Dagblaðið - 10.11.1980, Blaðsíða 12
12
LIN
LÁNASJÓÐUR ÍSLENSKRA NÁMSMANNA
Umsóknarfrestur
náms/ána
Næsti umsóknarfrestur um lán veturinn 1980—
1981 rennur út 15. nóv. næstkomandi.
Umsóknir sem berast sjóðnum fyrir 15. nóv.
verða afgreiddar þannig: 1. febr. 1981 verður af-
greitt lán fyrir tímabilið 1. júní 1980 til 31. mars
1981. Endanlegt lán fyrir veturinn 1980—1981
verður síðan afgreitt í marz. Það greiðist síðan
námsmönnum erlendis 15. apríl en námsmönn-
um á íslandi 15. apríl og 15. maí.
Ath. Þeir sem þegar hafa sótt um lán fyrir vetur-
inn 1980—1981 þurfa ekki aö endurnýja umsókn
sína.
Á námsárinu 1980—1981 hafa útborganir á
námslánum breyst á eftirfarandi hátt: Námslán
til námsmanna erlendis verða greidd út á þriggja
mánaða fresti eða 15. okt. 1980, 15. jan. og 15.
apríl 1981 og fara tvær síðari greiðslurnar beint
inn á viðskiptareikning viðkomandi námsmanns.
Aftur á móti verða greiðslur námslána til náms-
manna á íslandi mánaðarlegar og þeir hlutar lán-
anna sem ekki eru afhentir við undirritun
skuldabréfs verða lagðir beint inn á viðskipta-
reikning viðkomandi lántakanda 15. hvers mán-
aðar. Námsmenn eða umboðsmenn þeirra þurfa
að undirrita skuldabréf tvisvar á lánstímabilinu,
að hausti og að vori.
Afgreiðsla sjóösins er opin frá 1—4 eftir hádegi.
Reykjavík 4.11. 1980.
G. O. bí/aréttingar og viðgerðir 7'
Smíða, sel og
festi sílsalista
(stállista) á allar
gerðir bifreiða.
Stokkseyringar
Árnesingar
□ Vandlátir verzla hjá okkur.
□ Vorum að taka upp mikið úrval leik-
fanga og annarrar gjafavöru á góðu
verði.
□ Tilboð okkar 1 nóvember er
20% afsláttur af öllum
kjötvörum í kæliborði.
□ Nýjar kjötvörur daglega.
□ Verzlið í jólamatinn tímanlega.
□ Opið alla daga til kl. 22, laugardaga
og sunnudaga líka.
□ Þið pantið. — Við sendum heim, eða
komið og sannfærizt.
Við bjóðum ykkur velkomin.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1980.
Þrítugasta ríkis-
stjómin
frá stríðslokum
—f jórða ríkisstjóm Martens á 18 mánuðum ætlar að draga
úr opinberrí eyðslu og lækka framlög til félagsmála
Nýstjóm kom tilvaldaí Belgíu fyrir
Itæpum hálfum mánuöi. Er það sú
þrítugasta síðan landið var frelsað
undan oki þýzkra nasista árið 1944.
lEkki var einu sinni búið að skýra frá
nöfnum allra ráðherranna áður en
farið var að veita vöngum fyri því hve
lengi nýja stjórnin mundi sitja.
Forsætisráðherrann Wilfried
Martens hefur nú myndað fjórðu
samsteypustjórn sína á átján mán-
uðum og engin ástæða er til að ætla
að komandi vetur verði honum neitt
auðveldur. í stefnuskrá stjórnarinnar
ber hæst fyrirheit um að hleypa nýju
lífi í efnahagslíf Belgíu og minnka at-
vinnuleysi. Er það eitt hið mesta sem
þekkist nú í Evrópu.
Mikill halli hefur verið á fjárlögum
belgíska ríkisins og verður það eitt af
hlutskiptum ríkisstjórnar Martens að
bæta úr þvi. Þetta þýðir auðvitað sam-
drátt í opinberri eyðslu og auk þess
eru uppi fyrirætlanir að draga úr
ýmsum frádráttarliðum sem hafa
verið á skattgreiðslum fólks. Þá má
einnig nefna að ætlunin er að draga 1
úr greiðslum til félagsmála en al-
mannatryggingakerfi Belgíu hefur
verið talið eitt hið fullkomnasta í
heimi.
Til að ná því takmarki að minnka
óhagstæða stöðu ríkissjóðs þarf að
grípa til óvinsælla aðgerða eins og
minnkandi bóta til atvinnuleysingja.
Mun það að likindum koma harðast
niður á ungu fólki sem hætt hefur í
skóla áður en skyldunámi lauk eða
hefur ekki aflað sér neinnar sér-
menntunar. Áður en þessu marki
verður náð þarf ríkisstjórnin að
semja við verkalýðsfélögin. Veru-
legur hluti atkvæðamagnsins sem að
baki þingfylgis stjórnarinnar er
kemur frá félögum í verkalýðshreyf-
ingum landsins. Slíkt samkomulag
gæti orðið torsótt.
Auk þess bíður höfuðvandamál
Belgíumanna ávallt allra þarlendra
ríkisstjórna. Eins og frægt er orðið
skiptist landið í tvö málasvæði. Svo á
að heita aö samkomulag hafí náðst í
þessum efnum en það er veikt. Helzti
ásteytingarsteinninn er Brussel,
höfuðborgin. Þar eru bæði málin
töluð en franskan vinnur stöðugt á,
meðal annars vegna þess að höfuð-
stöðvar Efnahagsbandalags Evrópu
eru þar.
Annars eru 5,5 milljónir Flæmingj-
ar sem tala mál skyldast hollenzku og
síðan eru Vallónarnir með frönsku en
þeir eru 3,2 milljónir. Samkomulagið
um málsvæðin er sagt hvíla á svo
veikum grunni að það gæti hvenær
sem er brostið.
Síðasta ríkisstjórn Belgíu fór frá
völdum hinn 7. október síðastliðinn.
Var hún einnig undir forustu Wil-
fried Martens. Að henni stóðu sex
stjórnmálaflokkar. Þegar hún fór frá
voru nákvæmlega liðin 150 ár síðan
Belgía varð sjálfstætt konungsriki
árið 1830. Athygli vakti að við fall
þessarar þriðju stjórnar Martens
brutu belgískir stjórnmálamenn
margra ára hefð. í fyrsta skipti f einn
áratug féll belgísk ríkisstjórn ekki
vegna deilna um tungumál á milli
Flæmingja og Vallóna heldur af deil-
um um efnahagsmál. í fyrsta skipti í
allan þennan tíma höfðu Belgíumenn
kynnzt því hvernig venjuleg stjórn-
málakreppa verður.
Fall ríkisstjórnar Martens, sem er
44 ára gamall lögfræðingur sem talar
flæmsku og er frá héraðinu Ghent,
bar þannig að, að tveir frjálslyndir
flokkar sögðu sig úr stjórninni í mót-
mælaskyni vegna þess að ekki náðist
samkomulag um að draga úr útgjöld-
um hins opinbera. Martens átti þvi
ekki annars úrkosti en afhenda
lausnarbeiðni sína til Baldvins
Belgíukonungs.
Næstu tvær vikurnar fóru i
viðræður á milli flokksmanna
Martens sjálfs, flæmskra kristilegra
sósíalista og vallónskra skoðana-
bræðra þeirra. Samanlagt eru þessir
flokkar stærstir á belgfska þinginu
með 82 þingmenn af 212 sætum.Auk
þess tóku þátt 1 viðræðunum Sósia-
listafíokkar bæði Vallóna og Flæm-
ingja en þeir mynda annan stærsta
flokkinn á þinginu.
Að lokum var lögð fram tuttugu og
átta blaðsíðna efnahagsáætlun þar
'W"w
sem gert var ráð fyrir takmörkunum
á launahækkunum, auknum
framlögum til fjármögnunar í iðnaði
og sjö prósent lækkun launa þeirra
sem gegna pólitískum störfum.
Hin nýja ríkisstjórn lofaði einnig
að draga úr opinberum lántökum.
Átti samdráttturinn að nema einum
af hundraði af brúttó þjóðarfram-
leiðslu árlega á næstu árum. Árið
1981 hefur verið gert ráð fyrir að hið
opinbera taki lán að upphæð 242
milljarðar belgiskra franka er það
6,3% af brúttóþjóðarframleiðslu.
Martens forsætisráðherra hefur
heitið þvi að standa við þessa áætlun.
Efnahagsstefna hinnar nýju rikis-
stjórnar var háð því að takast mætti
að ná samkomulagi við verkalýðs-
samtökin. Eins og áður sagði voru
margir ekkert á því að bíða þess hvort
það tækist heldur fóru samstundis að
spá því að henni mundi ekki einu
sinni endaSt líf til að koma á viðræð-
um við verkalýðsforingjana.
Frjálslyndi flokkurinn hefur verið
einna harðastur í gangrýni sinni á
þessa fjórðu rikisstjórn Martens.
Benda flokksmenn á veika stöðu
rikisstjórnarinnar gagnvart verka-
lýðsfélögunum. Fyrir aðeins tveim
mánuðum hafði fyrri stjórn undir
stjórn Martens orðið að láta af hug-
myndum um tvö prósent lækkun á
greiðslum i lífeyrissjóð opinberra
starfsmanna vegna andstöðu verka-
lýðshreyfingarinnar. Hefði þessi
aðgerð, ef af hefði orðið, minnkað
mjög hina óhagstæðu stöðu ríkis-
sjóðs.
Hin nýja miðflokkastjórn hefur
talsverðan meirihluta á belgíska þing-
inu. En stjórnarkreppur eru algengar
í Belgíu og ekki þarf að gera ráð fyrir
að þessi fjórða ríkisstjórn Martens
lifí neitt lengur en hinar þrjátiu ríkis-
stjórnir landsins frá stríðslokum.
■▼Wi ■
Deilur um flæmsku og vallónsku I Belgiu snúast nú mjög um höfuðborgina
Brussel. Þar hafa fyrri hlutföll raskazt vegna vaxandi notkunar frönskunnar I og
við aðalstöðvar Efnahagsbandalagsins.