Dagblaðið - 10.11.1980, Blaðsíða 13
13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1980.
Marty Feldman, grinleikarinn frábæri, fékk þunglyndiskast vegna þess hve slæmar
viötökur nýjasta kvikmyndin hans hefur fengið.
Marty Fcldfíian
reyndi að fremja
Robert DeNiro varð að
þyngjast um 30 kilo
Leikarinn Robert DeNiro varð að
fita sig um þrjátíu kíló áður en hann
þótti hæfur til að fara með hlutverk
millivigtarboxarans Jake LaMotta í
kvikmyndinni Raging Bull.
„Ég var orðinn svo feitur að ég gat
ekki einu sinni beygt mig til að reima
skóna mína,” segir Robert í viðtali
við tímaritið Life. „Ég blés eins og
hvalur og andardrátturinn var farinn
að hljóma ankannalega. Ég varð
aumur innan á lærunum, vegna þess
að þau voru farin að nuddast saman
og mig sárverkjaði í hælana vegna
allrar þessarar þyngdar.”
Meðan DeNiro fór með hlutverk
Jake LaMotta vó hann 106 kíló-
grömm.
„Dóttir mín vildi helzt ekki að
vinir hennar sæju mig,” segir hann.
„Ég leit líka út eins og skepna.”
Robert DeNiro í einu af sínum þekkt-
ustu hlutverkum, i kvikmyndinni The
Deer Hunter. Fróölegt verður að sjá
hann silspikaöan í myndinni Raging
Bull.
Tveimur verðmætum málverkum Crivelli. Gripirnir fundust i einka- franka. Síðan þau fundust hafa
frá fimmtándu öid og rómverskri safni svissnesks listmunasafnara árið staðið yfir viðræður milli italskra og
bronsstyttu, sem stolið var úr ítölsku 1974. svissneskra yfirvalda um hvernig ælti
safni árið 1973, hefur nú verið skilað Safnarinn bar því við að hann að afgreiða málið. Þau eru nú loksins
i hendur réttra eigenda. Málverkin hefði keypt listaverkin „í góðri trú”, komin á sinn stað í Ripartansone
tvö eru eftir meistara að nafni Carlo fyrir fimmtiu þúsund svissneska safninu í Ascoli Picenoá Mið-ítaliu.
sjálfs-
morð
Grínistanum Marty Feldman var
naumlega bjargað eftir að
hann hafði gleypt um sjötiu svefnpillur
í þunglyndiskasti. Vinir leikarans fengu
pata af því að hann hygði á sjálfsmorð
og gátu látið vita í tíma.
Feldman var ekið i flýti á Riverside
sjúkrahúsið í Los Angeles, þar sem
dælt var upp úr honum. Leikarinn lá
lengi i dái á eftir en þegar hann
vaknaði brá hann snarlega við, klæddi
sig í flýti og yfirgaf sjúkrahúsið.
Orsökin fyrir þessu þunglyndiskasti
mun vera sú að nýjasta kvikmyndin
hans, In God We Trust, hefur hlotið
ákaflega slæmar viðtökur.
Nýr Irans-
keisari
Reza Pahlavi, elzti sonur iranskeis-
ara, lýsti sjálfan sig arftaka föður síns á
tuttugu ára afmælisdegi sínum seint i
síðasta mánuði. Sjálfsagt verður þó
einhver bið á að hann komist til valda i
heimalandi sínu.
ÍJAiANÍ-t
NCffJWAi. **&
OI -OD4U
SD-6650
stæðu verði.
Staógr. veró
kr. 718.700
eða kr. 300
þús. útborg
stöðvar á 4
stöóvar á 5
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN
5 SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 39090
’fli
- . 3