Dagblaðið - 11.12.1978, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
I
23
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Fallbyssurnar frá Búkarest
voru meisturum Vals ofviða
I
—Dynamo Búkarest sigraði Val 25-19 í
Laugardalshöll á Evrópukeppni
meistaraliða
Rúmensku fallbyssurnar frá Búkarest
voru íslandsmeisturum Vals fremri er
Dynamo Búkarest og Valur mxttust i
Evrópukeppni meistaraliða á laugardag i
Höllinni. Rúmenarnir sigruðu 25-19.
öruggur sigur og verðskuldaður. Sann-
leikurinn var, að gæðamunur var á liðun-
um, snilldartaktar Rúmenanna voru Val
einfaldlega um megn. Valsmenn áttu
ekkert svar við hinum frábæra Penu
Cornel I marki Rúmenanna, þrautreynd-
ur landsliðsmaður, 35 ára gamall en
sýndi engu að síður skjót viðbrögð. Og
Valsmenn áttu ekkert svar við rúmensku
stórskyttunum Grabouschi Miroea og
Flangea Olimpiou. Ákafiega skotfastir
leikmenn. Þrumufleygar þeirra höfnuðu
út við stengur Valsmarksins. Bedivan
Miroea hélt öllu spili Rúmena gangandi.
Hvergi veikur hlekkur I liði Rúmena.
Valsmenn fundu ofjarla sina i liki Rúm-
ena.
Hinum tvö þúsund áhorfendum í
Höllinni duldist ekki að það voru snill-
ingar þar sem Rúmenar voru. En Vals-
menn, þrátt fyrir að um öfluga andstæð-
inga væri að ræða, ollu vonbrigðum.
Það voru aðeins þrír leikmenn er aldrei
gáfu eftir, spiluðu af festu og krafti i liði
Vals. Aðrir leikmenn beinlínis gáfust
upp, eða náðu sér aldrei á strik. Þessir
þrir voru landsliðsmennirnir Þorbjörn
Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson og
Steindór Gunnarsson. Þeir léku af krafti
og festu. Báru af i liði Valsmanna.
Skoruðu 14 af 19 mörkum Vals. Hvort
heldur var í vörn eða sókn þá báru þre-
menningarnir af. Það var nánast bros-
legt að sjá fyrrum fyrirliða íslenzka
landsliðsins, Jón H. -Karlsson, stökkva
upp fyrir framan varnarvegg tveggja
metra risa'og skjóta með vinstri. Auð-
vitað hirti varnarveggurinn skot Jóns.
1 sjálfu sér er alls ekki slæmt af Val að
skora 19 mörk gegn jafn sterkri vörn
Rúmena, og gegn jafn.góðum markverði
og landsliðsmanninum margreynda,
Cornel. Það var vörnin, sem fyrst og
fremst brást, og markvarzlan í beinu
framhaldi af því. Nánast undantekning
ef varnarveggur Vals náði að „blokkera”
skot. „Ég átti von á, að Valsmenn yrðu
mun harðari i vörninni en reynd varð á.
Að þeir mundu ganga eins langt og dóm-
ararnir leyfðu, eins og Víkingar gerðu
gegn Ystad á dögunum. En því var ekki
að heilsa, þess í stað beinlinis veittu þeir
rúmensku leikmönnunum frið til að at-
hafna sig,” sagði hinn ágæti dómari,
Svenson, frá Danmörku eftir leikinn.
Vissulega rétt. Valsmenn voru engan
veginn nógu grimmir i vörninni. Og þar
fyrst og fremst brugðust Valsmenn.
Rúmensku stórskytturnar Olimpiou og
Miroea fengu næði til að stökkva upp,
og þá var ekki að sökum að spyrja.
í fyrstu sókn sinni misnotuðu Vals-
menn víti, Cornel varði frá Þorbirni og
Rúmenar skoruðu tvö fyrstu mörk leiks-
ins. Um miðjan fyrri hálfleik hafði
Dynamo náð fjögurra marka forustu, 8-
4. Valsmenn náðu að minnka muninn í
eitt mark, 8-9 og fjórar minútur til leik-
hlés. En Rúmenar svöruðu með tveimur
mörkum fyrir leikhlé, 11-8. í síðari hálf-
leik varð fljótlega Ijóst hvert stefndi.
Rúmenar komust í 14-10; Síðan 18-12,
sex marka forusta Dynamo, síðan sjö
mörk, 23-16. Valsmenn náðu að minnka
muninn í lokin, sex mörk skildu, 25-19,
öruggur sigur Dynamo Búkarest og
erfiður leikur í Rúmeníu framundan.
Viðureign Vals og Dynamo Búkarest
staðfesti það djúp sem er á milli liða
Norðurlanda og A-Evrópu. Valur og
Víkingur hafa i Evrópuviðureignum
sinum staðfest að að minnsta kosti þessi
tvö íslenzku topplið eru fyllilega sam-
bærileg við hin beztu á Norðurlöndum.
Þegar hins vegar kemur að austurblokk-
inni þá eiga lið frá Norðurlöndum mjög I
vök að verjast. Þannig töpuðu Danir
nýlega með átta mörkum fyrir Sovét-
mönnum, A-Þjóðverjar sigruðu Dani,
Svia og Norðmenn örugglega á móti i
Noregi alveg nýlega. Hinir þrautþjálf-
uðu atvinnumenn frá A-Evrópu hafa af-
gerandi forustu í handknattleiknum.
Aðeins V-Þjóðverjar hafa náð að rjúfa
einokun A-Evrópu, eftir mörg ár í kuld-
anum í alþjóða handknattleik.
Íslenzk lið verða alveg að ná toppleik
ef jöfn viðureign á að vera. íslenzk
félagslið eiga mjög í vök að verjast, það
hefur sannazt á undanförnum árum.
Hins vegar getur landslið okkar á stund-
um náð að veita verðuga mótspyrnu, en
aðeins á góðum degi — mjög góðum
degi. Valsmenn náðu engan vegin topp-
leik gegn Dynamo Búkarest i Höllinni
og því fór sem fór. Með baráttu, meiri
hörku í vöm, þá hefðu Valsmenn getað
veitt meiri mótspyrnu, en sú samstaða
náðist engan veginn innan Valsliðsins.
Mörk Vals skoruðu: Þorbjörn Guð-
mundsson 7, 3 víti, Steindór Gunnars-
son 4, Bjarni Guðmundsson og Jón
Pétur Jónsson 3, Jón Karlsson 2. Hjá
Rúmenum skoraði Flangea Olimpiou
mest, 6 mörk, Grabouschi Miroea og
Bedivan Miroea skoruðu 5 mörk hvor.
Mjög góðir dómarar voru Danirnir
Kristiansen og Svenson — allt fas þeirra
og framkoma bar merki öryggis og
valds. Frábærirdómarar.
H Halls.
Víkingur sigraði ÍR
- 24-21 íl.deild
Vikingur sigraði ÍR 24—21 I 1. deild
íslandsmðtsins I handknattleik á föstu-
dagskvöldið. Víkingar höfðu ávallt und-
irtökin, höfðu yfir i leikhléi 14—10.
Léku á köflum mjög beittan söknarleik
þar sem ungu mennirnir, Erlcndur Her-
mannsson og Sigurður Gunnarsson stálu
senunni frá þekktari nöfnum Vfkings.
Erlendur Hermannsson er nú í mikilli
sókn, vex með hverjum leik og þrumu-
flcyga Sigurðar Gunnarssonar réð Jens
Einarsson ekki við.
Þrátt fyrir ósigur ÍR er greinilegt að
liöiö er nú I sókn. Sér I lagi fer sóknar-
leikurinn batnandi. Vlkingar urðu f.vrir
áfalli, Kristján Sigmundsson snéri sig illa
í síðari hálfleik og varð Rósmundur
Jónsson, hinn gamalreyndi markvörður
Vikinga að hlaupa I markið þar sem
Eggert Guðmundsson, varamarkvörður
Vikings var einnig meiddur. Slæmt fyrir
Viking þar sem Evrópuleikurinn i Ystad
er aöeins eftir viku.
Mörk Víkings skoruðu: Erlendur
Hermannsson 7, Ólafúr Jónsson, Sigurð-
ur Gunnarsson og Árni Indriðason 4
hver, Árni 1 víti. Ólafur Einarsson 3,
Viggó Sigurðsson 2. Mörk ÍR: Brynjólf-
ur Markússon 7, Sigurður Svavarsson 5
— 5 víti. Vilhjálmur Sigurgeirsson, Sig-
urður Gíslason og Bjarni Bessason 2,
Guðjón Martcinsson 3.
Leiknir gaf
ieikinn við Þór
Leiknir úr Breiðholti gaf viðureign
sina við Þór úr Vestmannaeyjum. Liðin
áttu að leika I Eyjum um helgina I 2.
deild tslandsmótsins I handknattleik en
Leiknir gaf. Þetta var mjög bagalegt
fyrir Þór, þvi félagið missti þarna af dýr-
mætri tekjulind. Aðsókn I Eyjum hefur
verið mjög góð I vetur en Þór hefur vegn-
að mjög vel. Því tvö stig til Eyja og Þór
eina félagið I 2. deild er ekki hefur tapað
leik. FÓV.
Steindór Gunnarsson kastar sér inn af llnu og skorar af öryggi eitt fjögurra marka sinna.
DB-mynd Hörður.
DEN KONGELIGE PORCELAIN SFABRIK A/S
Jólaplattinn 1978
JÓHANNES
NORÐFJÖRÐ HF.
Hverfisgötu 49, sfmi 13313.
Laugavegi 5, sfmi 12090.