Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Side 36
36
He/<garblad> H>"V
LAUGAKDAGUR 8. MARS 2003
s
A svörtum
Hrijðjuverkin //. september 2001 hafa leitt
til mikillar aukninqar á varúðarráðstöfun-
um í flugi um víða veröld. Hverqi er lengra
gengið en íAmeríku en þar hafa stjórnvöld
settsaman svartan lista yfirþá farþega
sem helst ekki er hlegpt um borð íneina
flugvél. Fólk sem telursig vera á lista
þessum álítur þetta brot á stjórnarskrár-
bundnu ferðafrelsi.
Síðan hryðjuverkamenn rændu flugvélum og
flugu þeim á World Trade Center og Pentagon í
Bandaríkjunum þann 11. september 2001 hafa ör-
yggisráðstafanir í öllu flugi verið stórlega hertar.
Einnig hefur lögum, sem gerir stjórnvöldum í
Bandaríkjunum kleift að fylgjast með borgurum í
ríkari mæli en áður, verið breytt og heimildir
stjómvalda rýmkaðar á þessu sviði.
Þetta fékk kona að nafni Barbara Olshansky að
reyna á eigin skinni á flugvellinum í Newark í maí
á þessu ári. Þegar hún ætlaði að ganga um borð og
sýndi brottfararspjald sitt kallaði starfsmaður flug-
félagsins á öryggisvörð og Barbara var tekin til
hliðar í sérstaka rannsókn og nákvæma líkamsleit
og meðal annars beðin að hneppa niður um sig þótt
hún stæði í augsýn annarra farþega sem biðu þess
að komast um borð.
Tölvan spýtti ykkur út
Á tímum herts eftirlits má eflaust búast við slíku
eftirliti svo Barbara lét sér þetta lynda. En þegar
þetta gerðist líka í næsta skipti sem hún flaug og
þar næsta og þar næsta fór hún að hugsa sig
tvisvar um. Barbara Olshansky er lögfræðingur og
starfar fyrir mannréttindastofnun í Bandaríkjun-
um sem heitir Center for Constitutional Rights og
ferðast mjög mikið. Þegar hún var á ferð ásamt sex
öðrum starfsmönnum stofnunarinnar í september
síðastliðnum og allur hópurinn var tekinn í ná-
kvæma leit og eftirlit spuröi Barbara hverju þetta
sætti.
„Ég veit ekkert um það og hef engan tíma til að
ræða við ykkur um það. Ég veit bara að tölvan
spýtti ykkur út,“ svaraði stressaður öryggisvörður.
Þúsund manns á lista
Mánuðum saman hafa sögusagnir gengið meðal
ákveðins hóps Bandaríkjamanna af tilvikum sem
þessu þar sem fólki er annað hvort meinað að fara
um borð í flugvélar eða þarf að sæta nákvæmri leit
i hvert sinn sem það flýgur. Nú hefur talsmaður
opinberrar stofnunar sem ber hið virðulega heiti:
Transportation Security Administration og er ný
af nálinni, viðurkennt að til sé langur svartur listi
yfir fólk sem talið er mjög óæskilegt að ferðist með
flugvélum. Annars vegar er um að ræða lista yfir
um 1.000 manns sem er alls ekki hleypt um borð í
bandarískar flugvélar en hins vegar fóik eins og
Barböru og starfsfélaga hennar sem sæta ströngu
eftirliti í hverri ferð en er ekki beinlínis meinað að
ferðast.
„Þetta er listi sem varð til fyrir rúmu ári að
frumkvæði þingsins,“ er haft eftir David Steigman
sem er talsmaður TSA. Hann segir að ýmsar stofn-
anir sem starfa að öryggismálum hafi látið þinginu
í té nöfn til að setja á listann. Þetta eru stofnanir á
borð við FBI og CIA en ekki þarf að hafa séð marg-
ar bíómyndir til að átta sig á því hverrar gerðar
þær eru.
„Við spyrjum ekki hvers vegna fólk sé á listan-
um,“ segir Steigman sem viðurkennir jafnframt að
Transportation Security Administration hafi engar
reglur um hvenær fólk er sett á umræddan lista né
heldur reglur um það hvernig hægt er að komast
af listanum lendi fólk inni á honum.
Grænfriðungar, prestar og nunnur
Um þetta er ítarlega fjallað í vefritinu Salon.com
nýlega og sagt að rannsóknir vefritsins meðal flug-
vallarstarfsmanna sem vinni eftir umræddum lista
leiði í ljós að á honum sé einkum að finna nöfn
presta, nunna, grænfriðunga og virkra mótmæl-
enda í umhverfismálum, vinstri sinnaðra blaða-
manna, hægri öfgamanna og fólks sem hefur tengsl
við baráttusamtök araba í Bandaríkjunum eða eru
þekktir arabavinir.
Virgine Lawinger er nunna frá Milwaukee og
Eftir hryðjuverkin 11. september var öryggi í flugi í Ameríku hert mjög. Þá varð til svartur listi yfir 1000
Bandaríkjamcnn sem er helst ekki hleypt um borð í neina flugvél. Bandarískar leyniþjónustur hafa nýlega
viðurkennt tilvist þessa lista en enginn virðist vita nákvæmlega hvernig hann varð til. Svo virðist sem listinn
hafi meðal annars borist í hcndur íslenskra yfirvalda.
baráttumaður friðarhreyfinga sem kalla sig Peace
Action. Henni og 20 öðrum var meinað að ganga
um borð í flugvél í Washington en erindi þeirra
þangað var að mótmæla fjárveitingu Bandaríkja-
stjórnar til ríkisstjórnar Kólombíu.
Það voru starfsmenn flugfélagsins Midwest Air
og liðsmenn lögreglustjórans á staðnum sem yfir-
heyrðu þau og sögðu þeim að nöfn þeirra væru á
„sérstökum lista.“
Rebecca Gordon og Jan Adams eru bæði blaða-
menn á tímariti í San Francisco sem heitir War
Times og berst gegn þátttöku Bandaríkjanna í
stríðsrekstri. Þau voru stöðvuð á flugvelli nýlega
og sagt að þeirra nöfn væri á sérstökum lista yfir
þá sem ekki mættu fljúga. Eftir að flugfélagið hafði
samband við FBI var þeim sleppt og leyft að ganga
um borð en farangur þeirra sérstaklega merktur til
að tryggja leit.
Listaverkasalinn Doug Stuber, sem starfaði fyrir
framboð Ralphs Naders árið 2000, var stöðvaöur í
desember og meinað að ganga um borð í flugvél til
Hamborgar eftir að öryggisverðir höfðu heyrt
hann segja við ferðafélaga sína í röðinni að Georg
Bush væri heimskur eins og steinn.
Stuber var yfirheyrður lengi dags og missti af
fluginu til Hamborgar. Hann eyddi skömmu síðar
2000 dollururum í viðbót til að fá miða í tíma en
eftir að hafa gert nokkrar tilraunir til að komast
um borð í flugvél á nokkrum flugvöllum í Norður-
Karólínu, þar sem hann var ávallt stöðvaður, gafst
hann upp og fékk miðann endurgreiddan.
Starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar stað-
festi þessa atburðarás í samtali við Salon.com og
taldi þetta hluta af eðlilegum öryggisviðbrögðum.
Pax Ghristi og Falun Gong á íslandi
Meðlimir í samtökum eins og Eagle Forum, sem
eru mjög íhaldssöm, hafa hlotið svipaða meðferð
og meðlimur í Pax Christi sem eru kaþólsk friðar-
samtök. Voru félagar í þeim, sem einnig eru með-
limir í Falun Gong, stöðvaðir á Islandi sl. sumar og
meinað að halda áfram ferð sinni. Það var gert á
grundvelli lista sem bandarísk yfirvöld létu ís-
lenskum yfirvöldum í té.
Hussein Ibish, sem er kynningarfulltrúi fyrir
samtök sem heita American Arab Anti-Discrim-
ination Committe, segir í samtali við Salon.com að
þar á bæ viti menn um 80 tilvik þar sem fólki með
arabísk ættarnöfn eða nöfn sem hljóma undarlega
hafi verið meinað að feröast með flugvélum og í
sumum tilvikum hafi allt að 200 farþegar komið
við sögu.
Þangað til David Steigman viðurkenndi tilvist
svarta listans hafði ekkert yfirvald í Bandaríkjun-
um viljað staðfesta að hann væri til. Steigman hef-
ur ekkert viljað tjá sig um það hvernig listinn er
samansettur en ljóst er að stofnun hans, TSA, læt-
ur flugfélögum hann í té. Richard Bresson, sem er
talsmaður FBI, segir að ekki sé látið uppi hvernig
nöfnum sé safnað á þennan lista en staðfestir til-
vist hans og hefur hvatt þá sem telja að nöfn þeirra
séu þar að ástæðulausu til þess að hafa samband
við Transportation Security Administration.
Barbara Olshansky, sem minnst er á í upphafi
þessarar greinar, segir að það sé nógu slæmt að
slíkur listi skuli vera tfl og gerður af stjómvöldum
án nokkurra reglna.
„Hitt er verra að listanum skuli vera frjálslega
dreift meðal fyrirtækja í flugrekstri þar sem ekk-
ert eftirlit er með því að hann sé ekki misnotaður.
Það hlýtur að ganga gegn ákvæðum stjórnarskrár-
innar um ferðafrelsi.
Olshansky segir enn fremur að nú þegar stjórn-
völd hafí loksins viðurkennt tilvist svarts lista yfir
óæskilega eða hættulega farþega geti fólk hafið
baráttu gegn slíkum lista og hafa þegar nokkur
samtök í Bandaríkjunum tekið höndum saman um
það verkefni. Þar á meðal eru hin fornfrægu
ACLU, American Civil Liberties Union sem berjast
af mikilli einurð fyrir mannréttindum. PÁÁ
(Heimildir: Salon.com)