Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 SumarPlús Allt seljast Verðdœmi # SpariPlús * pc O « 00 co in Ef tveir feröasl saman, 67.970 kr. á mann. Verðdæmi , SpariPlús * JC Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. á mann. * á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja -11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. þlús FERÐIR www.plusferdir. is Hltðasmára 15 • Simi 535 2100 Fréttir DV Lausn á vanda barna- og unglingageödeildar: Fynsta lausn tvö rúm á lítilli göngudeildareiningu BUGL við Dalbraut Leit stenduryfir að viðbótarhúsnæöi fyrir starfsemi BUGL, annaðhvort í nálægð Dalbrautarinnar eða Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Axel Cortez og Arndís Einarsdóttir, foreldrar drengs með geðræn vandamál. Magnús Pétursson, forstjóri Land- spítala - háskólasjúkrahúss, segir að fyrstu aðgerðir til að bæta stöðu bama- og unglingageðdeildar LHS (BUGL) séu aö taka út litla göngu- deildareiningu og búa þar til rými fyrir 2 sjúklinga. Það er hægt að gera strax en göngudeildinni yrði þá kom- ið fyrir annars staðar, t.d. á einhverri kaffístofunni. En til þess að fjölga um 8 rúm verður að fara með starfsem- ina út úr byggingu sjúkahússins við Hringbraut. Sú staðsetning hefur hins vegar ekki fundist. „Það getur verið leiguhúsnæði eða annað hús- næöi 1 eigu spítalans ef það er laust. Æskilegast væri að það væri annað- hvort nærri geðdeildinni við Hring- braut eða BUGL við Dalbraut. Þetta verður því ekki sett niður hvar sem er. Með því værum við aö beina legu- plássinu á Dalbraut en cumarri þjón- ustu, dagdeild og göngudeild, í annað húsnæði. Best væri að starfsemin væri öll undir sama þaki því þetta er mikið sama fólkið. Það er hægt að tína til bæði kosti þess og galla að hafa starfsemina inni á Dalbraut. Kostirnir em þeir aö þá er ekki verið að blanda saman vandamálum bama og unglinga og vandamálum þeirra fúllorðnu en hins vegar er þá hætta á því að starfsmenn detti út úr þessum eðlilegu starfstengslum á vinnustað," segir Magnús Pétursson. Hann segist eiga von á viöbrögðum heilbrigðis- ráðherra á allra næstu dögum. Ljóst var strax upp úr áramótum Fréttaljós að lausn á vanda BUGL yrði eitt af forgangsverkefnum spítalans á þessu ári, jafnvel lengur. Starfshópur sem stjóm LHS skip- aði og er undir forsæti Eydísar Svein- bjamardóttur, sviðsstjóra geðsviðs, hefur skilað tillögum en nefndin mun halda áfram sinu starfi, enda verk- efni hennar mun víðtækara. Hún hef- ur þennan mánuð til að skoða efhi- viðinn, fjölda, aukningu, hlutverk spítalans o.fl. Tillögur nefndarinnar era í fyrsta lagi að gert verði ráð fyrir að rúmum á unghngageðdeild veröi þegar í stað fjölgað úr 9 í 12. Þetta þýddi að dag- deild á BUGL yrði fundinn staður annars staðar í húsnæði deildarinn- ar. Með þessu móti fjölgaði rúmum um 3 frá því sem nú er. Ekki yröi um umtalsverðan kostnað að ræða vegna þessa. í öðra lagi er gerð tiliaga um að göngudeildin, sem nú er rekin á BUGL, verði flutt annað og unglinga- geðdeildin stækkuð. Með því er talið gerlegt að fjölga rúmum á unglinga- geðdeild í 17 til frambúðar og hefði rúmum þá verið fjölgað úr 9 í 17 eða um nær helming. Er lagt til að leitað verði eftir leiguhúsnæði fyrir göngu- deild BUGL. í þriðja lagi er lagt til að þegar i stað verði komið á fót sérstökum starfshópi sem einbeiti sér aö bráða- tilvikum. í þessu felst nokkur fjölgun starfsfólks sem veitir geðheilbrigðis- þjónustu. Auk þess að sinna bráðatil- vikum yrði meginviðfangsefni hóps- ins að vinna á bráðabiðlistum ung- lingageðdeildar, heimsækja unglinga í vanda og veita sérhæfða geðheil- brigðisþjónustu utan spítalans. Að rofa til Tómas Zoega, yfirlæknir á geðdeild LHS, segir að þær tillögur sem nú séu komnar fram séu mjög til bóta. Það sé einnig ánægjulegt hversu vel ráð- herra hefur tekið í þær og að hans mati sé nú verið að útvega fjármagn til þess að fylgja eftir lokatiUögum. „Ég hugsa að fjölgun rúma upp i 17 muni að mestu leysa vandann. Kost- urinn við þessar tiilögur er sá að það er hægt að koma þeim í gagnið mjög fljótt. Auðvitað væri það æskilegast að það húsnæði sem frnnst undir starfsemi verði sem næst legudeild- inni við Dalbraut og í tengslum við hana eða í nágrenni Landspítalans við Hringbraut. Það era uppi hug- myndir i þessum tiilögum um að bæta við húsnæðið inni á Dalbraut, en það tekur nokkum tíma að byggja það húsnæði. En þó göngudeildin yrði ein- hvers staðar annars staðar yrði hún á höfuðborgarsvæðinu og þannig stað- sett að unglingar ættu gott með að nálgast hana. Það er verið að leita að slíku húsnæði á fullu. Það er að rofa til í þessum málum og ég finn líka að það er fuilur pólitískur vilji til þess að málefni og rekstur bama- og ung- lingageðdeildar verði öllum til sóma,“ segir Tómas Zoega geðlæknir. Fálætíð hlutí af vanda heil- brigðiskerfisins „Það er mjög ánægjulegt að stjóm- völd skuli hafa bragðist við með svona skjótum hætti, bæði stjóm Landspítalans og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra. Þetta er bráða- vandi sem verið er að bregðast við, fyrstu aðgerðir, og ég treysti því og trúi að þessi vinna muni halda áfram og það verði stuðst við þá skýrslu sem gerð var árið 1998 um þarfir bama- og unglingageðdeildarinnar og farið í að leysa þetta mál eins og við gerum kröfu um að sinnt sé öörum veikum bömum og unglingum," segir Sigursteinn Másson, formaður Geð- hjálpar. - Ertu sæmilega bjartsýnn á að það gangi eftir? „Ég er allbjartsýnn á að það verði haldið áfram að byggja upp þennan málaflokk, málefni geðsjúkra, og þá fyrst og fremst málefni geðsjúkra bama og unglinga, sem er brýnast að leysa. En það er staðreynd að i heild sinni er þessi málaflokkur ekki vel staddur. Það er yfirleitt ekki vel búið að geðsjúkum, hvorki úti í samfélag- inu né inni á sjúkrahúsum. Það þarf mikið að gerast til að þessi mál geti talist vera í viðunandi horfi. Ég trúi því að viljinn sé fyrir hendi og nú er spumingin hvort stjómvöld geti og vilji vera jafn framtakssöm eftir kosn- ingar og þau era nú fyrir kosningar." - Á fálæti almennings sinn þátt í þeirri erfiðu stöðu sem málefni BUGL era komin í? „Það er í langan tíma búið að benda á vandann og í hvað stefndi. Það er kannski ekki um að kenna fá- læti að ekki hefur verið bragðist við fyrr. Almenningur hefur á allra síð- ustu árum sýnt þessum málum miklu meiri áhuga og skilning en dæmi era um áður. Fálætið hefur kannski ver- ið hluti af risavöxnu vandamáli heil- brigðiskerfisins. Vegna ýmissa skipu- lagsmála hefur þetta vandamál ekki verið sett eins ofarlega á forgangslist- ann og maður hefði ætlað. í máli heil- brigðisráðherra hefur komið fram að af einhverjum ástæðum hafi honum ekki verið gerð grein fyrir þessum að- kallandi vanda bama- og unglinga- geðdeildar fyrr en nú og þegar í óefni var komið. Það er umhugsunarefni en ég held ekki að þar sé hægt að benda á einn aðila. Þetta varð ein- hvem veginn mál sem féll milli stafs og hurðar í stjómkerfinu." Engin eftirmeðferð Hjónin Axel Cortez og Amdís Ein- arsdóttir í Reykjavík eiga son sem ekki hafði fengið neina meðferð við sínum vanda til þessa. Þau hjónin lýstu ágætlega þeim vanda sem fjöl- skyldan hefur verið í vegna þessa í nýlegum Kastljósþætti í Ríkissjón- varpinu. Drengurinn hefur nú verið tekinn inn á BUGL og segir Axel að það sé gríöarlegur léttir fyrir alla, en drengurinn hafi sjálfur lagt áherslu á að komast inn. Hann hóf nám í 10. bekk Langholtsskóla sl. haust en lenti í einelti vegna sjúkdóms síns og flosn- aði upp úr skólastarfinu í október- mánuði sL Hann fær nú skólavist á Dalbraut samhliða meðferðinni. „Það er ekki síður vandi og mikið áhyggjumál að við vitum ekki hvað tekur við þegar meðferðinni á bama- og unglingageðdeildinni lýkur. Þá bíður hans engin eftirmeðferð. Ég þekki dæmi um ungling sem var i meðferð í heilt ár á Torfastöðum í Ámessýslu, en eftir að heim kom beið hans alls ekkert, s.s. vikulegt viðtal við sálfræðing og eftirlit með því hvernig honum gengur úti í dag- lega lífmu. Því miður horfum við fram á að svipað verði upp á teningn- um með strákinn okkar. Það er hins vegar mjög jákvætt hvað fjölmiðlar hafa opnað umræð- una, en betur má ef duga skal,“ segir Axel Cortez. -GG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.