Dagblaðið - 10.11.1980, Side 39
39
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1980.
I
Utvarp
Sjónvarp
ÖRYGGISMÁL EVRÓPU — sjónvarp í kvöld kl. 22.45:
Byrjað á að þrasa um
hvað á að þrasa?
Ráðstefna um öryggismál í Evrópu
hefst í Madrid á morgun. Er hún
framhald af Heisinkiráðstefnunni
1975 og Belgrad ráðstefnunni 1978.
En líkur benda til þess að Madrid-
ráðstefnan verði einstök i sinni röð.
Síðan 15. september hefur undir-
búningsnefnd fyrir ráðstefnuna
nefnilega verið að reyna að koma
saman dagskrá fyrir hana en hefur
gengið illa. Vesturveldin vilja að
tilhögun verði lik og á Belgrad-
ráðstefnunni, þau fái gott tækifæri
til þess að ásaka Sovétríkin um
mannréttindabrot sem eru brot á
samningi sem gerður var í Helsinki
svo og innrásina í Afganistan. Sovét-
menn vilja hins vegar að þau 35 ríki
sem ráðstefnuna sækja fái hvert sinn
ræðutíma, nákvæmlega jafnlangan.
Með því yrði sókn vesturveldanna
brotin niður í smærri einingar og því
ekki nærri því eins beitt.
Fyrir heigi hafði ekki náðst sam-
komulag um það hvor leiðin yrði
ofan á. Ljóst er þó að vesturveldin
ætla öruggiega að mæta á morgun og
líklegt þykir að Sovétríkin geri það
líka. En fyrstu dagar ráðstefnunnar
gætu þá farið í það að ræða dag-
skrárliði hennar eða eins og einhver
sagði að „þrasa um það hvað á að
þrasa”.
Um allt þetta fáum við að sjá
brezka fréttamynd í . sjónvarpinu í
kvöld. Við fáum víst örugglega að
vita næstu daga í gegnum fjölmiðla
hvernig miðar á ráðstefnunni eða
Uhro KekkonenFinnlandsforseti er upphafsmaður þess að halda ráðstefnu
um öryggismál f Evrópu ásamt Brésnef forseta Sovétrfkjanna sem án efa ræður
mestu um það hvort einhver árangur næst I Madrid.
hvort ýfirleitt næst einhver árangur.
Það að Ronald Reagan hefur verið
kjörinn forseti Bandarikjanna kann að
breyta verulega bæði því sem um
verður rætt, svo og hvernig þær
umræður fara fram. Enn er nokkuð
óljóst hver stefna hans í alþjóða-
málum verður og hvort sú aukna
harka sem hann boðaði í kosninga-
baráttu sinni í viðskiptum við Sovét-
ríkin er aðeins kosningaslagorð eða
hvort hann meinar eitthvað í því sam-
bandi.
-DS.
Árni Sigfússon blaðamaður og Kristján Hjaltason við gerð þáttarins Hreppamál.
HREPPAMÁL—útvarp íkvöld kl. 22.35:
Visismynd BG.
Sveitarstjórnir í léttum dúr
„Við höfum haft samband við allar
sveitarstjórnir á landinu og fáum frá
þeim það sem nýjast verður á dagskrá á
hverjum tíma,”sagði Árni Sigfússon
blaðamaður sem ásamt Kristjáni
Hjaltasyni sér um þáttinn Hreppamál í
útvarpinu í kvöld. Þátturinn verður á
dagskrá hálfsmánaðarlega í vetur og er
hann helgaður sveitarstjórnarmálum.
„Það hefur viljað brenna við að
þættir sem gerðir hafa verið um þessi
mál hafa verið þungir. Þetta ætlum við
að reyna að varast, við viljum reyna að
hafa þættina létta og skemmtilega og
um leið auðvelda að skilja fyrir al-
menning. Þannig verðum við með í lok
hvers þáttar atriði sem fyrir hafa komið
í sveitarstjórnarmálum en menn vilja
sem minnst um tala. Hvers kyns
klaufaleg atriði og óhöpp.
í hverjum þætti verðum við aðallega
með eitt fast efni. Þannig verður fyrsti
þátturinn um uppbyggingu sveitar-
félaga og Lýður Björnsson sagnfræð-
ingur rekur upphaf þeirra og sögu.
Við tínum svo til það sem okkur
fínnst merkiiegast úr þeim upplýsing-
um sem okkur berast frá sveitarfélög-
unum og höfum með,” sagði Árni.
-DS.
SENDIBÍLASTÖÐIN H.F. • BORGARTÚNI21
VERZLUN
Öll almenn
fyrir
dömur og herra -
Andlitssnyrting
Handsnyrting
Fótsnyrting
Litanir
Vaxmeðferð
Hringið og athugið
okkar hagstæða
verð
•
Nokkrir tímar
lausir í sóllampan-
um
TIMAPANTANIR í SÍMA
ÞyríD. Sveinsdóttir, snyrtifrœðingur 31262
Katrín Þorkelsdóttir, snyrtifrœðingur
ÁRSÓL, GRÍMSBÆ, Sími 31262.
HAGSTÆTT VERÐ
PÓSTSENDUM
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
Kven-og
herrafattaverzhm
á góðum stað í bænum til sölu. Verzlunin gefur vel af sér
og g'æti gert mun betur. Góð erlend umboð. Til greina
kemur að taka bíl upp í greiðslu. Þeir sem áhuga hafa
vinsamlegast leggi nafn og símanúmer inn á augl. DB,
sími 27022 eftir kl. 13 virkadaga. H—1005
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
25% dráttarvextir falla á launaskatt fyrir 3. árs-
fjórðung 1980 sé hann ekki greiddur í síðasta lagi
17. nóvember.
Fjármálaráðuneytið
FJÖLBREYTT ÚRVAL
AF KÚPLUM
HENTUGIR I ELDHÚS, BÖÐ,
GANGA OG ALLS STAÐAR
ÞAR SEM GÓDRAR
LÝSINGAR ER ÞÖRF