Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Side 42
46
Hel<garblað 30 "V LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
Góða veislu
gjöra skal
Það er fátt skemmtileqra en að lenda í
góðri matari/eislu með skemmtilegu fólki.
Það er góð íþrótt ef ekki beinlínis listgrein
að skipuleggja slíkar veislur þannig að i/el
fari.
Góða veislu gjöra skal, er sungið 1 gömlu íslensku dans-
kvæði. Það er fátt skemmtilegra en að lenda í góðri veislu þar
sem vel er veitt af mat og víni og veislugestir eru bæði
greindir og fyndnir og hafa á hraðbergi gamanmál, slysasög-
ur og vandaðar slúðursögur í einum bunka.
Margir lenda mjög sjaldan í svona veislum og tekst enn
sjaldnar að halda eftirminnilega vel heppnaðar veislur af
þessu tagi. Þvert á móti er það oft með nokkrum kvíða sem
húsmóöir og húsbóndi taka á móti gestum og það er einnig
oft með nokknun kvíða sem gestir þiggja boð í veislur. Það
er margt i sambandi við veislur sem er fallið til þess að vekja
ótta og lausleg rannsókn leiðir í ljós að gestimir óttast eftir-
talda hluti meira en annað þegar veislur eru annars vegar.
Það er að mæta of snemma, mæta of seint, vera óviðeig-
andi klæddur, þ.e. að vera of finn eða ekki nógu finn. Síðan
óttast margir að drekka of mikið og segja ranga hluti við
rangt fólk eða gleyma nöfrium þeirra sem var verið að kynna
þá fyrir. Ég er næstum viss um að þetta eru nokkum veginn
sömu hlutimir og gestgjafamir óttast og er þá jafnt á komið
með báðum. Lítum á nokkra hluti sem ber að hafa í huga svo
allt fari vel og veislan verði skemmtileg.
Kynningar og sainræður
Sumt fólk stendur í þeirri trú að yflrborðskenndar sam-
ræður eins og þær sem tíðkast í svona samkvæmum séu fyr-
ir neðan þess virðingu eða utan kunnáttusviðs þess. Þetta
fólk stendur yfirleitt eitt og þögult í kokkteilboðum og það er
dauðadómur að fenda við hlið þess við matarborð.
Lausnin er einfaldlega sú að sýna fólki áhuga. Ekki láta
þér nægja að svara spumingum heldur spyrðu fólk sem þú
tekur tali hvað það geri, hvar það búi og hvað bömin þess
heiti og þar fram eftir götunum. Áður en þú veist af ertu búin
að finna mann sem átti bam með fyrrverandi tengdamóður
fyrri mannsins þins eða hitta aftur gamlan leikfélaga úr sand-
kassanum.
Hver á sitja hjá hveijum?
Brellan við að skipa til sætis er að láta þá þöglu ekki sitja
saman í hóp og láta kjaftaskana ekki alla á sama borð. Það er
gott að stía hjónum í sundur eða góðum vinum og koma
þannig í veg fyrir að það myndist „eyjar“ í samkvæminu þar
sem ókunnugum er bannað að ganga á land. Góður gestgjafi
kann að raða fólki saman til borðs þannig að hver hafi af öðr-
um nokkra skemmtan og leggi í framhaldi af því eitthvað af
mörkum til að gera kvöldið skemmtilegt.
Má reykja eða ekld?
Nú til dags er óhjákvæmilegt að skilgreina hvar má reykja
og hvar ekki. Ef það má reykja innanhúss þá þarf það að vera
alveg skýrt hvar en ef reykingamenn eru leiddir út tO að
murka úr sér lífið þá þarf það að vera í skjóli og ekki þar sem
rignir á þá. Því betur sem fer um þá því betur skemmta þeir
sér og mynda sín á milli tengsl sem einungis reykingamenn
geta.
Skál og syngja félagar
Það má almennt séð skipta öllum gestum í tvo hópa. Það
eru þeir sem drekka og þeir sem ekki drekka. Þeir sem ekki
drekka skiptast I þijá hópa: bindindismenn, bamshafandi
konur og endurreista alka. Enginn þessara hópa er til vand-
ræða nema mörgum „þurrkuðum" finnst frekar leiðinlegt að
sitja til borðs með miklum drykkjumönnum en það má auð-
veldlega forðast.
Þeir sem drekka skiptast í tvo hópa. Þá sem drekka í hófi
og þá sem drekka of mikið. Fyrmefndi hópurinn er eðlilega
ekkert vandamál en það er seinni hópurinn sem þarf að gæta
að. Séu bomir fram blandaðir drykkir eins og „bolla“ eða
eitthvað álíka má draga úr styrk hennar þegar liður á kvöld-
ið en það getur líka þurft að hvísla að einum og einum vina-
legri ráðgjöf. Með slíkum hollráðum er oft hægt að forðast
hálfgerð leiðindi því ef ölvun á að verða almenn er best að all-
ir séu jafnfuilir. Það er leiðinlegt ef einn kátur fylliraftur
verður sér til stórrar skammar fyrir framan léttkennda eða
allsgáða áhorfendur.
Það getur verið gott að bjóða upp á óáfenga drykki á borð
við gos eða vatn þegar fer að líða á kvöldið. Margir vilja
gjaman hætta að neyta áfengis um miðnætti og drekka vatn
eftir það.
Enn skal og minnt á að húsráðandi ætti að hindra það með
öllum ráðum aö þeir sem hafa neytt áfengis aki heim til sin.
Leigubílar kosta ekki mikið.
Elvis Presley og mataræði hans gæti orðið gott efni í veislu. Hægt er að fá sérstakar matreiðslubækur sem fjalla
eingöngu urn mataræði kóngsins og elda upp úr þeim.
Leikir og skemmtiatriði
í sumum veislum þar sem fólk
þekkist vel og andrúmsloftið er af-
slappað getur verið við hæfi að fara í
samkvæmisleiki. Vinsælir spum-
ingaleikir eins og Trivial Pursuit efla
keppnisandann og koma að góðu
gagni og sama gildir um ærslaleiki
eins og Pictionary og Actionary.
Margir kannast við grínið sem felst í
að leika bókartitla eða máishætti og
við slíkar kúnstir má skemmta sér
eftir matinn eða jafnvel gera það að
meginefni kvöldsins. Margir era
samt tregir til að taka þátt í svona
fíflalátum nema með fólki sem þeir
þekkja mjög vel.
Hér er hægt að beita eigin hug-
myndaflugi og leikir, eins og gamal-
dags skollaleikur eða mögnuð grettu-
keppni, eru vel fallnir til þess að
brjóta upp það sem virðist í fyrstu
vera hefðbundin veisla.
Góðar veislur eru besta skemmtan þótt þær séu ekki eins flottar og þessi.
Skipulagið skiptir öllu máli.
Hegðun gestgjafa
Gestgjafi hefúr einfaldar skyldur. Hann á að vera til fyrir-
myndar og sjá til þess að allir skemmti sér. Þetta gerir gest-
gjaftnn með því að hegðun hans og neysla er ávallt til fyrir-
myndar og ef hann sér einhvem sitja einmana án félagsskap-
ar þá kemur hann til bjargar. Það er hins vegar ekki góð lat-
ína að gestgjafi sitji lengi á hljóðskrafi við einn gesta sinna
og því getur aðstoðarmaður komið og bjargað gestgjafa úr
slíkri einokunaraðstöðu með sögum um að nærveru hans sé
krafist annars staðar. Við slíkar bjarganir nota gestgjafi og
vitorðsmaður hans oft einfalt merkjamál. Það má hins vegar
ekki vera mjög áberandi - ekki baða út höndunum og benda
á þann sem heldur þér uppi á snakki.
Eiiifalt er gott
Það eru nokkrar aðferðir sem gestgjafi getur beitt til að
draga úr sínu eigin stressi og skemmta sér betur. Undirbún-
ingur eins og innkaup og þrif skal fara fram með a.m.k dags
fyrirvara og matseðillinn er bestur þegar hægt er að elda sem
mest fyrir fram. Gestgjafi má bjóða gestum til sín í eldhúsið
en þarf ekki að fara eftir ráðgjöf þeirfa varðandi eldamennsk-
una. Gestgjafi má setjast hjá uppáhaldsgesti sínum þegar
maturinn er kominn á borðið.
Ekki bjóða neinum sem þarf sérstakt eftirlit af einhveijum
ástæðum og ekki bjóða neinum sem þú þarft að vera í sér-
stökum stellingum fyrir allt kvöldið. Á þessum lista eru t.d.
tilvonandi tengdamæður, yfirmenn í vinnunni og fyrrver-
andi makar.
Hvað er þemað?
Það er hægt að setja saman eða
hanna matarboð og partí sem ein-
kennast af sérstökum stefjum eða
þema. Hér skal bent á nokkrar hug-
myndir.
1. Finndu matreiðslubók Elvis
Presley, Are You Hungry Tonight, og
eldaðu mat í anda kóngsins og spil-
aðu aðeins tónlist hans. Allir era
með brilljantín f hárinu og hugsan-
lega klæddir í anda timabilsins.
2. Það er áttundi áratugurinn. Eld-
aðu eitthvað úr dós, spilaðu tónlist
Herberts Guðmundssonar eða fáðu
hann til að mæta. Það eru allir
klæddir eins og var í tisku þá, strák-
amir era málaðir og vinsælasta lag-
ið í partínu er Gleðibankinn.
3. Allt í sama lit. Það er hægt að
skipuleggja matarboð i ákveðnum lit.
Til dæmis gult. Þá er banana daquiri í fordrykk, saffronhrís-
grjón og karríkjúklingur í matinn og sítrónuís í eftirrétt.
Hvítvinið með matnum er gult og Yellow Submarine er aðal-
lag kvöldsins. Allir mæta klæddir í gult.
Með sama hætti mætti skipuleggja svart kvöld. Þá er Black
Russian í fordrykk, kavíar eða svartbaunasúpa í forrétt og
svartsteiktur „cajun“ kjúklingur í aðalrétt og dökk
súkkulaðimús í desert. Vínið með matnum heitir Black
Tower og allir er svartklæddir og Black is black með Rolling
Stones er vinsælasta lag kvöldsins.
4. Það er sjötti áratugurinn á íslandi. Konumar eru með
túberað hár og karlamir í polyesterjakkafótum. Það er harð-
steiktur lambahryggur á borðum með grænum baunum,
rauðkáli og brúnuðum kartöflum og niðursoðnir kokkteil-
ávextir úr dós með þeyttum rjóma í eftirrétt. Með matnum er
tvöfaldur vodka í kók (enginn ís) og Ellý og Raggi Bjarna eru
á fóninum. Eftir matinn era sýndar skuggamyndir úr sumar-
fríi til Spánar.
Maður er manns garaan
Eins og sjá má hér að framan er það aðeins ímyndunarafl
húsráðanda sem setur mörkin varðandi skipulag góðra
veislna. Þegar öllu er á botninn hvolft þarf ekki miklar
hundakúnstir til að allt gangi vel. Það er góður matur, viðeig-
andi tónlist og skemmtilegt fólk sem getur talað um eitthvað
annað en sjálft sig sem gerir góða veislu góða þvi maður er
manns gaman. Svo má alltaf dansa á eftir. -PÁÁ