Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1967, Side 6

Frjáls verslun - 01.09.1967, Side 6
FRJÁLS VERZLUN víós vegar aó FERÐAMENN OG GJALDEYRIR Ferðalög milli landa halda áfram að aukast. En hver eru vinsælustu ferðamannalöndin? Þar eiga miklar breytingar sér stað frá ári til árs. Sviss, Portúgal, Spánn og írland standa hér í fremstu röð. En samkeppnin er hörð, og mikil aukning varð á ferðamannastraumnum til Svíþjóð- ar, Niðurlanda og Frakklands á s.l. ári. Yfirfærslur gjaldeyris í aðildarlöndum Efna- hagssamvinnustofnunar Evrópu námu á árinu 1966 10 billjónum dala. Voru það 6% af gjaldeyristekj- um landanna. ERLENT VINNUAFL 1 EVRÓPU Um sjö milljónir erlendra verkamanna eru starf- andi í löndum V-Evrópu. Sums staðar eru þeir aiit frá 2—■6% af heildaríbúafjöldanum. Þannig er því háttað í Þýzkalandi, Belgíu, Frakklandi, Bretlandi og Svíþjóð. í Sviss er hlutfallið 17%. Á íslandi svarar það til um 30 þúsund manns. Flestir verkamannanna koma frá sveitum og þorpum S-Evrópu. Oft eiga þeir í miklum erfið- leikum með að aðlagast nýju umhverfi í háþró- uðum iðnaðarlöndum. Einn þriðji hluti þeirra er ólæs. Aðeins einn af hverjum sjö talar tungumál landsins, sem hann starfar í. Málið er þeim því mikill fjötur um fót, auk ólíkra siðvenja og stund- um trúarbragða. Um útlit og hegðun eru þeir oft frábrugðnir þeim, sem fyrir voru. Leiðir þetta síðan til árekstra. ÓEIRÐIR OG VERZLUN í HONG KONG í Hong Kong hefur ríkt versta skálmöld um mánaðabil. Nýlendan er ein helzta verzlunar- og i iðnaðarmiðstöð í Asíu, og erlend fjárfesting er þar í hámarki. Þrátt fyrir óeirðirnar hefur framleiðsla og útflutningur aukizt. Útflutningurinn nam 1324 milljónum dala á síðasta ári og byggist mest á klæða- og plastiðnaði og auk þess rafmagns- og útvarpsvörum. Margir fjármálamannanna í nýlendunni eru flóttamenn frá Rauða-Kína. Sagt er, að margir þeirra hafi komið hluta af auði sínum fyrir í er- lendum bönkum. Verksmiðjuvélar er margar hverjar hægt að flytja úr landi með skömmum fyrirvara. Kínverjar gætu hertekið Hong Kong, en talið er vafasamt, að svo muni fara. Kínverjar fá um 700 milljónir dala í erlendum gjaldeyri á ári af verzl- uninni við Hong Kong. Er það allt að 50% af heild- argjaldeyristekjum þeirra. Markmið Maó-sinna með óeirðunum mun frem- ur vera að ná tangarhaldi á stjórn nýlendunnar og auka áhrif sín innan hennar. í gömlu portú- gölsku nýlendunni Macao tókst þetta. Þar eru þeir nú jafnt metnir, Mao og Salazar. í Hong Kong átti að endurtaka leikinn. Það hefur misheppnazt vegna festu Breta. Baráttan hefur orðið að hryðjuverkastarfsemi, eftir að verk- föll og óeirðir fóru út um þúfur. Allt útlit er þó fyrir, að Bretar sitji um kyrrt í Hong Kong með þegjandi samkomulagi formannsins. „SVART VALD” OG MANNRÉTTINDI Mannréttindabarátta blökkumanna í Bandaríkj- unum er nú á krossgötum. Annars vegar standa þeir, sem fylgja ábyrgri mannréttindahreyíingu, sem krefst réttar blökkumanna og berst innan ramma laga og velsæmis. Hins vegar stendur

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.