Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2003, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003
T>V
Fréttir
í fyrsta skipti verður engin kjördeild í Hnífsdal:
íbúar ósáttir og íhuga að Kjósa ekki
íbúar í Hnífsdal á Vestfjörðum
eru mikið fyrir að halda í hefðina
og þar hafa menn ætíð haft sína
eigin kjördeild fyrir kosningar.
Fyrir nokkrum áratugum sam-
einuðust byggðirnar í Skutuls-
firði í eitt sveitarfélag, ísafjarðar-
kaupstað, en alltaf héldu Hnífs-
dælingar sinni kjördeild. Nú hef-
ur hins vegar bæjarstjórn ísa-
fjarðarbæjar samþykkt tillögur
yfirkjörstjórnar þess efnis að
kjördeildin fyrir íbúa Hnífsdals
verði í grunnskólanum á ísafirði
og er það i fyrsta skipti sem það
hefur verið gert. Um 300 manns
búa í Hnífsdalnum og eru 177
manns á kjörskrá. íbúar þar eru
ekki ánægðir með þessa ákvörð-
un og heyrst hefur að einhverjir
þeirra muni jafnvel ekki kjósa í
dag vegna þessa.
Margrét Skúladóttir Hnífsdæl-
ingur sagði í samtali við DV í
gær að gömul hefð væri fyrir því
að hafa kjördeild í Hnífsdal og
því væru menn afar ósáttir við
þessa ákvörðun bæjaryfirvalda á
Isafirði. „Hnífsdalur er aðeins
fimm kílómetra fyrir utan ísa-
fjörð en þetta er spurning um
prinsipp hjá okkur og við viljum
halda í hefðina," sagði Margrét.
„Við erum ekkert endilega að
tala um að það þurfi að vera opið
I tólf klukkutíma heldur dygði til
dæmis að hafa opið í tvo til þrjá
tíma bara til þess að fólk gæti
mætt á staðinn og kosið.“ Spurð
sagðist Margrét ekki vera búin
að ákveða hvort hún myndi gera
sér ferð til ísafjarðar til þess að
kjósa. „Þetta er spurning um
hversu þrjósk ég verð. Ég veit
um marga sem hafa sagst ætla að
vera heima á kjördag en svo get-
ur vel verið að þeir hafi í staðinn
kosið í utankjörfundaratkvæða-
greiðslunni hjá sýslumannin-
um,“ sagði Margrét.
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri ísafjarðarbæjar, sagði að yf-
irkjörstjórn hefði lagt fram þessa
tillögu og hefði hún verið sam-
þykkt þar sem
menn hefðu
talið að þetta
myndi ekki
breyta neinu
fyrir íbúana,
enda um mjög
stuttar vega-
lengdir að ræða.
Hann benti þó á
að Hnífsdalur
væri gamalt
byggðarlag með sínar hefðir og
skildi hann því vel gremju þeirra.
Hins vegar hefðu menn ekki séð
fyrir að ákvörðunin myndi hafa
þessi áhrif og þætti honum það
mjög miður. -eká
Halldór
Halldórsson.
Bankastræti:
Vepslunareigendup
fagna fpamkvæmdum
Eins og borgarbúar hafa ef-
laust tekið eftir standa yfir
miklar lagfæringar i Banka-
strætinu. Götunni hefur verið
lokað og vinnutæki og tól eru
þar allsráðandi. Aðgengi að
verslununum er því ekki eins
og best verður á kosið en þrátt
fyrir það kvarta verslunareig-
endur ekki heldur fagna margir
þeirra því að verið sé að fegra
borgina. Einn þeirra er Sævar
Karl Ólason sem rekur verslun
og gallerí í götunni. „Þetta er
eins og alltaf þegar fólk er aö
laga til hjá sér þá er alltaf drasl
á meðan,“ sagði hann þegar DV
náði tali af honum í gær.
„Framkvæmdirnar eru á áætl-
un og allt er til fyrirmyndar.
Ég fagna þessum aðgerðum og
hlakka til að sjá hvað allt verð-
ur fínt að þeim loknum." Sæv-
ar sagði að aðgengi að verslun-
unum væri gott þar sem ágætar
brýr hefðu verið settar upp fyr-
ir framan þær. „Verktakarnir
eru búnir að standa sig mjög
vel og þegar einhver kemur að
versluninni hætta þeir alltaf að
vinna svo að fólk geti komist
inn. Þetta líkist nánast móttök-
um þjóðhöfðingja," sagði hann.
Hann sagðist ekki hafa fundið
mikið fyrir því að viðgerðirnar
hefðu haft áhrif á reksturinn.
„Það er helst að túristunum
hafi fækkað því þeir finna okk-
ur ekki. Hins vegar var ég að
fá yfirlit frá Taxfree þar sem
fram kom að við værum með 60
prósent af allri túristaverslun á
Laugaveginum þrátt fyrir þess-
ar raskanir. Ég get því ekki
kvartað og ég mun bjóða viö-
skiptavinum mínum í heljar-
innar veislu þegar þessu lýk-
ur,“ sagði Sævar Karl aö lok-
um. -EKÁ
Viðgerðir í Bankastræti
Bankastræti hefur veriö iokaö um hríö vegna viögeröa og stendur til aö þeim ijúki 17. júní.
DV-MYND GVA
Olíubíll valt á Kjalarnesi
Stór olíubíll, fullur af gasolíu,
valt á Kjalarnesi um klukkan
fimm í gærdag. Bíllinn mun hafa
runnið á hliðina út af veginum er
vegkantur gaf sig. Að sögn
slökkviliðsins í Reykjavík voru
þrjú þúsund og fimm hundruð
lítrar af gasolíu í bílnum og mikil
mildi að ekki fór verr. „Bíllinn
valt rétt vestan við áhaldahúsið á
Brautarholtsveginum.“ Að sögn
slökkviliðsmanna urðu ekki slys
á mönnum og ekki var heldur
sjáanlegt að leki hefði komið að
tanknum þannig að ekki er reikn-
að með mengun af völdum slyss-
ins. -Kip
DV-MVND ÞÖK
Mlldi að ekki fór verr
Olíubíll, fullur af gasolíu, valt á Kjalarnesi í gærdag. í bílnum voru þrjú þús-
und og fimm hundruö lítrar afgasolíu.
Terra Nova og Portúgal:
um nýtt hótel
Nýtt hótel Terra Nova Sól í Portúgal
íbúöahóteliö Hotel Vila Petra veröur nú helsti gististaöur íslendinga á
Albufeira í Portúgal.
Samið
Ferðaskrifstofan Terra Nova Sól
hefur gert nýjan samning um gist-
ingu farþega sinna á hinum vin-
sæla ferðamannastað, Albufeira í
Portúgal. Samningurinn er við
íbúðahótelið Hotel Vila Petra sem
nú verður helsti gististaður ís-
lendinga á þessum slóðum. Á
sama tíma hefur Terra Nova-Sól
slitið samningum við Paraiso de
Albufeira-íbúðahótelið sem í gildi
hafa verið undanfarin tvö ár.
Við val á þessum gististað eru
hafðar í huga allar þær kröfur
sem til að mynda fjölskyldufólk
gerir. Vila Petra er fjögurra
stjarna glæsilegt íbúðahótel með
afar vönduðum íbúðum. Þá eru
þar veitingastaður, sundlaug, leik-
herbergi barna og margt fleira -
einnig stór og glæsilegur sund-
laugargarður og tennisvöllur.
Að sögn Goða Sveinssonar,
markaðsstjóra Terra Nova-Sólar,
þá er ferðaskrifstofan afar stolt að
hafa náð samningum við Vila
Petra. „Markmið okkar er að
bjóða aðeins það besta sem völ er
á hverju sinni á hverjum áfanga-
stað. Við teljum aö með Vila Petra
séum við nú með slíkan gististað
undir höndum enda viðtökur á
fyrstu tveimur dögum í sölu afar
góðar."
í gegnum tíðina hefur sólarbær-
inn Albufeira verið einn vinsæl-
asti viðkomustaður íslenskra
ferðamanna erlendis og þúsundir
fólks héðan sótt þar í sól og sælu.
Farþegar Terra Nova-Sólar fljúga
til Portúgals í beinu dagflugi með
íslandsflugi. -sbs
Upplýsingap um kjöp-
deildlp og kjöpstaðl
í gærmorgun hafði verið flett
rúmlega 25 þúsund sinnum upp í
kjörskrá Reykjavíkurkjör-
dæmanna á vef Reykjavíkurborg-
ar. Kjörskráin var sett á veflnn
þann 30. apríl sl. og hafa fletting-
ar verið 1 til 3000 á hverjum degi
síðan og farið fjölgandi síðustu
daga. Til þess að fletta upp í kjör-
skránni á vefnum þarf einungis
að fara á www.reykjavik.is, fara
inn á kjörskrá 2003, slá inn
kennitölu eða nafn og heimilis-
fang og þá fást upplýsingar um
þann kjörstað sem kjösa skal á og
i hvaða kjördeild. í ljósi þess að
Reykjavík er nú í fyrsta sinn
skipt í tvö kjördæmi er nokkuð
um að fólk sé í vafa um hvoru
kjördæminu það tilheyrir og
kemur þessi mikla aðsókn að raf-
rænu kjörskránni því ekki á
óvart. Kjörskráin verður opin á
vefnum í dag þar til kjörstöðum
verður lokað en nánari auglýsing
um kjörstaði í Reykjavík er
einnig í DV í dag. -EKÁ
Menntaskólinn á Akureyri:
Jón Már veröur
skólameistari
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra hefur skipað Jón
Má Héðinsson í embætti skóla-
meistara Menntaskólans á Akur-
eyri frá 1. ágúst nk. Jón Már hóf
störf hjá MA árið 1980 og hefur
gegnt embætti aðstoðarskóla-
meistara frá árinu 1996. Alls
sóttu sjö um embættið en skóla-
nefnd var einróma í umsögn
sinni til menntamálaráðherra að
Jón Már yrði skipaður í embætt-
ið.
Byrgið fær nýtt húsnæði:
Þakkap fypjp
stuðning og velvild
Byrgið hefur
skrifað undir
samning við
Fasteignir rík-
isins vegna
Efri-Brúar sem
fjármálaráðu-
neytiö keypti á
dögunum sem
meðferðarheim-
ili fyrir Byrgið.
Byrgið hefur
haft aðsetur sitt í Rockville en
mun yfirgefa það 1. júní nk. Þá
er verið ganga frá afnotasamn-
ingi á húseign Landspítala - há-
skólasjúkrahúss á Vífilsstöðum
sem heilbrigðisráðuneytið,
sjúkrahúsið og Byrgið koma að.
í næstu viku verður síðan und-
irritaður þjónustusamningur á
milli félagsmálaráðuneytisins og
Byrgisins vegna vistunar 55 ein-
staklinga í hverjum mánuði.
Áfangahús verður starfrækt á
vegum Byrgisins í Reykjavík
fyrir 20 manns og einnig er í
undirbúningi samningur á veg-
um dómsmálaráðuneytisins og
Byrgisins vegna fanga í fíkn. I
tilkynningu frá Byrginu þakkar
Guðmundur Jónsson forstöðu-
maður íslensku ríkisstjórninni,
forsvarsmönnum Landspítala -
háskólasjúkrahúss, Pokasjóði
verslunarinnar og öðrum fyrir-
tækjum og einstaklingum fyrir
einstakan stuðning og velvild í
garð Byrgisins. -EKÁ
Guðmundur
Jónsson.