Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1967, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.09.1967, Blaðsíða 9
FRJÁLS VERZLUN 9 er ekki liklegt ERFIÐLEIKAR IÐNAÐARINS. F.V.: Ýmsir halda því fram, a3 íslenzkur iSnaður eigi nú við tímabundna erfiðleika að stríða. Eruð þér sammála? RÁÐHERRA: Viðskiptafrelsið, aukið vöruúrval og lækkun há- tolla, hlaut að valda íslenzkum iðnaði verulegum erfiðleikum, enda á iðnaður margra landa við svipaða erfiðleika að stríða. Af tveimur ástæðum á þó íslenzkur iðnaður við meiri erfiðleika að fást en iðnaður annars staðar: Verulegur hluti íslenzks iðnaðar hefur orðið til og vaxið í skjóli hærri verndartolla en tíðkast með öðrum þjóðum, og markaður er hér svo þröngur, að lítt er ger- legt að hagnýta kosti stórfram- leiðslu, ef fiskiðnaður og fá önn- ur iðnfyrirtæki eru undan skilin. Ýmis iðnfyrirtæki fá því vafa- laust ekki staðizt breytta starfs- aðstöðu, en ég er hins vegar sann- færður um, að íslenzkir iðnrek- endur eiga ekki síður framtak og hugvit til að mæta þessum vanda en starfsbræður þeirra erlendis, svo sem í Noregi, þar sem aðýmsu leyti er við svipaðan vanda að glíma. Margvíslegur iðnaður hlýt- ur að eiga vaxandi hlutverki að gegna á íslandi sem með öðrum þróuðum löndum, en áhugi manna á að vernda íslenzkan iðnað má þó ekki leiða þá á villigötur. Geti íslenzkur iðnaður með hóflegri tollvernd ekki keppt við erlend- an iðnvarning, verður þjóðin að sætta sig við kjaraskerðingu til að vernda slíkan iðnað. Það er hins vegar óhjákvæmilegt, að iðnaðurinn fái eðlilegan aðlögun- artíma og nauðsynlega aðstoð til þess að auka hagkvæmni fram- leiðslunnar og mæta samkeppn- inni. EBE — EFTA. F.V.: HafiS þér myndað yður nokkra skoðun um hugsanlega aðild Islendinga að Fríverzlunar- bandalaginu eða Efnahags- bandalaginu? RÁÐHERRA: Aðstaða okkar er svo sérstæð, að ég tel hvorugan kostinn góðan. Hins vegar er til- vist þessara bandalaga tekin að valda okkur svo miklum erfið- leikum. sem fara vaxandi, að ég tel okkur ekki komast lengur hjá að taka til alvarlegrar yfirvegun- ar, hvort við neyðumst ekki til að tengjast þeim með einhverjum hætti. Ekki virðast neinar líkur til, að við getum notið þeirrar sérstöðu hjá Efnahagsbandalag- inu, að aðild að því yrði okkur bærileg, en kvaðir Fríverzlunar- bandalagsins eru annars eðlis og því eðlilegt, að við könnum til hlítar, hvort aðild að því gæti verið okkur hagkvæm. Er þar þó við mikla erfiðleika að fást, eink- um vegna íslenzks iðnaðar. Fyrir forgöngu Bandarikjanna var með svonefndum Kennedy-við- ræðum innan alþjóðatollamála- stofnunarinnar reynt að brúabilið milli bandalaga þessara og þjóða, er utan við standa, til að komast hjá tollastríði, en það hefur ekki tekizt nema að litlu leyti. íslend- ingar hafa tekið þátt í þeim við- ræðum og lagt mikla rækt við að kynna aðstöðu sína. Nokkuð hefur áunnizt fyrir okkur, en þó alveg ónóg. Er þetta tvímælalaust eitt alvarlegasta vandamál, er við stöndum nú andspænis, og hlýtur að rýra mjög viðskiptaaðstöðu okkar, ef ekki tekst að fá tolla- ívilnanir. Undrast ég raunar, hversu útflytjendur sýnast gefa þessu vandamáli lítinn gaum. fjármAlarAðherra. F.V.: Því hefur oft verið fleygt, aS embœtti fjármálaráðherra sé einna erfiðast og óvinsœlast af öllum ráðherraemb œ ttum. Hvem- ig hefur yðar líkað að gegna þessu embœtti? RÁÐHERRA: Eðli málsins sam- kvæmt er ekki líklegt, að em- bætti fjármálaráðherra sé vin- sælt, því að enn erum við víst fæst orðin svo þroskuð að líta á skattheimtu sem eðlilegt framlag okkar til að halda uppi hinni margþættu þjónustu nútíma þjóð- félags við borgara sína — okkur sjálf. Því er reyndin oftast sú, að ráðherrum hinna ýmsu mála- flokka er þakkað fyrir að hafa náð peningum út úr fjármálaráð- herranum til ýmissa vinsælla um- bótamála, en fjármálaráðherrann fær hins vegar skammirnar fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.