Dagblaðið - 11.12.1978, Síða 46
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1978.
Stríð í geimnum
Spennandi og viðburðarík, ný, japönsk:
Cinemascope litmynd, litríkt og fjörugt
vísindaaevintýri.
íslenzkur texti.
Sýndkl. 3,5,7,9 og 11.
salur
Makleg málagjöld
Afar spennandi og viðburðarík litmynd,
meðCharles Bronson og Liv Ullmann.
Islenzkur texti. Bönnuðinnan I4ára.
Endursýnd kl. 3,05, 5,05, 7,05, 9.05 og
11,05.
'Salur
Kóngur í New York
Sprenghlægileg og fjörug ádeilukvik-
mynd, gerð af Charlie Chaplin. — Ein-
hver harðasta ádeilumynd sem meistari
Chaplin gerði.
Höfundur, leikstjóri ogaðalleikari:
Charlie Chaplin.
Sýndkl. 3,5,7,9 og 11.
- salur
Varist vætuna
Sprenghlægileg gamanmynd með Jackie
Gleason.
íslenzkur texti.
Endursýnd kl. 3.15 5.15, 7.15, 9.15 og
11.15.
GAMLA BIO
I
iltl47V
VETRARBORN
Ný, dönsk kvikmynd gerð eftir verð-
launaskáldsögu Dea Trier Mörch.
Aðalhlutverk: Ann-Marie Max|
Hansen, Helle Hertz, Lone Kellermann.
tslenzkur texti
Sýndkl. 5,7 og9.
I
HAFNARBIO
I
IMI likM piunti
, ROBERT M.SHERMIN
i ERNEST
Rttíi
Afar spennandi og viðburðarík alveg ný
ensk Panavision-litmynd, um mjög
óvenjulegar mótmælaaðgerðir.
Myndin er nú sýnd víða um heim við
feikna aðsókn. Leikstjóri Sam
Peckinpah.
íslenzkur texti.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 4.50,7,9.10 og 11.20.
Kvikmyndir
AUSTURBÆJARBÍÓ: Klu Klux Klan sýnir klærn
ar, aðalhlutverk Richard Burton og Lee Marvin, kl. 5
7 og 9. Bönnuð innan 16 ára.
GAMLA BÍÓ:Sjá auglýsingu.
H AFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Hinn blóðugi dómari,|
aðalhlutverk Paul Newman, sýnd kl. 9.
HÁSKÓLABÍÓ: Eyjar í hafinu, kl. 5,7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Frankenstein og ófreskjan, aðal-
hlutverk Peter Cushing og Shane Briant, kl. 5, 7 og
11, bönnuð innan 16 ára. Nóvemberáætlunin kl. 9,
bönnuðinnan 14ára.
NYJA BÍÓ: Þrumur og eldingar sýnd kl. 5, 7 og 9,
bönnuð bömum innan 14 ára.
REGNBOGINN: Sjá auglýsingu.
'STJÖRNUBÍÓ: Ævintýri popparans, aðalhlutverk
Robin Askwith, Anthony Booth, Sheila White, kl. 5,
7,9 og 11. Bönnuð börnum.
TÓNABÍÓ: Draumabillinn (The van), leikstjóri: Sam
Grossman, aðalhlutverk: Stuart Getz, Deborah White
og Harry Moses, kl. 5,7 og 9.
ENDURSKINS-
MÉRKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
umferðarrAo
I
Utvarp
Sjónvarp
S)
Sjónvarpkl. 21.50:
Viðtal við hinn kunna
rithöfund Thorkild
Hansen
um bókina „Prosessen mot Hamsun”
sem vakið hefur geysilega athygli
í kvöld kl. 21.50 er á skjánum viðtals-
þáttur, þar sem Harald Ofstad ræðir við
danska rithöfundinn og blaðamanninn
Thorkild Hansen um bók hans,
Prosessen mot Hamsun, sem vakið
hefur geysilega athygli á Norðurlöndun-
um að undanförnu.
Bókin Prosessen mot Hamsun kom út
samtímis i Noregi, Danmörku og
Svíþjóð í september sl. Hún vakti strax
geysiathygli og bæði blöðin, útvarpið og
sjónvarpið fjölluðu geysimikið um hana.
Thorkild Hansen er kunnur danskur
rithöfundur, hann hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs árið 1971.
Þessi bók Thorkilds um Hamsun, sem er
upp á 800 bls. og hefur fengið misjafna.
dóma hjá gagnrýnendum.
Knut Hamsun var dæmdur landráða-
maður eftir striðið vegna samskipta hans
við þýzka og norska nasista. 1 bókinni
rekur Thorkild Hansen stríðsárin og
athafnir Hamsuns á þeim tíma lið fyrir
lið. Thorkild reynir ekki að þvo nasista-
stimpilinn af Hamsun heldur dregur
hann fram i dagsljósið ýmislegt sem
viljandi eða óviljandi var látið kyrrt
liggja þegar hatrið á Hamsun var sem
mest.
Þátturinn í kvöld er tæplega klukku-
stundar langur. Þýðandi er Jón O.
Edwald en Sveinn Ásgeirsson hag-
fræðingur flytur formálsorð.
-ELA.
m ,4
i i
Hinn kunni danski rithöfundur Thorkild Hansen.
m
Utvarp
Mánudagur
H.desember
11.00 Hin gömlu kynnl: Valborg Bentsdóttir sér
um þáttinn.
11.35 Morguntónleikar. Ríkishljómsvciun i
Bmo leikur „Blanik”, ballöðu fyrir hljómsveit
eftir Leos Janácek; Bretislav Bakala stj. /
David Oistrakh og Sinfónluhljómsv. útvarps-
ins I Moskvu leika Fiðlukonsert I C-dúr op. 48
eftir Dmitri Kabalevský; höf. stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttlr. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Litli barnatiminn. Sigríður Eyþórsdóttir
stjórnar.
13.40 Við vinnunæ Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blessuð skepnan” eftir
James Herriot. Bryndis Víglundsdóttir les
þýðingu sína (15).
15.00 Miðdegistónlcikan íslenzk tónlist. a.
íslenzk rímnalög eftir Karl O. Runólfsson og
Sex lög eftir Helga Pálsson. Guðný Guð-
mundsdóttir leikur á fíðlu og Halldór Haralds-
son á píanó. b. „Undanhald samkvæmt áætl-
un”, lagaílokkur eftir Gunnar Reyni Sveins-
son við Ijóð eftir Stein Steinarr. Ásta Thor-
stensen syngur. Jónas Ingimundarson leikur á
píanó. c. Vers II eftir Hafliða Hallgrímsson.
Robert Aitken leikur á flautu, höfundurinn á
selló, Þorkell Sigurbjömsson á klavikord og
Gunnar Egilson á ásláttarhljóðfæri. d. Epita-
fíon eftir Jón Nordal. Sinfóniuhljómsveit
íslands leikur; Karsten Andersen stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.30 Popphorn: Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
17.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga:
,„Anna f Grænuhlið” eftir Ed Montgomeryog
Murill Levy. Áður útv. 1963. Þýðandi: Sig
fríður Nieljohníusdóttir. Leikstjóri: Hildur
Kalman. Leikendur i 3. þætti af fjórum: Krist-
björg Kjeld, Guðrún Ásmundsdóttir, Nína
Sveinsdóttir, Gestur Pálsson, Gísli Alfreðsson,
Jónina Ólafsdóttir, Arndls Bjömsdóttir, Jó-
hanna Norðfjörð og Valgerður Dan.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukL Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Eyvindur Eiriksson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og vcginn. Halldór Kristjáns-
son frá Kirkjubóli talar.
20.00 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir
kynnir.
21.10 Á tíunda tímanum. Guðmundur Ámi
Stefánsson og Hilmar Árnason sjá um þátt
fyrir unglinga.
21.55 Samleikur á blokkflautu og sembal. Per
Egil Hovland og Einar Steen-Nökleberg leika
tónverk eftir Johann Joachim Quants og Egil
Hovland. (Frá tónlistarhátíð I Björgvin).
22.10 „Jólatrésfagnaður og brúðkaup”, smá-
saga eftir Fjodor Dostojevský. Egill Bjamason
íslenzkaði. Anna Guömundsdóttir les. Orð
kvöldsins á jólaföstu.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.45 Leiklistarþáttur. Umsjónarmaöur. Kristin
Bjamadóttir. Fjallað um menntun leikara.
23.00 Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands i
Háskólabíói á flmmtud. var; — síðari hluti.
„Plánetumar”, hljómsveitarverk eftir Gustav
Holst. Hljómsveitarstjóri: Páll P. Pálsson. —
Kynnir: Jón Múli Ámason.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
12. desémber
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. 8.00
Fréttir).
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Þórir S. Guð-
bergsson heldur áfram að lesa sögu sína,
„Lárus, Lilja, ég og þú” (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.50 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnlr ýmis lög; frh.
11.00 Sjávarútvegur og siglingar: Guðmundur
Hallvarðsson sér um þáttinn. Rætt við Óskar
Vigfússon og Ingólf Ingólfsson um kjaramál
sjómanna.
Il.l5 Lcstur úr nýþýddum bókum. Kynnir:
Dóra Ingvadóttir.
I
i)
Skóverksmiöjan h.f. Sem svar við bréfi yðar...
^ Sjónvarp
Mánudagur
11. desember
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 íþrðttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
2l.l5 ófeUa s/h. Sjónvarpsleikrit eftir Matthías
Johannessen. Leikstjóri Helgi Skúlason.
Aðalhlutverk Helga Bachmann, Þorsteinn
Gunnarsson og Jón Sigurbjömsson. Leikmynd
Snorri Sveinn Friðriksson. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup. Áður á dagskrá 15. febrúar
1976.
21.50 Viðtal við Thorkild Hansen. Harald
Ofstad ræðir við danska rithöfundinn og
blaðamanninn Thorkild Hansen um bók hans,
„Prosessen mot Hamsun”, sem vakiö hefur
mikla athygli að undanförnu. Þýðandi Jón O.
Edwald. Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur
flytur formálsorð. (Nordvision — Norska
sjónvarpið).
22.35 Dagskrirlok.