Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Síða 54
58
LAUGARDAGUR 8. MARS 2003
HelQarhlað DV
<i Baleno Wagon 4x4.
Skr. 1/99, ek. 79 þús.
kr. 1170 þús.
Suzuki Baleno Wagon, ssk.
Skr. 10/99, ek. 46 þús.
Verð kr. 1170 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Suzuki Swift GX, 5 d., bsk.
Skr. 9/96, ek. 72 þús.
Verð kr. 450 þús.
Suzuki Grand Vrtara V6 2,5, ssk.
Skr. 5/02, ek. 22 þús.
Verð kr. 2650 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk.
Skr. 6/01, ek. 67 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Suzuki Vrtara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 5/00, ek. 49 þús.
Kr. 1360 þús.
Skoda Octavia Elegance, ssk.
Skr. 10/02, ek. 1 þús.
Verð kr. 1890 þús.
Nissan Primera Comf., bsk.
Skr. 7/01, ek. 25 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Daihatsu Feroza SE.
Skr. 7/96, ek. 109 þús.
Verð kr. 580 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////------Í--------
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17, síml 568-5100
Evrópskt yfirbragö hjá Toyota
Bílasýningtn
í Genf 2003
Toyota-menn voru mjög evr-
ópskir í bragði í Genf en þeir eru
nú komnir með nýja bíla í þremur
stærstu flokkunum þar, Corolla,
andlitslyftingu á Yaris og alveg
nýjan Avensis. Hann var Evrópu-
frumsýndur í Genf og er væntan-
legur til landsins fljótlega í fram-
haldinu. Hann kemur í þremur út-
gáfum, stallbaks, hlaðbaks og
langbaks, en hlaðbakurinn mun
ekki vera seldur hérlendis. Til að
geta keppt í þessum sterka flokki
þurfti bíllinn að batna mikið og er
óhætt að segja að því markmiði
hafi verið náð hjá Toyota með
þessum bíl. Hann er örlítið hærri
en samkeppnisaðilarnir og A-biti
framrúðunnar er framar en hjá
samkeppnisaðilunum. Vélarnar
eru þær sömu og í gamla bílnum,
1,8 og tveggja lítra bensinvélar og
einnig tveggja lítra dísilvél og því
vöntun á stærri vél fyrir þá sem
það kjósa. Toyota tilkynnti líka
um að Avensis verður fyrsti bíll
þeirra til að verða fluttur inn til
Japans, en Avensis verður fram-
leiddur í verksmiðju þeirra í Bret-
landi.
Stærri Lexus RX300
Lexus-menn voru meðal þeirra
fyrstu til að kynna lúxusjeppling
árið 1998, Lexus RX300 sem þá
þótti dálítið sér á parti. Á þeim
fimm árum sem liðið hafa hefur
mikið breyst, svo ekki sé meira
sagt og nánast allir framleiðendur
keppast við að bjóða slíka bíla.
Bíllinn var líka á fólksbílagrind-
inni úr Toyota Camry og varð
h^nn því strax þekktur fyrir fólks-
bíla aksturseiginleika. Nú þótti
Lexus tímabært að skipta út þess-
um vel heppnaða bíl fyrir aðeins
stærri útgáfu með öflugri vél.
Nýja vélin skilar 230 hestöflum
við 5600 snúninga. Bíllinn er 150.
mm lengri og 18 mm breiðari en
fyrirrennarinn og hjólahafið er
líka meira eða 10 mm lengra.
Þannig verður hann samkeppnis-
hæfari við aðra lúxusjepplinga
sem komnir eru til sögunnar, eins
og BMW X5 og Volvo XC90. Mesta
útlitsbreytingin er að aftan þar
Allir nú framleiddir og hannaðir í Evrópu, frá vinstri: Toyota Yarisi Corolla og Avensis.
sem afturhurðin hallar mun
meira en áður en flutningsrýmið
hefur samt aukist mikið. Bíllinn
verður betur búinn og má þar
nefna skrikvörn, spólvörn og
átaksdreifingu á hemlum. Hægt
verður að fá hann meö skynvædd-
um framljósabúnaði sem eltir
beygjurnar eftir hreyflngum stýr-
isins. Einnig er hægt að fá bakk-
myndavél sem aukabúnað og
Mark Lewinson hljómkerfi með 11
hátölurum.
Tvinnbflar og vetnisbfll
Framleiðendur Toyota til-
kynntu í Genf um metnaðarfull
áform þeirra varðandi markaðs-
setningu tvinnbílanna, en þegar
hafa verið settir á markað 130.000
slíkir af Toyota og áætlaö er að
300.000 verði komnir á götumar
árið 2005. Mest hefur verið selt af
Prius-tvinnbílnum en vænta má
nýrrar útgáfu hans á næsta ári
sem er stærri en núverandi bíll.
Lexus RX jepplingurinn kemur á
markað í haust sem tvinnbíll líka,
sem er í fyrsta skipti í þessum
flokki. Hann mun koma á markað
í Evrópu á næstu tveimur árum.
Einnig sýndi Toyota hugmynd
sína að vetnisbíl framtíðarinnar
en hann kallast FINE-S og er væg-
ast sagt mjög framúrstefnulegur.
-NG
Lexus RX300 er mi stærri og betur búinn en áður en einnig var þessi
tvinnbíls útgáfa sýnd í Genf.
FINE-S er vetnisbíll framtíðarinnar að mati Toyota.
Sportlegt þema hjá Mercedes og Mazda
Bílasýningin
íGenf 2003
Mazda frumsýndi á sérstökum
blaðamannafundi við Genfarvatn
nýjan tilraunabíl er kaliast Mazda
MX Sportif. Bíllinn þykir gefa
góöa hugmynd um hvemig vænt-
anlegur arftaki Mazda 323 lítur út,
en sá bíll mun einfaldlega verða
kallaður Mazda 3. Líkt og á öðrum
tilraunabílum í þessum flokki,
sem sýndir vom á bílasýningunni
í Genf, bílum eins og Opel GTC og
Nissan Evalia, er Mazda MX
sportlegur hlaðbakur með áherslu
á stíl og gott innanrými. Bíllinn
líkist nokkuð Mazda 6 í útliti sem
gefur til kynna að hann muni ekki
breytast mikið í endanlegri út-
færslu sinni. MX Sportif er með
tveggja lítra MZR vél sem er af
nýrri kynslóð Mazda-véla. Við
hana er fimm gíra beinskiptur
kassi og til að auka öryggið er
búið að koma fyrir skrikvöm.
Opinn Mercedes CLK
BlæjubOar em ailtaf vinsælir í
Genf enda markar sýningin sum-
artískuna í bílaiðnaðinum og þar
em árlega veitt verðlaun fyrir opna
bU ársins. Mercedes-Benz frum-
sýndi þar CLK-bUinn sem er með
rafdrifinni blæju, ólíkt því sem
flestir framleiðendur hafa gert að
undanfomu, að bjóða upp á bUa
með feUanlegum stáltoppi. Blæjan
er þó í mörgum lögum svo að hún
heldur betur hita og einangrar bet-
ur hávaða en hefðbundnar blæjur.
Með því að ýta á einn takka feUur
toppurinn niður í skottið og upp
koma veltibogar fyrir aftan fram-
sætin. Einnig er hægt að gera þetta
með fjarstýringunni úr lyklinum.
Bíllinn tekur fjóra í sæti og tvöfold
loftræstingin er með sérstakan
blásara fyrir afhu'sætin líka. Far-
þegamir era vemdaðir með sex ör-
yggispúðum, flóram frammi í og
tveimur aftur i. Undir húddinu er
hægt að velja um annaðhvort 215
hestafla V6 vél eða fimm lítra V8
vél sem skUar 302 hestöflum. Báðar
nota fimm þrepa valskiptingu. -NG
Mercedes frumsýndi CLK með blæju til að fagna vorinu í Genf.
Mazda MX Sportif er nánast eins og Mazda 3 mun líta út en hann var
forsýndur kvöldið fyrir bílasýninguna í Genf.