Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2003
/ /e Icj cj rb la c) DV 53^
Nýr F-150 pallbíll frá Ford í Detrolt
Ford hafði nóg að gera á bílasýn-
ingunni i Detroit í síðustu viku og
frumsýndi meðal annars þar nýjan
Ford F-150 sem er mest seldi bíllinn
í Bandaríkjunum ár eftir ár. Enginn
pallbíll hefur selst betur en hann í
20 ár svo að það er eins gott fyrir
Ford að nýja bílnum verði vel tekið
þegar hann kemur á markað á
næsta ári. Útlit hans byggist að
hluta á Tonka tilraunabílnum og er
sterklegt að sjá. í innréttingunni er
miðjustokkur sem innrétta má að
vild með öllu frá geymsluhólfum
upp i DVD-spilara.
Jepplingur fyrir borgarfólkið
Ford Faction er hins vegar til-
raunajepplingur sem ætlaöur er fyr-
ir borgarumferð, hvað sem það á nú
að þýða. Þessi bíll var reyndar fyrst
sýndur á bílasýningunni í Los Ang-
eles um áramótin en vakti einnig
mikla athygli i Detroit. Þetta er
fyrsta afurð Ingeni hönnunarhúss
Ford i London sem opnað var í
fyrra og er þriggja dyra jepplingur
með aldrifl. Fjöldi tækninýjunga er
í bílnum og má þar nefna „borgar-
augað“ sem hjálpar til þegar lagt er
í stæði en getur líka fylgst með öðr-
um farþegum. Hjarir hurðanna eru
tveggja liða til að aðvelda umgang í
þröngum stæðum. Afturhlerinn er
tvískiptur og er hleðsluhæð mjög
lág til aukinna þæginda. Hægt er að
fella niður aftursæti með einum
takka og gólfið í farangursrýminu
má draga út til að auðvelda enn
hleðslu. -NG
Ford F-150 er mest seldi pallhíll frá upphafi vega.
Nýi Ford Faetion tilraunajepplingurinn er ætlaður fyrir borgarfólkið.
Ódýrarí Lamborghini sportbílar
Nú á dögunum bárust fréttir af
tveimur nýjum Lamborghini-bílum.
Annar kallast Gallardo (borið fram
gæardó) og á sá bíll að laða að efna-
minni kaupendur þar sem hann á að
vera ódýrari og minni en síðustu bílar
frá AutomibOi Lamborghini. Gallardo
er með 500 hestafla V-10 vél sem stað-
sett verður fyrir miðju að venju. Hinn
billinn kallast Barchetta og var frum-
sýndur á bílasýningunnni í Detroit, en
hann er með V-12 vél sem skilar 580
hestöflum og það sem meira er, hann
er opinn.
Framleiddi fyrst dráttarvélar
Lamborghini-fyrirtækið hóf að
framleiða sportbOa á því herrans ári
1964, en áður hafði Lamborghini fram-
leitt dráttarvélar frá 1948. Fyrsti bíll-
inn, 350 GT, var eins og flestir
Lamborghini-bnar síðan, með V-12
vél. Fyrirtækið blómstraði þangað til
gerð voru þau mistök að framleiða
jeppa ætlaðan fyrir hemað árið 1977.
Efti,r það var mikO kreppa í bOaiðnað-
inum.
Frægasti bOl sem Lamborghini hef-
ur framleitt er Countach, en hann var
frumsýndur á afar heppOegum tíma
árið 1982, rétt áður en verðbréfamark-
aðurinn fór í mikla uppsveiflu. Þá vOdi
svo tO að Countach varð stöðutákn.
Maður taldist ekki römr nema að eiga
Countach. Vöxturinn hjá Lamborghini
var svo mikOl að það þurfti að fá
stuðning. Chrysler sá sér leik á borði
og keypti aOt fyrirtækið. Skömmu síð-
ar var hætt að framleiða Countach og
Diablo kemur tO sögunnar. í byrjun
var með ekki „nema“ 485 hestafla V-12
vél, en hann þróaðist og lokaútgáfa
hans var 550 hestafla fjórhjóladrifmn
böl. Framleiðslu á honum var hætt
2001. Chrysler seldi svo Lamborghini
fyrirtækið árið 1994. Eftir mörg eig-
endaskipti i fjögur ár var það loks
keypt af Audi (sem Volkswagen er eig-
andi að) af tveimur asískum fyrirtækj-
um, Mycom og V-Power
Nýjustu Lambo-bflamir
Nýjasti bOlinn sem kom frá
Lamborghini er Murciélago. BOlinn
Jieitir er eftir nauti einu sem eftir
harðan og mikinn slag í hringnum á
Barchetta er opinn sportbíll með V-12 vél sem er lægra í grindinni en áður.
móti frægum nautabana, og yflr 25
spjót í sér, liföi enn og barðist af
hörku. Því var að lokum þyrmt af
nautabananum. í bilnum er 580 hest-
afla V-12 vél sem er með breytanlega
ventlaopnunartima og fjölventlakerfi.
GaOinn við Countach, Diablo og
Murciélago hins vegar er að vélin er
höfð hátt í bOnum. Vonandi lagast það
með þessum tveimur nýju bOum,
Barchetta og GaOardo. Með rafrænum
skiptibúnaði mætti lækka vélina aft-
ur, og þar með þyngdarpunktinn. Með
GaUardo vonast Audi tO að græða á
Lamborghini eftir að hafa heOt fjár-
magni í þróun á Murciélago,
Barchetta og GaOardo. Þessi GaOardo
á að vera Lamborghini „fátæka
mannsins". Með minni V-10 vél og
minni skrokk ætla þeir að gera léttari
og flmari bO sem væntanlega er ætlað
að keppa við Porsche og Ferrari-bOa.
Barchetta á hins vegar að vera þessi
klassíski Lamborghini með V-12 vél og
hið ruddalega útlit sem við öO þekkj-
um og dáum. Með því að hafa böinn
opinn þurfti að hanna aOan skrokkinn
Frumútgáfa Gallardo var fyrst
sýnd í nóvember en verður fullbú-
in í Genf í mars. Við bílinn standa
guðfaðir og hönnuður hans, Walt-
er De Silva og Luc Donckerwolke.
aftur svo að hann væri jafn stífur án
þaks.
Það sem koma skal
Við skulum öU leggjast á bæn og
vona að þessir nýju bUar standi undir
því sem Italimir i Bologna hafa gert
síðan 1964, þ.e. hannað og smíðað al-
vöru ofursportbOa sem skara fram úr
í vélarafli og vinsældum. Lamborghini
hefur brotið mörg spjöld í sögu bUsins
og við vonum að það gerist líka á dög-
um rafmagnsböanna. -DÞÓ
Saab sameinað Opel
í nánustu framtíð
GM, eigandi Saab og Opel i Evr-
ópu, ætlar að sameina þróunar- og
framleiðsludeOdir Saab Opel-merk-
inu. Ætlunin er að úr þessu verði
eitt fyrirtæki og er hugmyndin kom-
in upp úr viðsnúningsáætlun Saab
er kaUast Viggen. „Það mun verða
mun meira samstarf miUi fyrirtækj-
anna sem munu vaxa saman," segir
Carl-Peter Forster, stjómarformað-
ur Opel. Báðir framleiðendurnir eru
á kafi í viðsnúningsáætlunum og lít-
ur út fyrir að Opel nái að skUa hagn-
aði seinna á þessu ári. Saab mun
þurfa að segja upp 1300 starfsmönn-
um sem em 14% af vinnuafli fyrir-
tækisins. Saab tapaði 10,5 mUljörð-
um á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs,
áður en viðsnúningsáætlunin fór í
gang. Ætlunin er að helstu þróunar- c
verkefhi GM í Evrópu fari fram í
Svíþjóð og að þar verði unnin verk-
efni fyrir Opel sem dæmi. Á móti
mun framleiðsla á Saab færast út tU
verksmiðja Opel víðs vegar um Evr-
ópu. Saab neitar því aö þetta muni
hafa áhrif á útkomu nýrra módela
hjá fyrirtækinu þótt því sé ekki neit-
að að einhver seinkun gæti orðið frá
fyrri áætlunum. -NG
Lifandi eftirmynd
forföður síns
Nýjasta jeppaafurð Toyota var
frumsýnd á bUasýningunni í Detroit
í síðustu viku. Þessi tUraunajeppi
kallast FJ Cruiser eftir forvera sín-
um. Sá bfll er mun eldri en hönnuð-
ur bösins, Jin Kim, sem er aðeins 25
ára. Eins og sjá má er margt í útliti
bösins sem minnir á gamla jepp-
ann. Má þar nefna framljós og grUl
og upprétta framrúðuna. Aftari hlið-
arrúðurnar eru rennirúður eins og í
gamla bUnum og hægt er að ganga
inn í bUinn að afitan. Margt hefur
þessi bUl þó fram yfir forvera sinn.
í speglunum eru stefnuvirkir ljós-
kastarar og í mælaborðinu er GPS-
tæki sem hægt er að taka með sér í
göngutúrinn. Hægt er að leggja sæti
niður þannig að úr verður flatt rúm
sem tveir geta sofið í. FJ Cruiser
var sýndur með 3,4 lítra V6-vél með
forþjöppu en sú vél skilar 250 hest-<
öflum. -NG
Bíll ársins 2003 frum
sýndur um
B&L frumsýna nýjan Mégane frá
Renault í sýningarsal sínum að
Grjóthálsi 1 um helgina. Mégane
reyndist hlutskarpastur í vali á bU
ársins 2003 en að valinu standa
helstu bUablöð Evrópu og eru m.a.
höfð tU hliðsjónar hönnun, akst-
urseiginleikar og verð. Hinn nýi
Mégane hefur einnig, fyrstur smá-
bUa, fimm stjömur, eða hæstu ein-
kunn, í árekstrarprófi óháðu eftir-
litsstofnunarinnar EuroNCAP fyrir
öryggisbúnað. Þetta er jafnframt
þriðji bUlinn frá Renault sem hlýtur
helgina
fimm stjömur en Laguna og fjöl-
notabUlinn Espace hafa einnig hlot-
ið þessa viðurkenningu i flokki
stærri fólksbUa. Frumsýningin
stendur frá klukkan 12 tU 16 bæði^_
laugardag og sunnudag.