Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Blaðsíða 22
22 Helcjarblcjö H>”V" LAUGARDAGUR IO. MAÍ 2003 ... ldkt í snvrtibudduna Dior-meik „Síðan vinkona mín kynnti mig fyrir t; Dior-vörunum hef ég svo til eingöngu not- fPSHBB ~ aö snyrtivörur frá þvi merki. Það kom mér ” ' óvart, miðað hvað útlitið á þessum vörum er smart og vörurnar góðar, hversu gott verðið er á þessari línu. Farðinn minn er því að sjálfsögðu frá þeim, Dior skin fluide en hann er náttúrulegur, léttur og fer vel með húðina.“ Grár blýantur á augun „Á augun nota ég svartan MaxiMeyers maskara sem þéttir og lengir augnhárin. Það sem er líka gott við hann er að það er mjög auðvelt að ná honum af. Síðan nota ég gráan augnblýant í stað þess aö nota svartan því svartur dregur augun saman en grár blýantur dregur fram græna litinn í augunum á mér.“ Vatnskennt krem „Ég vil ekki venja húðina á mér á of mikið á krem en hef þó notað Dior ‘Od sem er að mestu leyti unnið úr vatni og er mjög nátt- úrulegt. Þetta andlitskrem er ekki feitt og smýgur vel inn í húðina.“ J’adore frá Dior „Ég nota ekki mikið ilmvötn og eiginlega finnst mér erfitt að finna ilmvatn sem ég kann vel við. Ég var að fá mér þetta ilmvatn en það er glænýtt frá Dior. Lyktin af því er létt og fersk og gefur manni hreinleikatilfinningu.' Dior addict ultra gloss nr. 151 „Vinkona mín keypti þetta handa mér í fríhöfninni. Ég er mest fyrir ljósa liti á varirnar og þetta gloss er svona „sparkling“. Það helst vel á, rennur ekki af og er bragðgott. Sem sagt sérlega notendavænt.“ Hin 22 ára gamla Jónína Björk Vilhjálms- dóttir lenti íöðru sæti íUngfrú Island.is fyrir skömmu. Eftir stress íkringum feg- urðarsamkeppnina hafa tekið við annars konar annir hjá henni en hún er þessa dagana að leggja lokahönd á lokaverk- efni 2. árs íviðskiptafræði við Háskólann íReykjavík. Með skálanum hefur Jónína einnig verið að vinna íversluninni Brim en ísumar mun hún vinna íBúnaðar- bankanum. í Til eru rnargar aðferðir til þess að ná flottri bikinílínu og verður hver og ein kona að finna hvaða aðferð hentar henni best. Konan á myndinni er með frjálslega útgáfu af bikinílínu en myndin er tekin af norsku póstkorti sem gefið var út á kvennafrídaginn fyrir nokkrum árum. Skilaboð póstkortsins eru þau að karlmenn ættu ekki að hafa leyfi til þess að segja neitt um líkamshár kvenna f\’rr en þeir hafi sjálfir prófað að vaxbera á sér punginn. Líkamshár er nokkuð sem margar konur láta fara i taugarnar á sér. Ýmsar aðferðir eru íboði til þess að losna við hárin, svo sem rakstur, vax, plokkun og leysigeislar - en íflestum tili/ikum vaxa þau alltaf aftur. A markaðinn eru nú komnar vörursem nota á ítengslum við háreyðingu sem kallast Kaló og segir innflytjandinn þær vera mjög árangursríkar. Hárlaus húð „Kaló-vörurnar eru notaðar í tengslum við fjarlæg- ingu hárs. Þegar hár er fjarlægt helst hársekkurinn opinn í um 48 klst. og er því móttækilegur fyrir efn- inu,“ segir Hallsteinn Gestsson, innflytjandi Kaló-var- anna. Að hans sögn eru vörur þessar, sem seldar eru í krem- og úðaformi, bornar á líkamann eftir háreyð- ingu, helst regulega í tvo sólarhringa eftir vax eða rakstur. Þess á milli þýðir ekkert að nota vörurnar þar sem gagnsemi þeirra er bundin við að smjúga niður í hársekkinn þar sem efnið kemur i veg fyrir myndun brennisteins sem er nauðsynlegur þáttur í endurnýjun hársins. Úði og krem Kaló-vörurnar koma frá Kanada og eru þróaðar af þarlendum vísindamönnum, en fyrirtækið sem fram- leiðir þær framleiðir einnig vörur sem auka hárvöxt. Kalólínan hefur verið á markaðinum frá 1997 og fæst nú í meira en 30 löndum. í Kaló-línunni er að finna þrjár vörutegundir: Kaló- krem, Kaló-úða og Kaló-meðhöndlun. Kaló-kremið og Kaló-úðinn gera sama gagn og eru borin á þau svæði þar sem hári hefur verið eytt. Úðinn hentar augljós- lega á stærri svæði, eins og læri og fótleggi, en krem- ið er hentugt t.d. á efri vör og augabrúnir. Kaló-með- höndlun er hins vegar meðferð gegn inngrónum hár- um en hún kemur í veg fyrir roða, bólur og aðra ert- ingu sem fylgir rakstri og háreyðingu. Vörur þessar fást á íslandi í gegnum heimasíðuna www.fegrun.is en auk þess er varan fáanleg á nokkrum snyrtistofum á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. „Ég veit að starfsmenn snyrtistofunnar Dekurhornsins í Faxa- feni hafa notað vörurnar á sína viðskiptavini eftir háreyðingarmeðferð méð góðum árangri," segir Hall- steinn sem mælir með því að úðinn og kremið séu notuð saman til að ná sem bestum árangri. Lyktarlaus jurtaefni Að sögn Hallmars á hárvöxturinn að minnka um 10-15% þegar vörurnar eru notaðar í tengslum við háreyðingu og með reglulegri notkun eiga vörurnar því að draga verulega úr hárvexti. Hann bendir á að vörumar henti jafn vel fyrir bæði kynin og séu t.d. al- veg kjörnar fyrir iþróttafólk sem vill hafa hárlausan líkama. Það kemur blaðamanni á óvart hversu lyktar- lausar vörurnar eru en flest háreyðingarefni hafa mjög sterka lykt. „Það eru bara náttúruleg jurtaefni í vörunum og valda þær því ekki ertingu í húöinni," segir Hallmar og bendir á að óhætt sé að nota vörurn- ar á alla hluta líkamans þar sem hár er að finna. Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér þessar vörur betur er bent á heimasíðuna www.fegrun.is og www.kalo.ca, en fróðlegt er að geta þess að í Kanada bjóða seljendur upp á endurgreiðslu til þeirra kaup- enda sem engan árangur sjá af notkun varanna - nokkuð sem hlýtur að teljast ákveðin meðmæli út af fyrir sig. -snæ Kaló-vörumar eru sagðar minnka hárvöxt nieð reglu- legri notkun samhliða háreyðingu. Þær snijúga niður í hársekkinn og koma í veg fyrir brennisteinsmyndun sem er nauðsynleg til þess að hárið geti endumýjað sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.