Dagblaðið - 30.11.1979, Side 19
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979.
BRAÐABIRQDABUGI
SI&TTA SPIL VERKSPLA TAN
Mikiö ergefiö út afhljómplötum ídag en...
Eagles—The LongRun:
Nýjasta plata Spilverks þjóðanna
— sú fyrsta sem Hljómplötuútgáfan
hf. gefur út — er komin í verzlanir
um land allt. Plata þessi nefnist
Bráðabirgðabúgí og er sú sjötta sem
Spilverkið sendir frá sér.
Að þessu sinni syngur Spilverkið
um hjón að vestan, þau Valda, Línu
og son þeirra Einbjörn, sem farinn er
að stunda kúluspilastofur, reykja
Salem og detta iða. Lögin og text-
arnir eru allir eftir Valgeir Guðjóns-
son og Sigurð Bjólu, sem sjá um allan
söng á plötunni ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur.
Nokkrir hljóðfæraleikarar koma
við sögu á Bráðabirgðabúgí utan
Spilverksins sjálfs. Atkvæðamestir
eru Haraldur Þorsteinsson, Þorsteinn
Magnússon og David Logeman
trommuleikari i jazzrokkhljómsveit
Jakobs Magnússonar. Hann kom
gagngert vestan frá Bandaríkjunum
til að spila inn á þessa plötu. Þrír til
viðbótar eiga nokkra tóna á Bráða-
Fyrsta plata Mezzo-
forte komin út
Fyrsta hljómplata Mezzoforte-
sveitarinnar og jafnframt fyrsta
alíslenzka jazzrokkplatan leit dags-
ins ljós í síðustu viku. Sjö af átta
lögum plötunnar eru eftir liðsmenn
hljómsveitarinnar. Gunnar Þórðar-
son upptökustjóri plötunnar og að-
stoðarmaður við útsetningar semur
eitt.
Mezzoforte er skipað fimm
hljóðfæraleikurum, sem allir eru
undir tvítugu. Þeir hafa starfað
saman síðastliðin þrjú ár, með
hléum þó, og hefur hljómsveitin
verið í senn aðaláhugamál þeirra og
góður skóli. Lög þeirra á plötunni
hafa sum orðið til í gegnum árin,
önnur voru samin sérstaklega fyrir
plötuna.
í tveimur lögum plötunnar nýtur
Mezzoforte aðstoðar Magnúsar
Kjartanssonar, Andrésar Helgason-
ar og Kristins Svavarssonar. Að
öðru leyti sérhljómsveitinsjálf um
allan hljóðfæraslátt.
Sú breyting hefur orðið á liðs-
skipan Mezzoforte frá því er plata
þeirra var hljóðrituð að Stefán
Stefánsson saxófónleikari er
hættur. í stað hans kom hljóm-
borðsleikarinn Bjöm Thorarensen.
Aðrir í Mezzoforte eru Jóhann
Ásmundsson, Gunnlaugur Briem,
Eyþór Gunnarsson og Friðrik
Karlsson. Tveir þeir síðastnefndu
semja bróðurpartinn af tónlist
plötu þeirra.
- ÁT
ÖTT ÁRIB KOMU ÚT UU
100 PLÖTUR HJÁ FÁLKANUM
HLJÓMPLÖTU-
UMSAGNIR
EINAFBEZTU
PLÖTUM ÁRSINS
birgðabúgíi, Karl Sighvatsson,
Magnús Kjartansson og Halldór
Pálsson.
Spilverk þjóðanna. Plata þeirra,
Bráðabirgðabúgi, segir frá
hjónum að vestan og syni þeirra,
Einbirni, sem að sjálfsögðu er
einbirni.
DB-mynd.
önnur mynd frá Fálkanum að
Laugavegi 24. Þannig muna
margir Reykvfkingar verzlunina.
Glymskrattinn er á sinum stað
úti f horni.
Síðustu árin hefur hljómplötuút-
gáfa hér á landi stóraukizt. — Árið
1979 sýnir reyndar nokkur sam-
dráttareinkenni en titlar eru þó tals-
vert margir. Útkomnar plöiur það
sem af er árinu eru vel á fjórða
tuginn og eiga áreiðanlega nokkrar
eftir að koma enn. Það hefði þó
ekki þótt mikið hér fyrr á árum,
þegar ein og sama úgáfan sendi á
markaðinn um það bil eitt hundrað
hljómplötur sama árið.
Það var hljómplötudeild Fálkans
sem sendi frá sér þennan titlafjölda
uppúr 1930. Sumar þeirra seldust vel,
í um 1000—2000 eintökum.
Forsaga þessarar miklu útgáfu var
sú, að þvi er segir í fréttabréfi sem
Fálkinn sendi frá sér í tilefni 75 ára
afmælis fyrirtækisins, að gerður var
samningur við Columbia hljómplötu-
fyrirtækið um að senda tæknimenn
til landsins og hljóðrita dagskrána á
Alþingishátíðinni að Þingvöllum árið
1930. Það reyndist ekki unnt en i
staðinn var samkomuhúsið Báran í
Reykjavik tekin á leigu og upptöku-
tækjunum komið fyrir þar.
í Bárunni voru síðan hljóðritaðar
60—70 plötur með íslenzkum lista-
mönnum. Tveimur árum síðar var
ævintýrið endurtekið og þá teknar
upp um 100 plötur.
Á blaðamannafundi með Fálkan-
um í tilefni stórafmælisins á dögun-
um kom fram að hljómplötudeildin
hefur gefið út um eitt þúsund titla
síðan hún tók til starfa á þriðja
áratugnum.
-ÁT-
Eagles - THE LONG RUN
Asylum Records/Steinar hf.
Þrjú ár liðu frá því að platan
Hotel California kom út þar til
Eagles sendu frá sér The Long Run.
Hvað eftir annað var útkomu
plötunnar frestað og aðdáendur
hljómsveitarinnar voru undir lokin
orðnir anzi óþolinmóðir margir
hverjir.
Og útkoman? Aflsappað vestur-
strandarrokk sem fyrr; plata sem við
fyrstu hlustun lætur lítið yfir sér en
vinnur stöðugt á. — The Long Run er
ein vandaðasta og eigulegasta plata
sem ég hef heyrt á þessu ári og eru
þær þó margar góðar.
Það eru ekki grípandi melódíur og
sölulög sem þera The Long Run uppi
heldur vönduð vinnubrögð. Hvergi er
kastað til höndunum. AUur
hljóðfæraleikur er pottþéttur, svo og
öll tæknivinna við gerð plötunnar.
Mér segir svo hugur um að
liðsmenn Eagles hafi verið orðnir
hálf pirraðir á bið fólks eftir plötu frá
þeim. Ég legg textann við titillagið In
The Long Run til grundvallar þessari
skoðun minni:
Eagles — Aðdá-
endur mega
áreiðanlega biða
nokkuð lengi eftir
næstu plötu hljóm-
sveitarinnar.
I used to hurry a lot
I used to worry a lot
I used to stay up till the break of day.
Oh that didn’t get it
It was hard time, I quit it
I just couldn’t carry on that way.
Oh I did some damage
I know it’s true
Didn’t know I was so lonely
Till I found you
How can go the distancc
we’ll find out
In the long run.
Við megum áreiðanlega bíða í
nokkur ár eftir næstu plötu Eagles.
Þessum strákum liggur ekkert á. Þeir
þekkja stöðu sína þegar til langs tíma
er litið. -ÁT-
Hljómplötudeild Fálkans. Eftir klæðnaði viðskiptavinanna að
styrjöld úti i heimi um þær mundir sem myndin var tekin.
dæma hefur geisað