Dagblaðið - 10.11.1980, Page 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1980.
. —i—■ — '■■■ 1 " .
Um 160 manns tóku þátt íleit á Esjunni:
SPORHUNDUR HlALPARSVEIT-
ARINNAR FANN HINN TÝNDA
Um 160 manns úr fjórtán björg-
unar- og hjálparsveitum frá Reykja-
vík og nágrenni leituðu aðfaranótt
sunnudags að Guðmundi Oddssyni,
lækni úr Reykjavík, sem fór á
rjúpnaveiðar á Esju um kl. 14 á
laugardag og villtist í þoku. Fannst
Guðmundur um kl. 4.30 um nóttina,
heill á húfi. Það var sporhundur
Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði
sem fann Guðmund. Hafði Guð-
mundur haft hlýju af hundi sínum
sem var með í förinni. Var Guð-
mundur hinn hressasti þegar hann
fannst.
Það var um kl. 19.20 á laugardags-
kvöldið, að tilkynnt var um að
rjúpnaskyttu væri saknað á Esjunni.
Jón Gunnarsson, verzunarmaður úr
Reykjavík, sem gekk á Esju með
Guðmundi og varð viðskila við hann
þegar skyndilega skall á þokubakki.
Að sögn Jóhannesar Briem, sem
var í hópi þeirra er stjórnuðu leitinni,
hafði Guðmundur lent inn á sléttuna
í þokunni og villzt þannig að hann
var kominn norður á fjallið og þar
fram á brún.
Tók hann þá ákvörðun um að
setjast um kyrrt þar sem mikið
myrkur var skollið á og ísing á fjall-
inu. Skaut Guðmundur annað slagið
upp haglaskotum.
Fyrst í stað fór aðeins lítill leitar-
flokkur af stað frá björgunarsveitum
Kjalarness og Mosfellssveitar. En um
kl. 22.30 voru fleiri sveitir boðaðar út
og var fjölmenn og skipulögð leit
komin vel í gang fyrir miðnætti.
Guðmundur fannst síðan um kl. 4.30
eins og áður segir. Var hann hinn
hressasti þegar hann fannst. Niður af
fjallinu var hann kominn ásamt þeim
sem fundu hann um kl.9 á sunnudags-
morgun. -GÁJ.
Um 160 manns úr fjórtán hjálparsveit-
um tóku þátt i leitinni. Lengst til
vinstri er Jóhannes Briem, einn þeirra
er stjórnuðu leitinni.
Guðmundur var hinn hressasti er hann kom niður af fjallinu og var honum vel fagnað af konu sinni.
Guðmundur Oddsson læknir ásamt
hundi sinum, nýkominn niður af
fjallinu: „Hundurinn yljaði mér tals-
vert.” DB-mynd: S.
„Hundurinn hélt á mér hita”
sagði Guðmundur Oddsson læknir
sem lenti í hrakningum á Esjunni
„Hundurinn hélt á mér hita. Yfir-
leitt fer ég aldrei án álpoka en núna,
þegar ég þurfti einmitt á honum að
halda, var hann ekki með. Við ætl-
uðum bara að skjótast stutta stund,”
sagði Guðmundur Oddsson læknir er
blaðamaður DB ræddi við hann síð-
degis i gær.
Guðmundur var þá hinn hressasti,
sagðist þó vera með talsverða strengi
enda búinn að ganga í um ellefu
klukkustundir um nóttina.
„Við ætluðum upp í skálina hjá
Kistufelli. Það var bjart yfir og við
sáum rjúpu og eltum hana en þá skall
á þoka,” sagði Guðmundur. Hann
sagðist síðan hafa gengið í öfuga átt
og ekki fundið félaga sinn. Þegar
hann sá fram á að komast ekki niður
þá hlóð hann byrgi og settist þar um
kyrrt ásamt hundinum.
Harín sagðist síðan hafa farið á
stjá aftur um kl. 11 er þokunni létti
nokkuð, og skotið haglaskotum á
klukkutíma fresti. „Mér var orðið
dálítið kalt um kl. 3 enda mikill
strekkingurinn. Mér tókst þá að
finna skjól og stoppaði þar. Hundur-
inn yljaði mér talsvert,” sagði Guð-
mundur. Hann sagði að sporhundur-
inn hefði staðið sig mjög vel og rakið
slóðina vel. „Nei, ég var raunveru-
lega ekki hræddur. Ég var þó á vond-
um stað vegna þess að ég hafði
gengið i austur. Mér var farið að liða
illa um kl. 4 enda var ég ekki vel bú-
inn,” sagði Guðmundur.
Eins og áður segir fann sporhund-
urinn Guðmund um kl. 4.30. Hrakn-
ingum hans var þó ekki þar með
lokið því eftir var erfið ferð niður af
fjallinu.
-GA.I
Það var sporhundur Hjálparsveitar skáta i Hafnarfirði sem fann Guðmund. Hér
er hundurinn ásamt hjálparsveitarmönnum.
DB-myndir: S.
Deila Hagkaups og bókaútgefenda um bóksölu:
Það er því ekki hægt að fullyrða að
málið verði frágengið fyrir jól, eða
áður en mesta bókavertiðin hefst. Það
má því e.t.v. segja að fullseint hafi
verið farið af stað hjá Hagkaupi nú.”
Svæði það sem hugsað er fyrir bóksölu
i Hagkaupi stendur autt og ónotað
meðan beðið er úrskurðar samkeppnis-
nefndar.
DB-mynd: EinarÓlason.
0VISTAÐ MALIÐ VERÐIFRAGENGIÐ FYRIR J0L
—segir Gísli ísleif sson lögf ræðingur Verðlagsstof nunar
— Neytendasamtökin undrast af steðu útgefenda
„Það er litið að gera;í núna i deilu-
rnáli Hagkaups og bókaútgefenda,”
sagði Gísli ísleifsson lögfræðingur
Verðlagsstofnunarinnar í viðtali við
fréttamann DB. Eins og Dagblaðið
hefur greint frá sótti Hagkaup um leyfi
til bóksölu, en bókaútgefendur hafa
ekki viljað fallast á það. Málinu var
vísað til samkeppnisnefndar, sem nú
fjallar um málið.
„Félag íslenzkra bókaútgefenda
hefur kynnt samninga sína,” sagði
Gisli, „og stofnunin er nú að kanna
gögn og annað sem máli skiptir fyrir
samkeppnisnefnd. Það má gera ráð
fyrir því að mál þetta taki nokkurn
tíma. Hér er um að ræða „prinsipmál”
og eitt hið fyrsta sem samkeppnisnefnd
glimir við.
Neytendasamtökin hafa sent frá sér
tilkynningu þar sem þau lýsa undrun
sinni á þeirri afstöðu, sem Félag
íslenzkra bókaútgefenda hefur tekið til
umsóknar Hagkaups um bóksöluleyfi.
Segir þar að synjun útgefenda byggist
fyrst og fremst á' einokunartilhneig-
ingu, sem sé í engu samræmi við lög
landsins eða hagsmuni neytenda.
Jafnframt leggja Neytendasamtökin
áherzlu á að stöðvað verði þegar í stað
það athæfi þessara aðila, er þeir
ákveða ófrávíkjanlegt lágmarksverð á
vöru sinni.