Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
H<2Iqctrbfctö I>V 5/
Mitsubishi snýr vörn í sókn
Nýtt andlit Pajero felst aðallega í nýjum stuðara, grilli og samlit, auk
meiri búnaðar.
Bflaframleiðandinn Mitsubishi hef-
ur nú blásið tfl sóknar eftir slakt gengi
í því sem næst áratug. Söludefld Mitsu-
bishi í Evrópu hefúr fengið nýtt nafn
og starfsfólk og söluumboðin í Evrópu
keppast við að kynna nýjustu bflana
og góðan árangur i París-Dakar. Mitsu-
bishi hefur tilkynnt nýja „viðsnún-
ingsáætlun" og er lykflatriði í þeim
viðsnúningi kynning á 12 nýjum gerð-
um bíla á næstu fimm árum.
Betur búinn Pajero
Umboð Mitsubishi á íslandi, Hekla,
er líka komið í fullan gang og kynnir
um mánaðamótin nýja gerð Pajer-
ojeppans sem fengið hefur andlitslyft-
ingu og meiri búnað. Mesta sýnilega
breytingin er að framan á grilli og
stuðara og nú eru Mitsubishi-demant-
amir ekki lengur rauðir heldur silfúr-
litir. Betur búinn nær hann að keppa
við bfla eins og nýja Land Cruiser-
jeppann í verði jafnt sem búnaði.
Ódýrasta útgáfa hans mun kosta
3.990.000 kr„ eins og ódýrasta útgáfa
Land Cruiser 90, og fullbúinn GLS
5.2S0.000 kr. Sem dæmi um staðalbún-
að í GLS er fimm þrepa valskipting,
skriðstillir, leðurinnrétting, sóllúga,
tvískipt loftkæling, sex diska magasín
og þriðja sætaröðin sem fellanleg er
ofan í gólfið. Hægt verður að fá meiri
aukabúnað en áður, eins og fullkom-
inn upplýsingaskjá.
Þrír nýir á rúmu ári
Hekla mun einnig kynna í apríl nýj-
an bfl sem tekur við af Pinin-jepplingn-
um. Sá bíll heitir Outlander og svipar
honum mikið tfl Honda CR-V í stærð
og búnaði. Nýr Lancer verður kynntur
í september og það sem mest er um
vert er algerlega ný útgáfa Colt sem
væntanlegur er um mitt næsta ár. Að
sögn talsmanna Heklu munu þessir
bflar fást á samkeppnishæfu verði viö
aðra svipaða bfla á markaði. Hér á
árum áður var Mitsubishi eitt mest
selda merki á landinu og átti stóran
þátt í að gera Heklu að því veldi sem
fyrirtækið er í dag. Hvort merkið nær
fyrri vinsældum skal ósagt látið en
búið er að blása í herlúðra í herbúðum
Heklu og verður því gaman að fylgjast
með framhaldinu. -NG
Vænta má þess að næsta kvnslóð
Colt verði mjög áþekk þeim hug-
myndabíl seni liér er sýndur.
- s- • *
MMC Outlander er meðalstór
jepplingur sem fyrst var fram-
leiddur fyrir Ameríkumarkað.
100 ára afmæli Ford haldið hátíðlegt í ár
Greint er frá því á heimasíðu
Fornbílaklúbbsins, fombill.is að
Ford-fyrirtækið á 100 ára afmæli í
ár. Af því tilefni verður mikið um
dýrðir í Fordborginni Dearborn,
sem er skammt frá Detroit. Verið er
að leggja síðustu hönd á gríðarlegar
endurbætur á safninu í Greenwich
Village og nú er ráðgert að endur-
framleiða T-Fordinn í takmörkuðu
upplagi fyrir þá sem treysta sér til
að keyra þann ágæta vagn. Síðan
kemur ný afmælislína af nýrri gerð-
um, þar sem bílamir verða að sjálf-
sögðu allir svartir, en það var uppá-
haldslitur Henry Fords sáluga. Þeg-
ar framleiöslan á T-Fordinum var
sem mest á árunum fyrir 1920 var
svarti liturinn sá eini sem þornaði
nógu fljótt fyrir færibandavinnuna
þannig að Henry varð að gefa út þá
yfirlýsingu að menn gætu fengið
hvaða lit sem væri á T-Fordinn, svo
framarlega sem hann væri svartur.
Afmælisbílamir, sem verða fáanleg-
ir i takmörkuðu upplagi, eru af
gerðunum Taurus, F-150, Focus, Ex-
plorer og Mustang.
Hópkeyrsla aldarinnar
Aðalhátíðahöldin verða dagana
12. til 16. júní, þegar búist er við
100.000 gestum til Dearbornborg-
ar. Reyndar teygja hátíðahöldin
sig inn til Detroit, þar sem verið
er að breyta gömlu 20.000 fer-
metra T-Ford-verksmiðjunum við
Highland Park í safn, en þangað
hefur 1000 gestum verið boðið sér-
staklega. Þegar Ford stóð á há-
tindi ferils síns runnu 1000 T-
Fordar af færiböndunum við
Highland Park, þar sem 100.000
llér má sjá Ford T ásamt svörtu
afmælisbílunum.
verkamenn störfuðu undir sama
þaki. í tilefni af aldarafmæli
Fordbílsins verður farinn sérstak-
ur leiðangur á 42 T-Fordum þvert
yfir Bandaríkin, frá Los Angeles
til Detroit, sem er 4800 km leið.
Leiðangurinn hefst 24. maí og
ekið verður 6 tíma á dag, samtals
í 20 daga. Meðalhraðinn verður 56
km á klukkustund og ekið verður
jafnt í rigningu sem sólskini, en
ætlunin er að renna í hlað í
Detroit fimmtudaginn 12. júní,
þegar hátíðahöldin hefjast. -ÖS
Tilraunabílar frá Hyundai og Daewoo
Draumur á hjólum var þema
Hyuqdai á bílasýningunni í Seoul í
desember, en þar frumsýndi
Hyundai HlC-tilraunabilinn, auk
HCD-7 sem frumsýndur var í
Chicago. HIC, sem stendur fyrir há-
tæknisportbíl, er byggður á XG-und-
irvagninum og er knúinn 3,5 lítra
V6 vél. Bílnum er ætlað að vera
prófunarbíll fyrir nýjustu tækninýj-
ungamar og má þar nefna skrið-
stilli sem skynjar fjarlægð, nætur-
sjón og bakkmyndavél. Einnig var
ný útgáfa coupé-bílsins frumsýnd og
kallast hann Aero og stærri og
hærri útgáfa Santa Fe Mountaineer.
Jeppi og fjölnotabíll
Daewoo frumsýndi einnig tvo til-
raunabfla í Seoul, Flex og Oto. Flex
er stór fjölnotabíll, svipaður að stærð
og Renault Espace, en er sérstakur
fyrir stór hjól og lága veghæð.
Greinilega hefur verið sótt í aðra
hönnun franska framleiðandans sem
sést vel á afturenda sem líkist nokk-
uð Avantime og nýja Mégane. Bíllinn
er með sæti fyrir níu og í honum er
afþreyingarkerfi sem inniheldur
leikjatölvu og DVD-spilara. Oto bygg-
ist á DMS-1 tilraunabílnum og er
blanda jeppa og sportbíls, en slíka til-
raunabíla eru margir aðrir framleiö-
endur með í undirbúningi, eins og
Toyota og Mitsubishi. Hann er svip-
aður að stærð og Jeep Cherokee og er
með sæti fyrir sjö. Aðkoma í aftari
sætaraðimar er í gegnum aftiu-dyr
sem opnast öfugt og því er eins og
billinn sé aðeins tveggja dyra. Ailir
tilraunabílamir frá þessum kóresku
framleiðendum era greiniiega ekki
langt frá framleiðslustiginu og því
ekki langt að bíða þess að við sjáum
þá með eigin augum. -NG
Flex er fjölnotabíll frá Daewoo og
tekur níu manns í sæti.
Oto er jeppi seni er stutt frá því
að komast á framleiðslustigið,
enda veitir Daewoo ekki af jeppa
eftir að jeppafrainleiðandinn
SsangYong var skilinn frá Daewoo.
Hvundai Coupé liefur fengið nýjan
framenda og kallast þá Aero.
Svipmót Santa Fe er auðséð í ;
Mountaineer en hann er stærri út-
gáfa jepplingsins.
HIC er hátæknivagn sem notaður
er til að prófa nýjustu tækninýj-
ungarnar.
Vélhjólabraut
á Álfsnesi?
Rétt fyrir áramót var svæðisskipu-
lag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024
staðfest af umhverfisráðherra. í því er
að finna framtíðarsýn sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu um upp-
byggingu og þróun byggðar næsta ald-
arfjórðunginn. Með samþykkt þess er
opnað fyrir langþráð akstursíþrótta-
svæði Vélhjólaíþróttaklúbbsins á Álfs-
nesi, en það hefur verið vilji fyrir því
að gera þar framtíðar-útivistaraðstöðu
fyrir skotveiðimenn og vélhjólafólk,
bæði hjá umhverfisráðuneyti og
Reykjavíkurborg. Að sögn Stefáns Her-
mannssonar, borgarverkfræðings og
sviðsstjóra umhverfis- og tæknimála
hjá Reykjavíkurborg, tekur svæðis-
skipulagið á stóru málunum en vísar
ákvörðunartöku til umfjöliunar í aðal-
skipulagi sveitarfélaganna. „Ekki hafa
verið leyst ýmis mál varðandi Áifsnes-
ið, eins og urðun sorps þar og fleira.
Mikill áhugi hefur verið á að skotfélög-
in fái þama aðstöðu og erum við með
fjárheimiid fyrir gerð aökomuvegar.
Reykjavíkurborg hefur sýnt báðum
málunum áhuga og mun vegurinn nýt-
ast báðum aðilum." Stefan sagði enn
fremur að tekið hefði verið jákvætt í
erindi VÍK um aðstöðu á Álfsnesinu og
er verið að ganga frá samkomulagi við
klúbbinn. -NG
Suzuki Sidekick Sport, ssk.,
skr. 2/96, ek. 115 þús.
Verð kr. 860 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.,
skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Galloper 2,5, dfsil, ssk.,
skr. 9/99, ek. 78 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
SUZUKl BILAR HF.
Sketfunnl 17, sími 568-5100
Suzuki Jimmy JLX, bsk.,
skr. 6/99, ek. 49 þús.
Verð kr. 990 þús.
Skoda Octavia Elegance, ssk.,
skr. 10/02, ek. 1 þús.
Verð kr. 1890 þús.
Baleno Wagon 4x4,
1/99, ek. 79 þús.
kr. 1170 þús.
Suzuki Baieno GLX, 4 d.,
bsk., skr. 8/99, ek. 38 þús.
Verð kr. 1100 þús.
Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk.,
skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 750 þús.
Suzuki Grand Vrtara 2,7 XL-7,33?,
breyttur.skr. 9/01, ek. 4þús.
Verð kr. 3690 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk.,
skr. 11/98, ek. 87 þús.
Verð kr. 1490 þús.