Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Qupperneq 53
LAUGARD AGU R 8. MARS 2003
H&lQctrblað DV
57
Nýr fjölnota Focus C-Max á að sameina stíl, hagkvæmni og aksturseigin-
leika í einum bíl.
Alfa Romeo sýndi nýja tilraunaútgáfu af jepplingi sem þeir ætla að setja
á markað innan fárra ára.
Renault Scénic II er fimm manna fjölnotabíll en vænta má sjö manna út-
gáfu í haust.
Daewoo Nubira var Evrópufrumsýndur í Genf en hann kemur til Iandsins
í suinar.
Opel GTC Genéve er tilraunabíll en þvkir gefa sterka vísbendingu um
hvernig næsta kynslóð Astra muni líta út.
Fiat frumsýndi tvo nýja smábíla í Genf sem taka eiga við af Panda og
Seicento.
Tryggvi Jónsson, forstjóri Hekiu, var staddur í Genf til að kynna sér Outlander-jepplinginn.
DV-myndir NG
Bílasýningin
í Genf 2003
Einn af senuþjófunum í Genf var
eflaust heimsfrumsýning Audi A3 í
sinni annarri kynslóð. Bíilinn er sá
fyrsti evrópski í langri röð væntan-
legra nýrra kynslóða í þessum flokki
minni fjölkyldubíla, en fljótlega get-
um við átt von á nýjum Golf, Astra,
BMW-1, Focus og Citroen C4 svo eitt-
hvað sé nefnt. Bíilinn minnir nokkuð
á fyrirrennara sinn í útliti en undir-
vagninn er alveg nýr, sá sami og
væntanleg fimmta kynslóð VW Golf
mun nota. Það sem eflaust á eftir aö
greina hann aðeins frá keppinautum
sínum er að hann er lægri sem gefur
honum sportlegt útlit. Innréttingin
er sportleg líka og minnir nokkuð á
innréttinguna í Audi TT sem undir-
strikar sportlegt útlitið enn frekar.
Þessi A3 er líklega síðasti bíllinn frá
Audi til að koma með tvískiptu grflli,
en næstu útgáfur A6 og A4 Coupé
verða með óskiptu grflli. Því má bú-
ast viö andlitslyftingu á A3 fljótlega,
líklega eftir 2-3 ár.
Mitsubishi jepplingur
Mitsubishi frumsýndi nýjan jepp-
ling í Genf sem áður hefur komið á
markað í Bandaríkjunum. BíUinn er
einhvers staðar á milli Subaru For-
ester og Toyota RAV4 í stærð og er
knúinn áfram af tveggja lítra vél
sem skilar 136 hestöflum. Fljótlega
má svo búast við 2,4 lítra vél en bíll-
inn kemur á markað hér í maí.
Einnig frumsýndi Mitsubishi tvo til-
raunabíla sem gefa góða innsýn í
hvernig nýr Colt mun líta út þegar
hann kemur á markað á næsta ári.
-NG
Næsta kynslóð Audi A3 er smekklega hannaður bíll sem kemur fyrst á
markað þriggja dyra.
Mitsubishi sýndi tilraunabíl sem gefur góða innsýn í hvernig nýr Colt
inun líta út þegar hann kemur á markað á næstá ári.
Audi sýndi Nuvolari sem er hönnunarstúdían að útliti bíla Audi í nánustu framtíð.
- _ * _
vj-|' :.V.