Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 62
f>4
að breinsa það burt með verkfærum, því á sjálfum hryggj*
unum vex það minna í kringum plönturnar.
Spírun. Bezt er að sá rófnafræi þegar útlit er fyrir úr-
komu. Fræið kemur upp eftir 6—io daga.
Grisjun. Fræinu er vanalega sáð svo þétt, að hver plant-
an vex við aðra, eftir allri röðinni, þegar fræið fer að koma
upp. Að sá svona þétt, er gert vegna þess, að hinar
ungu plöntur skýla hver annari og eiga því hægra með að
skjóta rótum, og ná meiri þroska í fyrstu. Þetta hefir eink-
um þýðingu ef vorið er kalt. A vorin geta og nokkur skor-
kvikindi eyðilagt hinar ungu plöntur. Séu plönturnar fóar,
geta þær eyðilagst allar, og á þann hátt öll von um upp-
skeru brugðist. Standi plönturnar þétt, er þeim síður öllum
hætta búin. Viss skordýr gera opt mikinn skaða í Noregi
og víðar á þennan hátt, »Jordloppen« (holtica remorum).
Eg hefi eigi orðið var við þau hér á landi. Þá rófnaplönt-
urnar hafa náð þeim þroska ■— (vanalega eftir 3—4 vikur)
að vaxin eru á þeim tvö til þrjú blöð, auk fyrstu fræblað-
anna, þarf að grisja þær, þ. e. taka burt allar plöntur sem
eigi eiga að þroskast, en skilja eftir beztu plönturnar með
hér um bil 12 þuml. millibili. Þetta er gjört á þennan
hátt: plönturnar eru numdar burt úr röðinni með sérstöku
verkfæri »turnips hakka« en skildir eptir toppar með nefndu
millibili. Topparnir eru síðan reittir með hendinni, en þroska-
mesta plantan skilin eftir af hverjum toppi.
Hirðing er aðallega fólgin í að varna því að illgresi geti
náð verulegum þrifum. Þá grisjað er, á að uppræta alt ill-
gresi. Þetta má gera með arfajárni, eða með litlum arfa-
plógi. Einnig eru til arfaplógar sem hestar ganga fyrir, og
eru þeir mikið notaðir þar, sem stór svæði eru ræktuð með
fóðurrófum í öðrum löndum. Um leið og arfinn er upprættur,
þarf að róta moldinni til á milli raðanna, svo að loftið eigi
hægra með að komast niður 1' jarðveginn; við það verða
betri skilyrð fyrir því að bakterfulíf geti starfað í jarðveg-
inum og valdið þar efnabreytingum. Vaxi illgresi eftir
að það hefir verið upprætt í fyrsta, sinn þarf að uppræta