Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Blaðsíða 50
54 H e lc) o r b /o c) TDTSr LAUCARDACUR IO. MAÍ 2003 > -> > Kynlífsþögnin rofin Svo virðist sein aðaláherslan sé lögð á kynfærin, getnað og æxlun í kynfræðslu íslenskra grunnskólabarna en minni áhersla liigð á siðfræði kynlífsins. Iiér má sjá indversk skólabörn fá kynfræðslu í borginn Bombav en þar er að finna stórt og mikið kynlífsssafn þar sein ekki bara unglingar heldur fólk á ölluin aldri getur fræðst um kynlíf. Reuters Hverniq útskýrir þú fullnægingu fgrir // ára gömlu barni? Er rétt að segja ungling- um frá þwíhversu gott það sé að stunda kgnlíf? £r endaþarmskgnlíf eðlilegt? Þetta er bara brot af þeim spurningum sem þrjár konursem ferðast hafa á milli grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu í vetur hafa fenqið frá foreldrum qrunnskólabarna. Konurnar hafa boðið upp á fræðslukvöld þar sem for- eldrar og börn þeirra eru leidd saman íum- ræður um kgnlíf. Markmiðið er að rjúfa þögnina á heimilinu svo foreldrar og börn þeirra geti talað betur saman um þessi mál. „Rannsóknir sýna að ef foreldrar ræða við ungling- ana sina um kynlíf þá eru meiri líkur á því að þeir fari að stunda kynlíf seinna, að þeir verði ábyrgari í kynlífi og noti frekar getnaðarvarnir. Það er afskap- lega mikilvægt fyrir foreldra að vita þetta því það get- ur breytt viðhorfum þeirra til kynfræðslu barna sinna. Það er sem sagt hægt að ræða við börnin okk- ar um kynlífslöngun, ást og gagnkvæma virðingu og að báðir aðilar eigi alltaf að fá jafnmikið út úr kyn- lífi, með góðri samvisku. Við þurfum ekki að vera hrædd um að við séum samtímis að ýta börnunum okkar allt of snemma út á kynlífsmarkaðinn, heldur þvert á móti. Opin og jákvæð umræöa inni á heimil- unum um þessi mál eins og önnur mál hefúr þegar allt kemur til alls mikla og jákvæða þýðingu.“ Þetta segir félagsfræðingurinn Sigurlaug Hauksdóttir sem ásamt þeim Guðbjörgu Eddu Hermannsdóttir félags- ráðgjafa og Dagbjörtu Ásbjömsdóttir, verkefnisstjóra ÍTR, stendur fyrir fræðslukvöldum um samskipti for- eldra og unglinga um kynlíf. Fræðsla þessi er ætluð nemendum í 7.-10. bekk grunnskóla þar sem foreldr- ar og unglingar koma saman til að ræða um kynlíf. Um er að ræða eina kvöldstund, um ein og hálf klukkustund þar sem þau hlýða á fyrirlestur en er síðan skipt upp í vinnuhópa. Foreldrar og unglingar eru sitt í hvorum vinnuhópnum en að lokum eru hóp- arnir sameinaðir og frarn fara paliborðsumræður. „Kynlíf er viðkvæmt málefni og oft og tíðum mikið feimnismál, jafiit fyrir fullorðna sem unglinga. Það reynist foreldrum og unglingum oft erfitt að ræða saman um málefni er lýtur að kynlífi en það er þessi þögn sem við erum að reyna að rjúfa með fræðsl- unni,“ segir Dagbjört. „Við erum að hjálpa foreldrun- um að fmna út hvert hlutverk þeirra sé varðandi kyn- fræðslu í lífi unglingsins og tölum um þær leiðir sem hægt er að fara til þess að tala við böm sín um þessi mál og ekki síst hvað þarf að tala um. Við tölum svo um sama efni við unglingana, hvemig þeir geta talað við foreldra sína um þessi mál,“ segir Guðbjörg. Reynsluheimar foreldra og bama tengdir Það að þessar þrjár konur taka sig saman og ákveði að brúa bilið milli foreldra og bama hvað kynfræösl- una varðar upp á sínar eigin spýtur sem freelance- fyrirlesarar má rekja til sameiginlegs áhuga þeirra á kynfræðslu. Guðbjörg vann í 7 ár á kvennadeildinni sem félagsráðgjafi þar sem hún talaði við konur á öll- um aldri sem voru á leið í fóstureyðingu. „Þar hitti ég mikið af ungum stelpum sem höfðu ekki treyst sér til að leita til foreldra sinna og ræða um þessa óvel- komnu þungun. Þannig kviknaði áhugi minn á kyn- fræðslu og ég fann þörf á því að brúa þetta bil milli foreldra og bama,“ segir Guðbjörg. Dagbjört heftu- nokkuð annan bakgrunn en hún hefur unnið fyrir íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur í á fimmta ár, þ.á m sérstaklega unnið að málefnum er varða kynlíf og kynhegðan unglinga. Hún hefur nýlokið við mastersgráðu í kynja- og kynlífsfræðum þar sem meginviðfangsefni lokaritgerðarinnar var kynhegðun og sjálfsmynd íslenskra unglinga. „Ég hef verið að vinna með HIV-jákvæða síðan 1997 á Landspítalanum og þar hef ég séð fólk sem hefur smitast af alvarlegum kynsjúkdómiun auk þess sem hef ég unnið í Neyðarmóttökunni vegna nauðgana en stærsti hópurinn sem leitar þangað em einmitt ung- ar stúlkur, 18 ára og yngri. Þessi störf kveiktu hjá mér áhuga á því að leggja mitt af mörkum til þess að fyrirbyggja að svona lagað gerist," segir Sigurlaug, aðspurð um sinn bakgrunn, og bætir við: „Maður veit að foreldramir geta gert meira en þeir em að gera því það era þeir sem standa bömum sínum næst og sem bömin líta upp til og þeir em nú þegar að gera marga góða hluti með þeim.“ Meginmarkmið fræðsl- unnar er að sögn kvennanna að koma á tengslum milli foreldra og unglinga varðandi kynlíf sem liðs í forvömum. „Ég verð mikið vör við samskiptaleysi unglinga og foreldra í málefnum er varða kynlíf í gegnum starf mitt hjá ÍTR. Þegar ég hef bent ungling- um á mikilvægi þess að ræða við foreldra sína um kynlíf fæ ég stöðugt þau viðbrögð að þeim fmnist það ekki viðeigandi. Mikilvægt er að tengja þessa tvo reynsluheima og það gemm við með þessari fræðslu. Þarna gefst tækifæri til að leiða saman foreldra og unglinga á hlutlausum vettvangi þar sem við rjúfum þögnina þeirra á milli. Þetta verður þess valdandi að þegar þau koma heim gefst tækifæri til að ræða þessi mál enn frekar án feimni," segir Dagbjört og bætir við að þær hafi ekki fengið önnur en jákvæð viðbrögö frá bæði foreldum og unglingum við þessari fræðslu. Hræða krakkana frá liynlífi Kynfræðsla er partur af námsefni allra gmnnskóla en það er þó misjafnt hvenær hún hefst og hvemig skólamir taka á þessum málum. En er sú kennsla ekki nóg fyrir krakkana, verða foreldrar endilega aö standa fyrir einhverri aukakennslu á þessu sviði? „Auðvitað ættu foreldrar og skóli líka að hafa um þetta samvinnu eins og svo margt annað. Ég tel afar misjafnt hvað skólamir eru að leggja mikla áherslu á þennan þátt, flestir era að fræða um líffræði kynlífs, t.d. kynfærin, getnað og æxlun, en minni áhersla er lögð á siðferði kynlífsins.“ Þetta segir Sigurlaug og bendir á að mörgum finnist mjög erfitt að ræða þessi mál, kennurum líka og það geti orðið til þess að það sé minna tekið á þessu en ætti að vera. „Unglingun- um fmnst heldur ekki nóg að heyra bara talað um getnaðarvamir og sjúkdóma og það sem neikvætt er í kynlífi, þótt það sé mikilvægt líka. Þeir era líka að velta fyrir sér ýmsu öðra, eins og hvað sé gott kynlíf og hvemig maður eiginlega stundi það svo vel sé. Oft geta þeir verið með brennandi spurningar sem þá langar að tala um við foreldra sína en þora ekki að taka af skarið. Þess vegna getur frumkvæði foreldr- anna á þessu sviði verið nauðsynlegt. Ég held að for- eldrar vilji gjama vera þeir sem helst sinna kyn- fræðslu bama sinna og telji sig gjama gera það. Það er mjög eðlilegt þar sem það era þeir sem bera höfuð- ábyrgð á sínum bömum og standa þeim næst,“ segir Sigurlaug. „Eitt stærsta viðfangsefni kynlífs er eflaust sið- fræðin. í dag þurfa unglingar allra helst að fá þau skilaboð frá umhverfmu að þeir ráði ferðinni, þeir hafi þann valmöguleika að velja og hafna í málefnum er varöa kynlíf. Kynlíf er gott og á að vera ánægju- legt. Þetta era mjög mikilvæg skilaboð sem við þurf-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.