Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 64
66
Afbrigði. Tala tilrauna- staða. Uppskera af vallardagsl. Pund.
White globe 19 22,800
Blánæpa (norsk) 13 18,250
Bortfelder 17 18,050
Greystone 13 17,915
Early improved 13 17,400
Dales hybridum 12 15,587
Yellow aberdeen 5 13,600
Finnlands fladnæpe 7 13,000
White tankard 9 11,040
Eins og taflan sýnir er mest uppskeran af White globe, af
henni hafa verið reynd tvö önnur náskyld kyn, sem tekin
hafa verið með í reikninginn. Þessar rófur eru næringarlitlar
og geymast illa, eins og þegar hefir sagt verið. Næst koma
blánæpur og bortfeldur, báðar mjög næringarríkar og geym-
ast vel. Þær ráðum vér bændum til að byrja með að rækta.
Þar til reynslan sýnir að önnur afbrigði þrífast hér betur.
Af Bortfelder hafa verið reynd tvö kyn, fjónskar og þýskar.
Hafa þær fjónsku reynst betur. Mesta uppskeru höfum vér
fengið af dagsláttu 45,000 pd. af White globe og 35,000
pd. af blánæpum.
A Suðurlandi höfum vér eigi skýrslur um aðrar tilraunir
en þær, sem gerðar hafa verið í tilraunastöðinni í Reykjavík
og prentaðar eru í búnaðarritinu. Skýrslur þessar eru frá
árunum 1901—6. Eigi er þess alstaðar getið hvenær hefir
verið sáð og tekið upp. En að því er séð verður, er vaxtar-
tíminn að meðaltali um 120 dagar svo sem áður hefir verið
nefnt.
Meðaltal af uppskerunni er: