Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Side 48
Helojai rhlað H>"V" LAUGARDAGU R 18. JANÚAR 2003
Bílar
a
Þrívirk veltuvöm
Volvo XC90 leggur mikið upp úr öryggi eins og Volvo er
tamt. Volvo er í eigu Ford og því kemur það ekki á óvart
að höfuðáherslan skuli hafa verið lögð á að minnka hættu
á veltu, en tíðar veltur Ford Explorer, sem raktar voru að
hluta til dekkjavals, kom illa við framleiðandann. Volvo
XC90 notar þijár aðferðir til að minnka hættuna á slysum:
hugbúnað sem á að að koma í veg fyrir veltu, sérstyrkt þak
og loks loftpúðagardínur sem eru útblásnar 10 sekúndum
lengur en venjulega til að koma i veg fyrir að farþegar kast-
ist út úr bílnum. Veltivömin virkar mjög vel við prófun
okkar og grípur fyrr inn í en hefðbundin skrikvöm, en eins
og gefur aö skilja gátum við ekki látið reyna á hin tvö at-
riðin.
Dregur aðeins niður í vél
Við höfum oft sagt það áður að 2,5 lítra disilvélin, sú
sama og í S80 og XC70, er öflug og skemmtileg og um leið
hljóðlát og eyðslugrönn. Sama má segja um hana í XC90,
þótt aðeins sé farið að draga úr afli hennar vegna aukinn-
ar þyngdar bílsins. Hún togar bílinn vel áfram, jafnvel í
bröttustu brekkum, en aðeins vantar þó upp á viðbragðið,
sérstaklega áður en forþjappan kemur inn, og er þá eins og
komi smáhik þegar stigið er fast á olíugjöfina. Þyngd bíls-
ins frnnst vel i akstri, án þess að það komi niður á akst-
urseiginleikum hans, enda vel fyrir þeim hugsað. Fjórhjóla-
drifið er endurbætt útgáfa Halidex-aldrifsins og ásamt mik-
iili veghæð gerir það bílinn að ágætum torfærubíl þótt
hann jafnist ekki á við M-línu Benz eða VW Touareq.
Verð í góðu meðallagi
Verðið á nýja Volvo-lúxusjeppanum er nokkuð gott,
5.690.000 kr. í þessari útfærslu. Sambærilegur BMW X5 er
mun dýrari, á 6.540.000 kr„ en Benz-jeppinn er örlítið ódýr-
ari, á 5.570.000 kr. Nokkm getur þó munað í staðalbúnaði á
grunnútgáfum þessara bíla. Annar verðugur keppinautur
er líka eflaust nýr VW Touareq sem, líkt og Benz-jeppinn,
er með lágu drifí. Ódýrasta bensínútgáfa hans kostar
5.470.000 kr. sem er mjög svipað og XC90 með 2,5 lítra bens-
ínvélinni, en sá bíll kostar 5.490.000 kr. í grunninn. -NG
Otrúlega stór
og rúmgóður
Kostir: Rými, veltivörn, þœgindi.
Gallar: Viðbragö fró olíugjöf.
Brimborg kynnti nýlega til sögunnar nýja Volvojeppann
sem var nýlega valinn jeppi ársins í Bandaríkjunum, XC90,
sem skipar sér í ört stækkandi flokk lúxusjeppa. Reyndar er
XC90, líkt og aðalkeppinautar hans, BMW X5, aðeins jepp-
lingur en driflina þeirra er einungis sívirkt íjórhjóladrif og
þeir hafa ekki millikassa. Jepplingur er hins vegar ekki rétt-
nefni þegar horft er á stærð þessara bíla og er XC90 til dæm-
is stærri í sumum málum en nýr Land Cruiser 90. Þess
vegna munum við kalla hann lúxusjeppa til hægðarauka.
Það sem fyrst vekur
athygli við XC90 er
stærðin en bíilinn er
alveg ótrúlega rúmgóð-
ur. Hægt er að fá hann
sjö sæta og falla þá öft-
ustu sætin snyrtilega
ofan í gólfíð án þess að
taka meira pláss en
bíll án þeirra. Með
þriðju sætaröðinni er
bamaseta í miðjusæti
sem einnig má færa
fram að framsætum
með því að taka miðju-
stokk í burtu. Allt efn-
isval er fyrsta flokks
enda óhætt að segja að
Volvo flokkist undir
lúxusmerki í dag. Bún-
aður er með ágætum,
sérstaklega öryggis-
búnaður, og sem stað-
albúnað má nefna
skriðstilli, flarstýrð
hljómtæki, sex ör-
yggispúða og fleira.
Hjólahaf XC90 er 2,9
metrar sem er með því
besta sem gerist og að-
koma því góð í alla
staði.
Ótrúlega rúmgóður
o Dísilvélín er 163 hestöfl og hefur mikið tog,
340 newtonmetra.
® Afturhleri er tvískiptur og neðri hlutinn lægri
en í flestum öðrum jeppum. Þetta auðveldar
hleðslu og bíllinn þolir einnig meiri þunga.
© Innréttingin er fyrsta flokks og plássið enn þá
meira en áður í Volvo.
® Volvo-svipurinn er auðþekkjanlegur á nýjum
XC90.
VOLVO XC90 2,5 D5
Vél:
2,5 lítra, 5 strokka dísilvél.
Rúmtak:
2401 rúmsentímetrar.
Ventlar:
Þjöppun:
18:1.
Gírkassi:
5 þrepa sjálfskiptur.
UNDIRVAGN:
; Fjöðrun framan: Sjálfstæð MacPherson-qormafjöðrun.
Fjöðrun aftan:
Fjölarma, sjálfstæð.
Bremsur:
Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD.
Dekkjastærð:
235/65 R17.
YTRI TOLUR:
i Lenqd/breidd/hæð: 4800/1900/1780 mm.
Hjólahaf/veqhæð: 2860/220 mm.
Beyqjuradíus: 12,5 metrar.
INNRI TÖLUR:
i Farþeqar m. ökumanni: 5-7.
I Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 5/6.
Faranqursrými: 615-2404 lítrar.
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 9,4 lítrar.
Eldsneytisqevmir: 72 lítrar.
í Ábvrqð/ryðvörn: 3/12 ár.
j Grunnverð: 5.690.000 kr.
, Umboð: Brimborq hf.
Staðalbúnaður: 6 öryggispúðar, fjarstýrt útvarp/geislaspil- ari með 8 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnar rúður og speglar, loftkæling, aksturstölva, aðdráttarstýri, spólvörn, veltivörn, þokuljós, upphituð og fjölstillanleg
framsæti, miðjustokkur, álfelqur.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 163/4000.
Snúninqsvægi/sn.: 340 Nm/1750-3000.
Hröðun 0-100 km: 12,3 sek.
Hámarkshraði: 190 km/klst.
Eiqin þynqd: 2050 kq.