Dagblaðið - 11.12.1978, Side 28
28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
Noregurogísland:
JAN MAYEN-SAMNINGUR NU
LAUSN Á DEILUNNIUM
LÖGSÖGU Á BARENTSHAFI?
„Bæöi Norömenn og lslendingar eru
aö kanna þýðingu fiskimiðanna
umhverfis Jan Mayen. Enn hefur ekki
verið tilkynnt af hálfu norskra yfirvalda
hvernær útfærsla efnahagslögsögu
Norðmanna umhverfis Jan Mayen
verður stækkuð og er varla búizt við
neinni tilkynningu um það fyrr en á
síðari helmingi næsta árs,” segir i frétt
frá Upplýsingaþjónustu Noregs,
NORIMFORM, um gang viðræðna
þeirra við bæði Sovétmenn um Barents-
hafið og við íslendinga um hafsvæðið
umhverfis Jan Mayen. „Enn hafa form-
legar viðræður við íslendinga ekki átt
sér stað en vaxandi þrýstingur er á
þarlend stjórnvöld um að taka upp
viðræður,” segir ennfremur í frétta-
bréfinu.
Norðmerin leggja áherzlu á að úrslit
samninga við íslendinga í máli þessu
hafi mikla þýðingu fyrir gang mála i
viðræðum þeirra við Sovétmenn um
efnahagslögsögu á Barentshafi en þar
hangir mun fleira á spýtunni. Auk fisk-
veiðiréttinda er hernaðarlögsaga eitt
meginmál þeirra viðræðna og hafa
viðræðurnar siglt i strand.
Fyrsta þingsályktunartillagan sem
flutt var á Alþingi i haust var tillaga
Eyjólfs Konráðs Jónssonar og fleiri þing-
manna Sjálfstæðisflokksins þess efnis að
þegar yrði aflað „upplýsinga um land-
grunn íslands og afstöðu til nálægra
rikja”. Segir í greinargerð með þings-
ályktunartillögunni að réttur strandríkja
til 200 mílna efnahagslögsögu sé nú
mjög til umræðu á alþjóðavettvangi.
Beri því að kanna stöðu þeirra mála
vandlega af Íslands hálfu til að við
berum ekki skarðan hlut frá borði í þeim
samningum, sem í kjölfar Hafréttarráð-
stefnunnar koma.
Er talið líklegt að samningar okkar
við Norðmenn nú um miðlínu á milli
Islands og Jan Mayen, sem er í 290
mílna fjarlægð, eða einhverjir
samningar í þá átt, geti reynzt hag-
stæðari er frá líður og að Norðmenn geti
bent á þá samninga máli sínu til
stuðnings i samningaviðræðum við
Sovétmenn.
-HP-
ROCKWOOL
Sparnaður á komandi árum.
HITAKOSTNAÐINN
Einangrun gegn
hitaf eldi, kulda og
hljóði,
auðvelt í upp-
setningu
Algengustu stærðir
ávallt fyrirliggjandi.
Lakjargötu 34, Hafnarflrfti
síini 50975
Philips kann tökin á tækninni - Næg bílastæði í Sætúni 8
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655