Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1946, Side 64
66
átt. Samt fær engum dulist, að að ekki hefur hér verið ein-
ungis um að kenna óblíðri veðráttu, heldur miklu fremur
alls konar mistökum af hálfu þeirra, sem áttu að annast þær.
Má og segja, að tilraunatíminn væri alltof stuttur, til þess
að nokkurn dóm væri hægt að kveða upp um það, hvort til-
tækilegt væri að fást hér við kornrækt. Dómar samtíðar-
manna, þeirra, er dómbærastir mega kallast, hníga og allir
í sömu átt. Jón Eiríksson segir þannig, að tilraunirnar hafi
misheppnast vegna „skorts á þekkingu, reynslu og þolgæði,
en fremur öðru vegna ónógs undirbúnings jarðvegsins.15)
Líkrar skoðunar eru þeir barón Hastfer hinn sænski, sem
hingað var sendur, til að kenna íslendingum fjárrækt, Jón
Snorrason og Þórður Thoroddi.
Rækilegast er álit þeirra Eggerts og Bjarna um þessi efni.
Þeir kenna ónytjungsskap og hirðuleysi hinna erlendu
bænda fremur öðru um hvernig fór. Telja þeir, að bændur
þessir hafi verið látnir eiga alltof gott án nokkurs tillits til,
hver árangur vrði af starfi þeirra. Ef þeir hefðu átt að afla
sér sjálfir korns til matar, myndu þeir hafa lagt meiri hug
á störf sín og náð betri árangri. Eggert telur, að tilraunirnar
hafi sannað, að sunnanlands hafi kornið náð fullum þroska.
Hins vegar sé það ekki að undra, þótt kjarninn væri linur,
því að kornið þurfi að þurrka, en það hafi verið vanrækt.
Vitnar hann í kornrækt Færeyinga máli sínu til stuðnings og
telur víst að betur hefði farið, ef Færeyingar hefðu verið
fengnir hingað í stað dönsku bændanna. Einnig hefði mátt
hagnýta sér reynslu Skaftfellinga um verkun melkornsins.
En til þess hefðu hinir erlendu bændur verið ófáanlegir,
þótt þeim hefði verið á það bent.16)
Reynsla nútímans hefur sýnt, að mjög fer dómur Eggerts
nærri sanni. Er ekki annað unnt en að taka undir með hon-
um og viðurkenna, að þrátt fyrir öll mistök, hafi árangur
þeirra verið jákvæður, svo langt sem hann náði. En þess ber
að gæta, að fæstar tilraunirnar stóðu nema 2—3 ár, og engar
lengur en 5—6 ár, og hurfu þá hinir erlendu bændur aftur