman að leikstýra?
„Þegar vel gengur, já. En stundum fyllist maður
algeru vonleysi og sér ekkert nema svartnætti.“
Svitinn rennur strítt
- Það má glöggt sjá fingrafor leikstjórans á
Kvetch-sýningunni. Hvernig fór Stefán að því að
gera þetta svona?
„Þegar búið var að finna leiðina til að sýna
kvíðaköstin með „frosti“ og ákveða að stílfæra leik-
inn með þeim hætti sem gert er þá varð þetta til.
Þetta er ekki hefðbundinn leikstíll; mjög stór i snið-
um. Hann lét okkur spóla okkur upp í þessa gríðar-
legu spennu sem við þurfum að halda allan tímann.
Stefán vann stundum eins og kóreógrafer þegar
hann var að einbeita sér að því að setja okkur í
stöður til að ná fram því sem hann vildi.
Þetta virkar mjög vel en fyrir vikið er þetta sér-
staklega erfið sýning að leika líkamlega. Svitinn er
yfirleitt farinn að leka í augun á mér um miðja sýn-
ingu. Fyrir sýninguna í Borgarleikhúsinu fékk ég
nýja tegund af geli í hárið og það er eitthvað meira
vatnsleysanlegt og rann frjálslega svo ég sá um
tíma eiginlega ekkert.“
- Steinn ljóstrar hér upp því leyndarmáli að í
þessari sýningu nota leikararnir ekkert smink
Steven Berkoff
Höfundurinn Steven Berkoff er
feikilega vel kynntur í leikhúsheimin-
um, jafnt sem leikari, leikstjóri, leik-
ritaskáld og rithöfundur. Hér á landi
þekkjum viö hann helst sem vonda
kallinn úr kvikmyndum eins og Ram-
bo, Beverly Hills Cop, Octopussy og
War and Remembrance. I leikhúsinu
er hann líka uppreisnarseggur og hef-
ur vakið athygli fyrir að fara algjör-
lega eigin leiðir. Berkoff er af mörg-
um talinn einn besti og frumlegasti
leikhúslistamaðurinn í heiminum.
Steven Berkoff hlaut sína leikhús-
menntun í London og París, en þar
nam hann hjá Jaques Le Coq. Hann
stofnaði sinn eigin leikhóp, the
London Theatre Group, árið 1968 og
fór strax að vekja verulega athygli.
Fyrsta sýning þess hóps var In the
Penal Colony en það var útfærsla
Berkoffs á smásögu eftir Kafka.
Berkoff hefur einmitt öðlast frægð
fyrir sínar „útgáfur" á klassískum
verkum, eins og Réttarhöldunum og
Metamorphosis eftir Kafka, gríska
harmleiknum Agamemnon og The
Fall of the House of Usher eftir Edgar
Allen Poe.ÝÞá hefur hann náð stór-
kostlegum árangri í nýstárlegum upp-
færslum á verkum Shakespeares.
Meðal leikverka Stevens Berkoff
eru West, Decadence (siðar kvikmynd
með Joan Collins), Greek, Kvetch,
Acapulco, Harry’s Christmas, Lunch,
Sink the Belgrano, Massage, Sturm
und Drang, Brigton Beach Scumbags,
Messiah og svo hans þekktasta verk,
East. Berkoff hefur ferðast um heim-
inn með leikverk sín og er fastagestur
á leiklistarhátíðum, sérstaklega í Ed-
inborg, þar sem hann er orðinn eins
og stofnun.
Berkoff hefur leikið í fjölmörgum
kvikmyndum eins og áður sagði og
eru þær jafn misjafnar að gæðum og
þær eru margar. Meðal þeirra mynda
sem ekki höfðu verið nefndar eru A
Clockwork Orange, Barry Lyndon,
Under the Cherry Moon, Absolute
Beginners, Prisoner of Rio, The Krays
og svo auðvitað stórmyndin Another
91/2 Weeks!
Berkoff hefur líka verið feikilega
afkastamikill rithöfundur og gefið út
bækur um leiklist, dagbækur ein-
stakra verkefna, smásagnasöfn, leik-
rit, ferðabækur og ljóð. Ævisaga hans
heitir Free Association og var gefin
út af Faber & Faber árið 1996.