Dagblaðið - 11.12.1978, Síða 48
I
Sett undir lekann hjá borgarstjórnarmeirihlutanum?
„Höldum samstarfinu
heils hugar áfram”
—segir Björgvin Guömundsson
„Það ber ekki að líta á þetta sem vis-
bendingu um, að við viljum slíta sam-
starfi meirihlutaflokkanna í borgar-
stjórn. Borgarmálaráð Alþýðuflokks-
ins samþykkti á laugardaginn, að Al-
þýðuflokkurinn vildi halda samstarf-
inu heils hugar áfram,” sagði Björgvin
Guðmundsson borgarfulltrúi (A) í við-
tali við DB í gær.
Borgarmálaráðið ákvað til að
hindra klofning milli fulltrúa flokksins
við atkvæðagreiðslur i framtíðinni, að
yrði ágreiningur milli fulltrúanna
skyldi honum vísað til borgarmála-
ráðsins og fulltrúar hlíta úrskurði þess
við atkvæðagreiðslur.
„Æskulýðsmálið var ekki meiri-
hlutamál,” sagði Björgvin, sem taldi
ekki unnt að tala um klofning meiri-
hlutans, þótt fulltrúar Alþýðuflokks-
ins styddu ekki tillögu Þórs Vigfússon-
ar (AB) í því máli. Málið hefði ekki
verið borið upp af meirihlutanum, en
einstökum borgarfulltrúum væri að
sjálfsögðu heimilt að flytja þær tillög-
ur sem þeim sýndist. Til þess að mál
teldist meirihlutamál yrði það að fá
sérstaka meðferð í viðræðum fulltrúa
allra meirihlutaflokkanna. „Það kom
því engum á óvart, þótt atkvæði skipt-
ust svona um tillögu Þórs,” sagði
Björgvin. Þór Vigfússon lagði til, aö
útiskemmtanir yrðu haldnar á vegum
æskulýðsráðs og Tónabær opnaður á
ný. Sjálfstæðis- og alþýðuflokksmenn
stóðu saman að því að hindra fram-
gang tillagna Þórs. Samþykkt var til-
laga frá Sjöfn Sigurbjörnsdóttur (A)
með atkvæðum sjálfstæðis- og alþýðu-
flokksmanna um útiskemmtanir, sem
halda skyldi á vegum ráðsins, og gekk
hún öllu lengra en tillaga Þórs.
Björgvin taldi þetta ekki stofna sam-
starfi meirihlutans í hættu en öðru
máli gegndi um sorphirðugjaldsmálið,
þar sem það „slys” hefði orðið að
Sjöfn stóð með sjálfstæðismönnum að
því að fella álagningu gjaldsins. Björg;-
vin taldi, að slíkt ætti ekki að koma
fyrir aftur.
-HH
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 11. DES. 1978.
Bfl stolið
Gamall Volkswagen-bíll, sem
stóð við heimili eiganda síns við
Víðihvamm í nótt, freistaði ein-
hverra lítt sómakærra manna. Þeg-
ar eigandinn ætlaði til vinnu í
morgun var bifreiðin horfin.
Bíllinn ber skrásetningarnúmer-
in Y-3717 og er drapplitaður. Eig-
andinn á ákaflega bágt með að
vera án vagnsins og biður alla sem
orðið hafa bilsins varir að láta lög-
regluna í Reykjavík eða Kópavogi
vita hvar hann er niður kominn.
Banaslys á Hnífsdalsvegi:
17 ára Isfirðingur
fórst f bflslysi
— bfll með fjórum farþegum valt 20
metraniðurífjöru
Sautján ára Ísfirðingur, Gautur
Úlfarsson, Sólgötu 8 ísafirði, beið bana í
bifreiðarslysi í Eyrarhlíð á Hnífsdalsvegi
í fyrrinótt. Annar piltur í sama bil slas-
aðist alvarlega og var fluttur flugleiðis til
Reykjavíkur snemma á sunnudagsmorg-
un.
Slysið varð um kl. eitt aðfaranótt
sunnudags. Ejórir piltar voru saman í bíl
á Hnífsdalsvegi. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar á Isafirði fór bíll þeirra
fyrst yfir á öfugan vegarhelming en
síðan út af réttum megin og niður í
fjöru, þar sem hann hafnaði á hvolfi.
Niður eru um tuttugu metrar.
Gautur heitinn lézt um"það leyti sem
komið var með hann á sjúkrahúsið á Ísa-
firði. Ökumaður bifreiðarinnar og þriðji
farþeginn fengu að fara heim af sjúkra-
húsinu í gær. Þeir eru allir ísfirðingar á
líku reki.
ÓV
Þetta er jólasveinn dagsins, Bjami Steingrímsson leikari I gervi jólasveinsins
„Tjaldafeykis”.
Bjarni var snöggur upp ú lagið erhann var spurður aðþvl, hvershann óskaðisérl
jólagjöf: „Ég er nú hólfgerður jólasveinn svona dags daglega og óttavilltur og vil
þvífó óttavita íjólagjöf. ” Ljósm. Ragnar Th.
f éM ffHf- !&*■ 1
* ■ í 'i 'ÆBm.:- • m JKjSmÍl'J I 'j í
& i J
r ^ ■ W 'M
Björgvin Halldórsson söngvari gekk í það heilaga með Ragnheiði Reynisdóttur i Kristskirkju í Landakoti á laugardaginn.
Úti fyrir fögnuðu þeim vinir og ættingjar með hrísgrjónum, eins og sjá má á myndinni. Ragnheiður er kaþólskrar trúar, en
þau Björgvin eiga saman tveggja ára dóttur.
DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Nú erkomið að nœstslðasta hluta jólagetraunarinnar. Jólasveinninn efast
um að nó ó leiðarenda eins og þið sjóið. Hvaða umferðarmerki veldur
þessum vafa hans? Þegarþið hafið fundið lausnina klippið þið seðilinn út og
geymið með þeim sex sem þið hafið þegar safnað. Slðasti miðinn kemur svo I
nœsta blaði.
Jólainnkaup á
eftiráætlun:
Peningaleysi og
ótti við atvinnu-
leysi áberandi
„Jólainnkaupin eru að minnsta
kosti hálfum mánuði á eftir þvi
sem þau voru í fyrra. Fólk virðist
hreinlega ekki hafa peninga. Það
var ekki fyrr en eftir mánaðamótin
að innkaupin fóru af stað, eftir að
launin voru komin,” sagði einn af
þeim mörgu kaupmönnum sem
DB ræddi við í síðustu viku.
Aðrir virtust sammála honum.
Fólk væri illa statt fjárhagslega,
verr en fyrir jólin í fyrra. Einn orð-
aði þetta svo: „Menn eru hættir að
spyrja hvar endar þetta. Þeir
spyrja hvenær endar þetta. Menn
virðast ekki einu sinni vissir um að
halda vinnunni öllu lengur.” DS
Kaupið°<9\
TÖLVUR W
BANKASTRÆTI8