Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Page 52
56
HelQarhlað 3Z>V
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
A horni Laugavegar og Klapparstígs
bttp://simnet. is/bomedecorl928/
okkar og kíkiö á tilboðin
ð seljasf
20»
70%
afsláttur
ÚTBOÐ
Orkuveita
Reykjavíkur
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur, Gatnamálastofu Reykjavíkur
og Landssíma íslands er óskað eftir tilboðum í verkið:
„Endurnýjun gangstétta og veitukerfa 2. áfangi 2003,
Gerðin". Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu, vatnsveitu,
rafveitu, síma og gangstéttir í Bakkagerði, Teigagerði,
Steinagerði og Grundagerði.
Helstu magntölur eru:
Skurðlengd: 2.850 m
Lengd hitaveitulagna: 2.080 m
Strengjalagnir: 30.000 m
Lagning ídráttaröra: 4.900 m
Hellulögn: 710 m:
Steyptar stéttir: 2.460 m:
Malbikun: 620 m:
Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 20.000
kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 28. janúar 2003 kl. 14.00, á skrifstofu
Innkaupastofnunar.
IJTSALA UTSALA
UTSALA UTSALA
15-50%
AFSLÁTTUR
AF KAJAKBÚNAÐI
frá 6. jan. til 24. jan.
Áraflot, sjódælur, þurrpokar,
dekktöskur, símahulstur,
^ fatnatður, skór, vesti,
árar, kajakar og fl.
VERÐDÆMI Á KAJÖKUM:
Seayak m/ár, stýri og svuntu, kr. 99.836.
Kodiak m/ár, stýri og svuntu, kr. 102.257.
Catalina m/ár, stýri og svuntu, kr. 98.951.
/4
mw
TlTANl www.sportbud.is
Sportbúð Títan - Krókhálsi 5g - 110 Reykjavík
S. 5800 280
Skákþátturinn
Umsjón
Sævar Bjamason
Wijk aan Zee-mótið:
Þegar Polgar lagði Kasparov
Hollendingar hafa haldið mörg
af sterkustu skákmótum sögunnar
og skákhefð er rík í þessu litla
landi. Allir heimsmeistarar á síð-
ustu öld, nema Bobby Fischer, hafa
unnið glæsta sigra þar en það er
víst staðreynd að Bobby tók aldrei
þátt i skákmóti í Hollandi af ein-
hverjum ástæðum.
Mótið í ár er mjög skemmtilegt
og margar athyglisverðar viður-
eignir eru á hverjum degi meðan
mótið stendur. Þegar þetta er ritað
er 5 umferðum lokið. Anand, sem
flestir spá sigri, er kominn í for-
ystu ásamt þeim Judit Polgar og
Alexei Shirov.
Judit Polgar
er komin í hóp bestu skákmanna
í heimi.
Judit Polgar á mikilli velgengni
að fagna sem aldrei fyrr. Hún lagði
nýlega Kasparov í fyrsta sinn í
skák og árangur hennar á síðustu
mánuðum hefur verið góður. Það
skyldi þó ekki vera að hún eygi
enn möguleika á heimsmeist-
aratitlinum en hún er fædd 1976 og
á enn nokkur ár í þrítugt. Hún hef-
ur teflt leikandi létt og er búin að
koma sér þokkalega fyrir í lífinu,
gift og þarf litlar áhyggjur að hafa
af brauðstritinu í framtíðinni. All-
ir vilja fá þessa fallegu konu til að
tefla en hún setur þó upp vænar
upphæðir fyrir komu sinni.
Athygli vekur slök frammistaða
heimsmeistaranna. Kramnik hefur
2fidnning og hefur tapað tveimur
skákum á mótinu, sem verður að
teljast mjög óvenjulegt, en FIDE-
heimsmeistarinn Ponomariov hef-
ur 2 vinninga. Og Anatoli Karpov,
sem margir héldu að væri að taka
eitthvað við sér, tapaði í 4. og 5.
umferð. Staðan eftir 5 umferðir er
þessi: 1.-3. Polgar, Anand og
Shirov, 3,5 v. 4.-5. Bareev og van
Wely, 3 v. 6.-8. Kramnik, Grischuk
og Ivanchuk, 2,v. 9.-12. Karpov,
Topalov, Ponomariov og Radjabov,
2 v. 13.-14. Timman og Krasenkow,
1,5 v. Enn getur ýmislegt gerst. Það
verða tefldar 13 umferðir og þarna
er engin sýnd né gefin veiði. En lít-
um fyrst á hvemig Judit með-
höndlaði fyrrverandi heimsmeist-
ara í skák - hann hefur varla sofið
rótt eftir þessa viðureign!
Hvítt: Anatolí Karpov (2688)
Svart: Judit Polgar (2700)
Drottningar-indversk vörn.
Wijk aan Zee (4), 15.01. 2003
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 b6
Næsti leikur, sem er einkennandi
fyrir afbrigðið, er kenndur við
Tigran Petrosjan, fyrrverandi
heimsmeistara. Hann leiðir venju-
lega til hvassrar taflmennsku sem
sennilega var ekki hugmynd
heimsmeistarans sáluga. 4. a3 Bb7
5. Rc3 d5 6. cxd5 Rxd5 Við erum
hér á mjög þekktum og rannsökuð-
um slóðum. Kasparov geystist
fram á sjónarsviðið með 7. e3 á sín-
um tíma og vann marga glæsta
sigra. Með tíð og tíma náðu menn
að spyrna við áætlun hvíts að leika
e4 með sterku miðborði. Ætli það
sé ekki kominn tími til að dusta
rykið af því afbrigði? 7. Dc2 Rxc3
8. Dxc3 h6 Hér er 9. Bf4 annar
möguleiki en við verðum vitni að
nýjustu kenningum í þessari byrj-
un. 9. e3 Rd7 10. b4 Be7 11. Bb2
0-0 Hér kemur 12. Hcl sterklega til
greina. 12. Hdl a5! Ef hvítur nær
að hróka óáreittur nær hann betra
tafli. Næstu leikir eru djúpir hjá
Judit og hún síefnir að því að rífa
upp hvítu peðastöðuna á drottning-
arvæng. 13. b5 Hc8 14. Db3 c6!
15. bxc6 Bxc6 16. Bb5.
Svartur hefur náð betra tafli og nú
kemur skemmtilegur millileikur sem
setur Karpov í mikinn vanda. Senni-
lega var best að leika 16. Ba6 a4 17.
Dd3 Hc7 og síðan að treysta á Guð og
lukkuna og hróka. 16. - Bb4+! 17.
axb4 Bxb5 18. bxa5 Bc4 19. Da3
bxa5 Hér er greinilegt að Karpov á
slæman dag og Judit góðan! Hvítur
nær alls ekki að tengja saman lið
sitt. 20. Dd6 Bb5 21. d5 Hc2 22.
Hd2 Dc8
Hér varð hvítur að reyna að
hrökkva eða stökkva með 23. dxe6.
Karpov hefur auðvitað verið hrædd-
ur við 23. - Hxb2 þá en hann getur
barist eitthvað með 24. Hxb2 Dcl+ 25.
Ddl Dxb2 26. exd7 Hd8 og svartur
heldur frumkvæðinu. En nú er bara
leikur kattarins að músinni eftir! 23.
Da3 Hxd2 24. Kxd2 Rb6! Hótar svo-
kallaðri fjölskylduskák - Karpov er í
virkilega slæmum málum. 25. Dc3
Rc4+ 26. Kc2 e5! Sannkallaður ofur-
stórmeistaraleikur. Peðið á d5 er
dauðadæmt og óþarfi að eyðileggja
peðastöðuna með því að drepa það
strax. Nú á svarta drottningin greiða
leið um allt borðið! 27. Kbl Dg4! 28.
Hcl Hb8 29. Hc2 f6 30. d6 Dxg2 31.
Rd2 Dhl+ 32. Ka2
Skjól hvita kóngsins á drottning-
arvæng er harla lítið og staðan rjúk-
andi rúst. Og svo fellur peðið á d6
líka. Eins gott að hætta þessu í stað
þess að fá enn háðulegri útreið. 32. -
Rxd6 33. Dc5 Hc8 0-1
Kramnik í vandræðum
Skáksagan er merkileg, Vladimir
Kramnik getur skartað heimsmeist-
aratitlinum í skák með hefðbundn-
um umhugsunartíma - hann sigraði
sjálfan Kasparov í einvígi. Það ein-
vígi átti Alexei Shirov rétt á að tefla
vegna þess að hann lagði Kramnik í
einvígi um keppnisréttinn. En það er
skringilegt „lýðræði" í skákheimin-
um og Kasparov komst upp með að
neita Shirov um einvígi um titilinn,
Shirov sem Kaspi vinnur nær oftast
og aðeins hann og Anand geta státað
af því. Kaspi gekk á vit örlaga sinna
og Kramnik hefur notið lífsins síðan.
Hann er vissulega mjög sterkur
skákmaður, einn af þeim allra bestu
að sjálfsögðu, en það er einn skák-
maður sem hann á mjög. erfitt að
tefla gegn og það er Shirov! Hér sjá-
um við frábært dæmi um það. Skák-
in er mjög innihaldsrík og þeir sem
vilja bæta sig í skáklistinni ættu að
skoða þessa skák nokkrum sinnum á
næstu misserum, svo ekki sé talað
um næstu klukkutíma!
Hvítt: Alexei Shirov (2723)
Svart: Vladimir Kramnik (2807)
Sikileyjarvörn.
Wijk aan Zee (5), 16.01. 2003
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7.
Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Bxf6 gxf6 10.
Rd5 f5 11. Bd3 Be6 12. 0-0 Bxd5 13.
exd5 Re7 14. c3 Bg7 15. Dh5 e4 16.
Bc2 0-0 17. Hael Dc8 18. Bb3 a5.
Allt þetta er nýjasta tíska í hinu svo-
kallaða Svesnikov-afbrigði og menn
hafa talið að svartur nái jöfnu tafli á
auðveldan hátt. En Shirov hefur teflt
oft gegn þessu og lætur nú gamminn
geisa! 19. Dg5 Db7 20. f3 h6 21. Dg3
a4 22. Bc2 b4 23. Rc4 Dxd5.
I nr
i l A V A
?a mm
& Af
&&A Aá
I
Svartur virðist vera með ágætt tafl
og geta unað glaður við sitt! En næsti
leikur Shirovs breytir þessu öllu og
hann fórnar manni um stundarsakir.
Það er á stundum og í stöðum sem
þessum sem ég uppgötva hversu djúp
skákin er! 24. fxe4!! Dxc4 25. exf5
Rd5 Hvítur hótaði riddaranum en nú
kemur engu að síður 26. f6 Rxf6 27.
Hxf6 Hae8 28. Hefl He2 29. Bd3
Dc5+ 30. Khl He3 31. H6f3 Hxf3 32.
Dxf3 bxc3 33. bxc3 De5? Hér var
e.t.v. 33. f5 betri leikur. En eftir 34.
Bxf5 Dxc3 35. Be6+ er svarta kóngs-
staðan viðkvæm. En nú nær hvítur
umtalsverðum færum. 34. c4 Kh8 35.
Bc2 Da5.
Peð svarts eru tvístruð og hvert og
eitt árásarmarkmið - eitthvað verð-
ur undan að láta. Hér sannast gamla
reglan að í stöðum þar sem eru mis-
litir biskupar stendur sá oftast betur
sem hefur frumkvæðið. Að vissu
leyti hefur hvítur manni meira! 36.
Dd3! f5 37. Dxd6 Dc3 38. Bd3 Dd2
Og c-peð hvíts er óhugnanlega fljótt í
fórum. Ekkert fær stöðvað það; úr-
slitin eru löngu ráðin! 39. c5 Dxa2
40. c6 Hg8 41. Dg6 Hf3 42. c7 Dg8
43. Dc6 Hc8 44. Ba6 1-0