Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1905, Page 92
94
rauninni þýzkt og danskt, þá væri engin furða þó vér fengj-
um hingað til landsins þýzkt og danskt fræ, sem kallað væri
norskt. Til þess að tryggja sér svo vel, sem unt er, að fá
gott norskt fræ af Þrándbeimsgulrófum fær Ræktunarfélag
Norðurlands það því að eins frá þeim stöðum í Noregi, sem
áreiðanleg vissa er fyrir, að fengist er við ræktun þess.
Þá er á bls. 79—96 ritgjörð um sprettu og vöxtþrótt
fræja, sem skemd eru af frosti. Hún er bygð á vísindaleg-
um tilraunum, sem gjörðar hafa verið með frostskemd fræ.
Má af henni meðal annars sjá, að það einkum er vöntun á
þrótti til rótgreiningar, sem einkennir plöntur, er vaxa af
frostskemdum fræjum, en af þessu er það eðlileg afleiðing
að plöntunum verði hætt við að deyja út.
Síðast 1' þessari skýrslu eru ýmsar reglur til athugunar
þeim, sem taka vilja að sér að gjöra tilraunir út um Iandið.
f síðari skýrslunni er fyrst á bls. I —12 samskonar yfirlit
yfir tilraunir gjörðar á árinu 1904 sem þær, er getið hefir
verið um í fyrri skýrslunni fyrir árið 1903. Tilraunasvæðin,
sem uppskera er tekin af, hafa verið talsvert meiri að víð-
áttu en árið áður. í 16 ár, sem tilraunir hafa verið gjörðar,
eru tilraunablettirnir orðnir alls að tölu 2220, og smáreitir
88257, en samlögð stærð allra tilraunablettanna á þessum
tíma er um 30 þús. are eða 940 dagsl.
Þá eru á bls. 12—57 samanburðarskýrslur yfir 16 ára til-
raunir með 56 hafrakyn. Fylgja þeim skýrslum athugasemdir
og skýringar snertandi reynslu þá, sem fengist hefir um
gæði sérstakra kynja. Duppauer hafrar eru taldir beztir yfir-
leitt sökum bráðþroska. Þrjú ný kyn, sem reynd hafa verið
sfðari árin hafa þó gefið meiri uppskeru. Þau eru:
Waverley frá Gartons á Englandi.
Guldregn og j , Sv|.þjM.
Klock-hafrar J
En þessi kyn þurfa lengri þroskatíma en Duppauer, sem
svarar 5, 4 og 3 dögum.
A bls. 58-61 er skýrsla með athugasemdum um 4 ára
tilraunir til samanburðar á kröfuhörðum bygg og hafrakynj-