Vísbending


Vísbending - 18.12.2000, Blaðsíða 22

Vísbending - 18.12.2000, Blaðsíða 22
ÍSBENDING T Tppsveiflan leiðir til meiri fjárráða hjá einstaklingum, KJ fyrirtœkjum og sjóðum, sérstaklega lífeyrissjóðum (sem njóta hœkkandi launa hlutfallslega). Þessir aðilar leita inn á verðbréfamarkaðinn eftir fjárfestingarkostum. Mikil eftirspurn leiðir til verðþenslu og síðan bœtist við hagnaður af spákaupmennsku og nýfenginn auður eigenda Internetfyrirtœkjanna. Þetta spennir upp bogann og spurn- ingin er ekki hvort hann bresti heldur hvenœr. 5. tbl. - 4. febrúar (Hvenær springur Netbólan? - Tómas Örn Kristinsson). Vtitnaskil hafa orðið íþróun Netsins í viðskiptum á þessu ári en Netið á eftir að hafa mikil áhrif þegar fram í sækir þó að heiminum verði ekki snúið á hvolfeins og margir virtust vera að spá í byrjun ársins. Aprílmánuður var þess vegna ekki uppliafið á endinum heldur miklu frekar endirinn á upphafinu. 45. tbl. - 10. nóvember (Endirinn á upphafinu). Stefnumótun og stjórnun Tiá þarf að átta sig á því að árangur fyrirtœkis er ekki skapaður á fjármálatorginu lieldur á markaðstorginu, með því sem fyrirtœki hefur upp á að bjóða og með þeim hœtti sem það býður upp á það. 1. tbl. - 7. janúar (Áramótaheit íslenskra fyrirtækja). Cttjórnendur hafa tilhneigingu til þess að þakka sér O árangurinn þegar vel gengur en kenna óhagstæðri þróun hagstœrða um útkomuna þegar illa gengur. Með nýjum aðferðum til varnar áhœttu er það t.d. tœplega boðlegt lengur að kenna óhagstæðri gengisþróun um tap á rekstrinum. 4. tbl. - 28. janúar (Stjórnun hcildaráhættu í rekstri fyrirtækja - Guðmundur Magnússon). T?n með því aðfóstra nýsköpun og leyfa grœðlingum að fá j-jsitt eigið frelsi geta fyrirtæki, í næstum hvaða atvinnu- grein sem er, náð að skapa andrúmsloft vaxtarfyrirtækis og náð til sínfrumkvöðlum sem geta skapað mikil verðmœti með vinnu sinni og hugmyndum. 10. tbl. - 10. mars (Fyrirtækjaspuni). TT'ins er því farið með nýsköpun og framsœkni hjá fyrir- J—jtækjum, ef allir vinna að sama markmiði er mun líklegra að árangur náist. Þegar fyrirtæki hefur á að skipa hæfileika- riku starfsfólki sem hefur leikgleði og skýrt stefnumið að leiðarljósi er líklegt að sókn sé besta vörnin. I slíkum ham er fyrirtæki nœr ósigrandi. 28. tbl. - 14. júlf (Knattspyman í stefnumótun fyrirtækja). ZXskufyrirbrigði í stjórnun hjálpa ráðgjafarfyrirtækjum að skapa nýja tekjumöguleika og það virðist aldrei vera skortur á þeim. Vandamálið er yfirleitt fólgið í því að taka fyririiggjandi þekkingu og pakka henni inn í þar til gerðar lausnir sem stjórnendur fyrirtœkja geta ekki verið án. 34. tbl. - 25. ágúst (Góð ráð dýr). Laun og starfsmenn Jfostir fyrirtœkjasamninga eru ótvíræðir, með þeim skapast J\jvettvangur þar sem stjórnendur fyrirtækja og fulltrúar starfsfólks skiptast á skoðunum umframtíð, reksturog stefnu- mótun fyrirtœkisins. Þannigfá starfsmenn meiri innsýn inn í stöðu fyrirtækj og geta með beinum hætti haft áhrif á starfskjör sin. Á sama tíma geta fyrirtœki og launþegar komist undan þeirri miðstýrðu heildarhyggju sem einkennt hefur íslenskan vinnumarkað. 7. tbl. - 18. febrúar (Fyrirtækjasamningar - Gylfi Dalmann). TTingað til hafa það yfirleitt verið fjármagnseigendur sem JfJ hafa uppskorið alla ávöxtun affyrirtækjarekstri. Nú eru hins vegar breyttir tímar og þekking er meira metin en áður, nú er það fjármagnið sem leitar uppi þekkinguna en ekki öfugt eins og áður var. 9. tbl. - 3. mars (Ný hugsun, nýjar leiðir). m Líklegt má telja að áfram verði gerðir heildarkjara- samningar um einhver lágmarksréttindi. Hvert verður þá hlutverk verkalýðsfélaga, verða þau óþörf? Alls ekki, þvert á móti munu þau í síauknum mœli koma meira inn sem ráðgjafar og sétfrœðingar og aðstoða félagsmenn sína... 13. tbl. - 31. mars (Verklföll - helgar tilgangurinn meðalið? - Gylfi Dalmann). Lítið atvinnuleysi hér heima má þakka mikilli uppsveiflu í efnahagslífinu og heimsbúskapnum undangengin ár og einnig hinu, að íslenzkur vinnumarkaður er að ýmsu leyti sveigjanlegri en gengur og gerist í nálægum löndum. 39. tbl. - 29. september (Atvinnuleysi, laun og verkföll - Þorvaldur Gylfason). Fj árfestingarfræði Lánveitendur hafa því hvata til aðfylgjast með lántakendum og setja einhverjar hömlur á það hvað hluthafar geta látið fyrirtæki sitt taka mikla áhættu. Ef það eftirlit er hins vegar ekkifyrir hendi er voðinn vís. 47. tbl. - 24. nóvember (Réttur til að yfirgefa rjúkandi rústir - Gylfi Magnússon). Gangverkið byggir á því að hinn almenni fjárfestir sé tilbúinn til þess að kaupa fyrirtœki sem verðlögð eru eingöngu út frá væntingum en ekki árangri. Stundum gefa þau góða ávöxtun eins og síðustu þrjú ár, stundum ekki eins og áhættufjárfestarfengu að reyna í lok níunda áratugarins. Þeir „bjánar" sem eru bjartsnýnastir taka mestu áhœttuna og áhœttufjáirfestarnir geta glaðir unað við sitt. Það er nefnilega aðeins þrenns konarfólk í þessum heimi, þeir sem kunna að telja og þeir sem kunna það ekki. 13. tbl. - 31. mars (Áhættufjármagnið flæðir). T Trærinear íkauphallagreininni œttu ekki að koma á óvart 1~J - kauphallir lúta að mestu sömu hagfrœðilögmálum og aðrar starfsgreinar. Taka má samlíkingu við rekstur matvöru- verslana, þar sem keðjur stórmarkaða hafa að mestu rutt kaupmanninum á horninu úr vegi. 27. tbl. - 7. júlí (Rekstrarumhverfi kauphalla breytist - Stefán Halldórsson). M'arktœkt samband menntunar og hagvaxtar veit á gott í þeim skilningi, að menntun er í mannlegu valdi. Stjórnvöld hafa það í hendi sinni að efla menntun og þá um leið hagvöxt til langs tíma litið. 48. tbl. - 1. desember (Menntun, gróska og markaður - Þorvaldur Gylfason). Borg og bær Oaw/ sem áður hafa bœttar samgöngur gert mikið til þess O að brjóta niður staðbundin þjónustuhagkerfi sem hafa verið byggð upp í kringum sjávarútveg eða vinnslu landbúnaðarvara. 4. tbl. - 28. janúar (Eru samgöngubætur góð byggðastefna? - Ásgeir Jónsson). Langflestir þeirra innflytjenda sem eru á Islandi eru frá mjög ríkum þjóðum, eða 64%, þannig að í hœsta lagi eru það um 5.300 manns eða 2% íbúa landsins, sem gætu talist til innflytjenda frá þróunarlöndum. 19. tbl. - 12. maí (Fólksflutningar til landsins). Tfllest bendir því til að þegar á heildina er litið verði áhrif Jri upplýsingabyltingar til að styrkja byggð á höfuðborgar- svæðinu og auka flutninga fólks af landsbyggðinni þangað. 24. tbl. - 16. júní (Upplýsingasamfélagið og byggðamynstur - Svcinn Ólafsson). Tyyggðavandinn liefur að mörgu leyti gegnsýrt íslenska JLJpólitík um langt skeið, margir fagna því en aðrir telja það sóun. 9. tbl. - 23. nóvembcr (Sveitarfélög í vanda - íslenskt atvinnulíf). Márkmið byggðastefnu œtti ekki að vera það að telja hausa heldur að tryggja góð lífskjörfyrir alla þegna landsins, líka þá sem búa úti á landi. 33. tbl. - 18. ágúst (Hvemig má þekkja dauðvona sveitarfélög? - Ásgeir Jónsson). 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.