Frjáls verslun - 01.09.1942, Síða 56
Verzlunarskólinn Frh af síðu 6
því, hversu vel menntuð og heiðarleg verzlun-
arstétt væri mikils virði fyrir þjóðfélagið og
talaði um það mikla starf, sem verzlunarstétt-
in hefði unnið í verkahring sínum.
Loks lýsti ráðherrann því yíir, að ákveðið
hefði verið að veita Verzlunarskólanum rétt til
þess að útskrifa stúdenta og mundi hann bráð-
lega birta um það ráðuneytisbréf og gefa út
reglugerð um framhaldsnám í Verzlunarskól-
anum og stúdentsréttindi þeim til handa, sem
því prófi Ijúka.
Var þessari yfirlýsingu ráðherrans tekið með
fögnuði og lófataki og ávarpaði skóíastjóri
hann að lokum og þakkaði honum undirtektir
hans og afskifti af þessum málum og fleiri
menntamálum og tóku nemendur og gestir und-
ir það með lófataki.
Bréf ráðherrans um stofnun stúdentadeildar-
innar hefur síðan verið sent skólanum og mun
„Frjáls verzlun" seinna skýra nákvæmlega frá
reglugerð þessarar nýju deildar.
Stúdentspróf Verzlunarskólans verður að
öllu leyti samskonar próf og stúdentspróf
Menntaskólanna og veitir sömu réttindi. En auð-
vitað er tekið tillit til sérgreina Verzlunarskól-
ans, og verzlunarpróf hans verður fyrri liður
stúdentaprófsins, svo að segja má, að stofnuð
sé þarna þriðja „línan“ eða deildin til stúdenta-
prófs, verzlunardeild og ný máladeild, samhliða
mála- og stærðfræðideildum Menntaskólanna.
Er með þessu stefnt í þá átt, er oft hefir verið
talað um nauðsyn á, að dreifa stúdentastraumn-
um ogstúdentamenntuninni í fleiri áttir en verið
hefir og auk þess sem það er nú orðið bæði sann-
gjarnt og nauðsynlegt, að verzlunarmenntað-
ir menn fái aðgang að háskólanámi eftir að við-
skiftafræði hafa verið tekin upp við háskól-
ann sem þáttur í námi og prófun laga- og hag-
fræðideildar.
Stúdentadeildin verður sérstök deild, en
Verzlunarskólinn og burtfararpróf hans, verzl-
unarprófið, verður óbreytt eftir sem áður, og
er gert ráð fyrir því, að flestir nemendur, sem
ætla út. í viðskiptalífið taki það próf, en stú-
dentsprófið hinir, sem vilja halda áfram há-
skólanámi.
Væntanlega kemst þessi nýja skipun bráðlega
á og ætti að verða Verzlunarskóianum til vegs-
auka og eflingar og viðskiftalífinu og verzlunar-
stéttinni til styrktar og menningarauka.
56
Viðhaldskostnaður og húsaleiga
Samkvæmt. útreikningum kauplagsnefndar
og Hagstofu íslands hefir vísitala viðhalds-
kostnaðar og húsaleigu verið sem hér segir:
Vístölur
viðh.kostn. húsal.
Janúar—marz 1939 . .. 100 100
Varið 1941 161 109
Haustið 1941 174 111
Vorið 1942 195 114
Haustið 1942 266 125
Yfirlit yfir kosningarnar 5. júlí 1942
Nú eru fengnar nákvæmar skýrslur um kosn-
ingarnar 5. júlí s.l. og hefir verið unnið úr
þeim. En væntanlega mun Hagstofan síðar
birta ýtarlegar skýrslur um niðurstöður sínar-
síðar.
Kjósendur voru rúmlega 73 þúsund eða ná-
lega 60 % af landsmönnum. Kvenfólk er í meiri
hluta eða 37.700 konur og 35.800 karlar. Þátt-
takan í kosningunum var þannig, að 80.3%
kjósenda kusu, en 1937 var þátttakan meiri
eða 87.9%. Hlutfallslega mest var þátttakan í
Vestur-Skaftafellssýslu eða 90.9%, en minnst
í Strandasýslu eða 73,6%.
Skifting atkvæðanna er sem hér segir:
Alþýðuflokkur................ alls 8979 atkv.
Framsóknarflokkur ......... — 16033 —
Frjálslyndir vinstrimenn ... — 103 —
Sameiningarflokkur alþýðu
(Kommúnistar) ............. — 9423 —
Sjálfstæðisflokkur ........ — 22975 —
Þjóðveldismenn ............ — 618 —
Auðir seðlar .............. — 483 —
Ógildir seðlar ............ — 326 —
Samtals 58940 atkv.
Ef reiknað er í hundraðshlutum, hlaut Sjálf-
stæðisflokkurinn 35.5% allra atkvæða,
Framsókn 27.6%, Sósíalistaflokkur 16.2%, Al-
þýðuflokkur 15.4%, Þjóðveldismenn 1.1% og
Frjálslyndir vinstrimenn 0.2%.
1 sambandi við kosningarnar í tvímennings-
kjördæmunum er það eftirtektarvert að af
12330 kjósendum sem kusu þar tvo frambjóð-
endur kusu 11.470 kjósendur frambjóðendur
frá sama flokki. Er af því auðsætt að sú mót-
bára gegn hlutfallskosningum í tvímennings-
kjördæmum, að þær geri kosningarnar flokks-
bundnari en áður að verulegum mun, er ekki
byggð á rökum. en undanlegar tölur við kosn-
ingarnar 18. október er enn ekki vitað.
FRJÁLS VERZLUN