Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1959, Síða 151

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1959, Síða 151
HALLDÓR HERMANNSSON 151 honum hafi ekki líkað það illa. Vænna þótti honum þó eflaust um Ajmœliskveðju þá. er Finnur Sigmundsson landsbókavörður sendi honum, og það þótt hann væri af ráðn- um hug mjög á móti slíkum afmælisritum, nema þau væru safn af greinum eftir af- mælisbarnið. Dr. Helgi P. Briem afhenti Halldóri bókina í veizlu, er hann hélt honum á afmælisdaginn 6. janúar 1948 í New York. Fekk Halldór þar óspart lof fyrir störf sín, meðal annars af Vilhjálmi Stefánssyni —- en Halldór kvaðst aðeins hafa verið að gera skyldu sína. Mælt er, að á yngri árum hafi Halldór verið göngugarpur inn mesti. Gekk hann oft langar leiðir með félögum sínum, svo sem til Watkins Glen, sem vera mun 40—50 ensk- ar mílur frá Iþöku. En aldrei vissi ég hann synda í Caynga Lake, enda var hann aldrei heima á sumrum, en var orðinn of gigtveikur til að þola slíkt, er hann settist að í Iþöku. Um sextugt var hann enn heilsuhraustur, en þó var hann þá farinn að kenna liða- gigtar þeirrar, er lagði hann síðast í kör. Oft var köld vist og dragsúgur í íslenzka bóka- safninu, sem er í kjallara bókasafnsbyggingarinnar, og kenndi Halldór því oft um, að hann varð veikur. A sjötugsaldrinum ágerðist gigtin, og leitaði Halldór sér þó oft heilsubótar með vist- um á hressingarhælum og sjúkrahúsum (t. d. í Sulphur Springs, N. Y., og í Sayre, Pa.). Því miður fannst honum þessar stofnanir stundum minna sig meir á þriðja flokks hótel eða fangelsi en heilsuhæli; en Halldór var góðu vanur af gistihúsum. Læknarnir hugg- uðu hann með þeirri köldu huggun, að hann gæti ekki dáið af gigtinni; hún réðist ekki á neitt höfuðlíffæri manna. Mér er lítt kunnugt um, hvar Halldór bjó fyrr á árum, en það mun hafa verið í her- bergjum eða klúbbum einhleypra kennara. En rétt fyrir stríð eða snemma á stríðsárun- um flutti hann í Bel-Ayre Apartments á 700 Stewart Ave og hafði þar fimm herbergja íbúð með eigin húsgögnum og bókasafni sínu, því sem hann hafði ekki selt, er hann hætti kennslu. Þar hafði hann um tíma svartan þjón, er sá um mat fvrir hann. Annars var hann vanur, meðan hann gat hreyft sig, að fara út sjálfur, taka sér strætisvagn eða bíl ofan í bæ og eta þar á Hotel Ithaca eða í hinu fína nýja mötuneyti prófessoranna, Statler Club, uppi á háskólalóðinni. Eg var heima á íslandi sumarið 1951. En sumarið 1952 var eg aftur í íþöku og sá þá, að Halldóri var brugðið. Hann komst nú ekki hjálparlaust niður í sinn bíl. Það sumar fór eg oftast með hann í matinn á Statler Club í mínum bíl, og komst hann það, ef hann var studdur ofan og inn í bílinn. Um haustið var ekki um annað að tala en að fá sér mann eða ráðskonu að sjá um sig. Um jólaleytið 1952—53 fór til hans frændkona hans, Ingibjörg Árnadóttir Björnsson, sem þá stundaði hjúkrun í New York, en sonur henn- ar, Jón Björnsson, var þá við nám í íþöku. Ingibjörg dreif Halldór til að fá sér hjóla- stól. Eftir það hafði Halldór ávallt ráðskonur, er allar dáðust að honum fyrir geðprýði og kurteisi. Og eftir það lifði Halldór í rúmi sínu og hjólastól og fór mjög sjaldan út nema til læknis. Hann gat enn lesið og skrifað nokkuð, þótt hönd hans væri farin að bera merki gigtarinnar og væri ekki útaf eins fögur og forðum. Hann hafði hvorki vanið sig á að nota ritvél né diktafón, né segulband; heldur ekki að lesa stúlku fyrir; því varð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.