Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1907, Blaðsíða 31
33
sjá hvernig þar væri umhorfs, og hvernig fyrirskipun
um Ræktunarfélags Norðurlands hefði þar verið fram-
fylgt.
2. Ingimar Sigurðsson. Skýrsla hans er þannig:
1. dag maímánaðar undirbjó eg ferð mína til Akureyrar
Á stað hélt eg 2. sama mánaðar, ásamt 1Q skólapilt-
um fiá Hólum, og komuin við til Akureyrar að kvöldi
þess 3. sama mánaðar.
Eg hafði á hendi aðalumsjón og verkstjórn í aðaltil-
raunastöð Ræktunarfélagsins á Akureyri þangað til Sig-
urður bróðir minn kom heim.
Pann 4. maí byrjaði vinnan í tilraunastöðinni, sem var
aðallega í þvi fólgin, að undirbúa vermireiti undir
sáningu, grafa lokræsi, rista ofan af, og m. fl. Eg hafði
mælt svo fyrir, að nokkurir af þeim piltum frá Hólum,
sem æltuðu að verða verklega námstímann við tilrauna-
stöðina, kæmu nú þegar, því jörð var orðin auð og þýð,
og útlit fyrir, að hægt mundi verða að byrja þá strax.
Hið verklega námstímabil byrjaði 14. maí og stóð til
1. júlí: Á námsskeiðinu voru 25 nemendur, þar af
voru 10 stúlkur og 15 piltar. Kenslunni var hagað
eins og undanfarandi vor, nemendurnir unnu að verk-
legum störfum 8 klst. á dag, og var svo 1 bóklegur
tími (fyrirlestur úr jarðyrkjufræði) flesta daga, þá hægt
var að koma því við vegna annara anna. Eftir tilmæl-
um Péturs Jónssonar alþingismanns á Gautlöndum fór
eg austur á Húsavík 15. maí til að segja fyrir um
byggingu sláturhúss, sem Kaupfélag Pingeyinga hefir
í hug að reisa þar, (og hefir gert það á þessu sumri).
Eftir ósk formanns Ræktunarfélagsins fór eg á aðalfund
þess á Blönduós 20. júní. (Sjá fundargerðina):
Dagana frá 16. júlí til 24. s. m. fór eg leiðbeininga-
ferð um Þingeyjarsýslu. Kom eg á 15. bæi, það sem
helst var leitað álits um var:
Grasrækt á 12 stöðum.
Garðyrkju - 8 —
Mælingar - 6 —« —
3