Dagblaðið - 11.12.1978, Side 8
8
Gætum f ramleitt okkar eigið eldsneyti:
Aðeins 16 krónum
dýrara en innflutn-
ingsverðið á bensíni
Islendingar gætu framleitt sjálfir
eldsneyti á bíla sína, önnur farartæki
og til eigin nota fyrir aðeins 56 krónur
á hvern lítra eldsneytis. Þetta er aðeins
16 krónum hærra en innflutningsverð
var á bensínlítranum I september, en
útreikningurinn á hugsanlegum fram-
leiðslukostnaði eldsneytis mun gerður
um svipað leyti og því sambærilegur
við þá tölu.
Þetta kemur fram í skýrslu dr.
Ágústs Valfells verkfræðings á
horfum í islenzkum efnahagsmálum
árið 2000, sem DB gat um fyrir
helgina. Ágúst nefnir til samanburðar
að „meðal-innflutningsverð” á bensíni
og olíu hafi verið um 33 krónur á litra
er hann gerði skýrslu sína, eða 23
krónum lægra en við gætum sjálfir
framleitt á.
Verðmunurinn er ekki geipilegur
þegar haft er í huga að bensínlítrinn
nálgast nú 200 krónur. Meirihluti
verðsins felst í gjöldum til hins
opinbera.
Dr. Ágúst ræðir ýmsa möguleika,
svo sem framleiðslu rafmagns á bíla,
en þá þyrfti að endurnýja bilaflotann
ef gera ætti slíkt i rikum mæli. Þá
mætti nota rafmagnið til vetnisfram-
leiðslu og nota vetnið sem eldsneyti en
breyta þyrfti vélabúnaði í farartækjum
koma með nýjar flugvélategundir,
o.s.frv. yrði slíkt gert. Því mætti enn-
fremur nota vetnið sem hráefni, ásamt
kolefni, til að framleiða eldsneyti, svo
sem metanól (tréspiritus), bensin,
gasolíu og aðrar olíutegundir.
Hagnaðurinn við framleiðslu bensíns
og oliu yrði aðllega að þá þyrfti ekki að
breyta vélabúnaði farartækja. Dr.
Ágúst reiknar síðan framleiðsluverð á
eldsneyti i verksmiðju sem reist yrði á
lslandi, eins og að framan greinir.
Olíuskortur muni á næsta áratug
valda miklum verðhækkunum á olíu
og bensini á heimsmarkaði Þá verður
hagkvæmni af eigin eldsneytisfram-
leiðslu sífellt meiri og íslenzka verðið
stöðugt aðgengilegra. Ekki sé ráð
nema I tíma sé tekið. Virkja mætti
um 1500 megav. til eldsneytsifram-
leiðslu og yrðu samt eftir 1500 mega-
vött af ónytjaðri vatnsorku ásamt
4500 megavöttum af jarðvarma, sem
mundu duga til að reka orkufrekan
iðnað er gæti séð um 70.000 manns
fyrir lifsviðurværi.
•HH.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
............ “IIJ\
LTÖMA
jólaleíkur
350.000 króna verðlaun
Sendu smelliö svar og reyndu aö vinna til Þu þarft aðeins aö svara eftirfarandi
Ljóma verðlaunanna fyrir jól! spurningu:
HVERS VEGNA HEFUR LJÓMA VERIÐ
LANG MEST SELDA SMJÖRLÍKIÐ Á
ÍSLANDI UNDANFARNA ÁRATUGI?
I. VERÐLAUN — TVÖ-HUNDRUÐ-ÞÚSUND KRÓNUR
II. VERÐLAUN — EITT-HUNDRAÐ-ÞÚSUND KRÓNUR
III. VERÐLAUN — FIMMTIU-ÞÚSUND KRÓNUR
smjörlíki hf.
Sendu svar þitt — í bundnu máU eóa
óbundnu — merkt: Jólaleikur Ljóma,
pósthólf: 5251, deild e, 105 Reykjavík.
Svarið verður aö hafa borist okkur
■þann 18. desember 1978.
Nær400
loðnusjómenn í
höfnáísafirði:
Mikil ölvun,
slagsmál
og róstur
á ísafirði
Mjög annasamt var hjá Isafjarðarlög-
reglunni um helgina, enda 23 loðnubát-
ar i höfn og engir dansleikir í ná-
grenninu á laugardagskvöld.
Skarphéðinn Njálsson, yfirlögreglu-
þjónn á ísafirði, sagði að ölvun af þess-
um sökum hefði verið mjög mikil á
föstudagskvöld og fram á laugardag,
þegar bátarnir héldu á miðin á ný eftir
vikulanga brælu. Hætt er við að
einhverjir sjómannanna hafi verið held-
ur framlágir þegar haldið var úr höfn.
Skipverjar á bátunum voru á fjórða
hundrað. „Það urðu engin slys á
mönnum vegna þessa,” sagði
Skarphéðinn, „en fangageymslur okkar
margsetnar um nóttina. Þá var talsvert
um róstur og slagsmál hér og þar í
bænum og að sjálfsögðti mikið ónæði.”
Veður var gott á Isafirði þessa nótt og
því hægt að vera úti alla nóttina. Sex
lögreglumenn eru á isafirði og höfðu
þeir meira en nóg að gera.
Þá gerðist það á Suðureyri við Súg-
andafjörð um kl. sex á laugardags-
morguninn að ekið var á kyrrstæðan bíl
og slasaðist ökumaðurinn smávægilega.
Farþegi sem með honum var slapp
ómeiddur. Grunur leikur á að öku-
maðurinn hafi verið undir áhrifum
áfengis.
ÓV.
p.