Dagblaðið - 11.12.1978, Page 27

Dagblaðið - 11.12.1978, Page 27
Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir ístigakeppni heimsbikarins Sænski heimsmeistarínn i alpagreinum á skíðum, Ingemar Sten- mark, hafði hreint ótrúlega yfirburði í fvrstu grein heimsbikarans, stórsvigi, i Schladmingen í Austurriki á laugardag. Var næstum tveimur sekúndum betri en Peter Liischer, Sviss, sem varð í öðru sæti. t stigakeppni heimsbikarsins er Stenmark samt 20 stigum á eftir Sviss- lendingum. Brun var á sunnudag og Petcr Luscher renndi sér þar niður brekkuna. Hann varð I 37. sæti og það nægði honum til að sigra samanlagt og hljóta 25 stig fyrir. Nýja stigakerfið, scm keppt er eftir, virðist þvi hrein endaleysa eins og austurríski brunkóngurínn, Franz Klammer, og margir fleiri hafa bent á. Stenmark neitar enn að keppa i bruninu hvað sem síðar verður á keppn- istímabilinu. 1 keppninni á laugardag var Ste'nmark i algjörum sérflokki og ótrúlegt hvað yfirburðir hans eru miklir, þar sem allir beztu skiðamenn heims eru mættir til leiks. Stenmark keyrði fyrri umferðina á 1:28.80 mín. og hafði þá þegar náð 1.56 sek. í forustu. 1 síðari umferðinni tók hann enga áhættu en náði samt bezta timanum þar einnig. Mjög óvænt varð ítalinn Leonard Davido, sem aðeins er 18 ára, með annan bezta timann og náði þriðja sæti samanlagt. Stenmark keyrði á 1:33.44. Ítalinn á 1:33.66 mín. Timi Stenmark var því samanlagt 3:02.24 mín. Peter Luscher varð annar á 3:04.10 min. og Davido þriðji á 3:04.37 mín. Siðan komu Jena-Luc Fournier, Sviss, Piero Gros, Ítalíu, í fjórða og fimmta sæti. Olympiumeistarinn Heini Hemmi, Sviss, varð níundi, Andreas Wenzel, Lichtenstein, fjórtándi á 3:08.42 min Gustavo Thöni, Ítalíu, 15. á 3:08.72 min. Paul Frommelt, Lichtenstein, 16. Phil Mahre, USA, 18. Odd Sörli, Noregi, 19. og Peter Popangelov, Búlgaríu, sem sigraði Sten- mark á dögunum, varð 20. á 3:10.11 mín. í blaðaviðtali eftir keppnina sagði Stenmark að hann væri ánægður með árangur sinn — einkum þeirrar staðreyndar að hann hefði ekki þreytzt mjög í hinni erfiðu braut. „Maður verður að vera í góðri likamsæfingu í slikri braut og er ég það greinilega. Ég er að minnsta kosti í jafn góðri æfingu og á sama tíma i fyrra — og hef löngun til að skíða". 1 brunkeppninni á sama stað í gær voru tveir Kanadamenn í tveimur fyrstu sætunum. Ken Read sigraði á 1:32.11 mín. David Murrey varð annar á 1:32.17 min. og mjög óvænt varð Vladimir Makaeyev, Sovétrikjunum, i þriðja sæti á 1:32.24 min. Herbert Plank, Italíu, varð fjórði á 1:32.56 mín. Peter Wimsberger, Austurríki, fimmti á 1:32.66 mín. og Giardini, ítaliu, sjötti á, Heimsbikarkeppni kvenna: Anna María í 1:32.70 mín. Franz Klammer keppti ekki vegna veikinda — og norski brun- meistarinn Erik Haker varð aðeins í 26. sætiá 1:33.75 mín. Samanlagt varð Peter Lúscher beztur, Leonard Stock, Austurríki, annar, Andreas Wenzel, þriðji og Phil Mahre fjórði. Thöni varðsjötti ogGrossjöundi. Stigatalan samanlagt eftir fyrstu tvö mótin í heimsbikamum er því. 1. Peter Luscher, Sviss, 45 2. Ingemar Stenmark, Svíþj. 25 2. Ken Read, Kanada, 25 4. L. Stock, Austurríki, 20 4. Dave Murrey, Kanada, 20 6. A. Wenzel. Lichtenstein, 15 6. L. Davido, Ítalíu, 15 6. V. Makaeyev, Sovét, 15 9. Herbert Plank, Ítalíu, 14 10. PieroGros, ítaliu, 12 Heimsmeistarinn Ingemar Stenmark hafði hreint ótrúlega yfirburði i fyrstu stórsvigskeppni heimsbikarsins á laugar- dag. RfiQNfiRÖK eftir Jan Björkelund Skáldsaga sem geríst á íslandi • SKOTBARDAGI í HVERAGERÐI • MAÐUR FINNST MYRTUR VIÐ HÓTEL í REYKJAVÍK efsta sætinu DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978. Frægasta skíðakona heims, Anna María Moser, Austurríki, byrjaði vel i keppni heimsbikarsins i Piancavallo á Ítalíu um helgina. Sigraði i bruni og varð í sjöunda sæti i svigi i keppninni i gær. Hefur þegar tekið forustu samanlagt. Hlotið 29 stig en Abbi Fisher, USA, er i öðru sæti með 25 stig. Siðan kom Doris de Agostini, Sviss, og Perrine Pelen, Frakklandi, með 20 stig. Meistarinn frá siðasta keppnistimabili, Hanni Wenzel, Lichtenstein, féll i gær i svigakeppninni. Ajax aftur á toppinn Ajax, Amsterdam, skauzt aftur upp i efsta sætið i úrvalsdeildinni hollenzku í gær, þegar liðið vann sigur i Alkmaar á AZ '61. Efsta liðið fyrir umferðina, Roda JC Kerkrade náði jafntefli við Nac Breda. Feyenoord átti að leika á útivelli við Pec Zwollc en leiknum var frestað eins og nokkrum öðrum leikjum i deildinni. Úrslit urðu þessi: AZ '61 Alkmaar-Ajax 1 —2 Haag-Haarlem 3—1 Maastrich-Venlo 1—1 Utrecht-Vitesse, Arn. 2—0 Nac Breda-Roda 0—0 Twente-Volendam 3—0 Sparta-Denverter 2—0 Leik Nec og PSV, sem átti að vera i Nijmegen, var frestað. Staða efstu liða er nú þannig: Ajax 16 11 2 3 43-14 24 Roda 16 9 6 1 29—11 24 PSV 15 9 3 3 29-10 21 AZ’67 16 9 2 5 52—67 20 Feyenoord 15 6 7 2 20—8 19 —en hann er samt 20 stigum á eftir efsta manni „Þetta er stórkostlegt — eftir þessu hef ég beðið i fjögur ár,” sagði hinn 21 árs Abbi Fischer frá Conway í New Hampshire, þegar hún hafði sigrað i sviginu i gær. Hún fékk samanlagt úr báðum umferðum 1:49.81 min. aðeins einum hundraðasta úr sekúndu á undan frönsku stúlkunni kunnu, Pelen, sem taiin er bezta svigkona heims. „Annar skíðastafur minn festist efst i brautinni — annars hefði ég sigrað,” sagði hún eftir keppnina. Í þriðja sæti voru tvær skiðakonur jafnar — Claudia Giordani, Ítalíu, og Tamara McKinney, USA, sem aðeins er 16 ára og tekur nú í fyrsta skipti þátt í keppni heims- bikarsins. Hún er systir hins kunna skautamanns Steve McKinney. Skellur hjá Bayern— tapaði 7-1 Bayern Múnchen fékk hcldur betur skell i 1. deiidinni vestur-þýzku á laugar- dag. Steinlá i Diisseldorf fyrir Fortuna 7—1. Eitt mesta tap í sögu þessa fræga félags. Veður var slæmt I Þýzkalandi og fimm leikjum i 1. deild var frestað. ÍJrslit i þeim leikju, sem háðir voru, urðu þessi Dússeldorf-Bayern 7—1 Duisburg-Schalke 2—1 Kaiserslautern-Bremen 4—0 Dortmund-Frankfurt 3—1 Staða efstu liða er nú þannig: Kaisersl. Hamborg SV. Stuttgart Dússeldorf Bayern Frankfurt 16 10 15 9 1 34—18 25 3 32-12 21 3 26-17 20 5 36-26 18 5 33-24 18 6 26-24 18 Ótrúlegir yfir- burðir Stenmark ELDSUMBR0T ÍKÚTLU MÝRDAL SÓPAST ÍSJÓ FRAMÍ HRIKALEGUM NÁTTÚRU- HAMFÖRUM

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.