Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1967, Blaðsíða 55

Frjáls verslun - 01.09.1967, Blaðsíða 55
markaósbandalögin i evrópu ■ GUÐMUNDBSDN DEILDARSTJDRI EFTA □□ EEC AlJt frá lokum heimsstyrjaldar- innar síðari hefur sú stefna verið ríkjandi á sviði alþjóðaviðskipta að brjóta bæri niður tollmúra og afnema viðskiptahöft. í því skyni að koma þessari stefnu í fram- kvæmd var eftir styrjöldina kom- ið á fót nokkrum alþjóðlegum stofnunum. Má þar fyrst og fremst geta Efnahagssamvinnustofnunsr Evrópu, OEEC, og GATT, alþjoða tollamálastofnunarinnar, General Agreement on Tariffs and Trade. Efnahagssamvinnustofnun Evrópu beitti sér eftir stríð fyrir afnámi viðskiptahafta og frjálsari gjald- eyrisviðskiptum. GATT hefur einnig barizt fyrir afnámi við- skiptahafta, en auk þess látið tollamál mjög mikið til sín taka og barizt fyrir lækkun og afnámi tolla. Báðar þessar stofnanir naía náð verulegum árangri. STOFNUN EEC. Ymsum Evrópuríkjum þótti þó sem þróunin í þá átt að brjóta niður tollmúrana gengi of hægt. Því var það, að nokkur Evrópuríki beittu sér fyrir stofnun tollabanda- lags árið 1957, þ. e. Efnahags- bandalags Evrópu. Evrópuríkin, sem stóðu að stofnun þessa banda- lags, voru: Frakkland, Þýzkaland. Ítalía og Beneluxlöndin, Belgia Holland og Luxembourg. Undii- rituðu þau sáttmála um stofnun bandalagsins í Róm árið 1957, þ. e. hinn svonefnda Rómarsáttmála. Efnahagsbandalag Evrópu, European Economic Community, er ekki aðeins tollabandalagj held- ur einnig víðtæk efnahagsleg sam- starfsheild, eins og nafnið benair raunar til. Vakti það einnig fynr stofnendum bandalagsins að korna á víðtæku stjórnmálalegu sam- starfi. Lítill árangur hefur þó náðst á því sviði, en bandalagið hefur náð góðum árangri í efna- hagslegu og viðskiptalegu sam- starfi. Efnahagsbandalagið tók til starfa 1. janúar 1958. Var stefnt að því að fella niður alla innri tolla og samræma ytri tolia á 12—15 árum. Þeirri áætlun var þó síðar flýtt, og verður tolla- breytingum Efnahagsbandalags- ins lokið á miðju næsta ári. Mynd- un tollabandalagsins er eitt aðal- atriði Rómarsáttmálans, en einn- ig eru 1 sáttmálanum víðtæk á- kvæði um hið efnahagslega sam- starf aðildarríkja Efnahagsbanda- lagsins, svo sem ákvæði um frjálsan flutning fjármagns milli aðildarríkjanna og frjálsan rétt fyrirtækja til þess að stofna til atvinnurekstrar, hvar sem er a svæði bandalagsins og um frjálsan flutning vinnuafls. KLOFNINGUR. Þegar Efnahagsbandalag Ev- rópu hafði verið stofnað, óttuðust margir, að Vestur-Evrópa mundi klofna í tvær viðskiptaheildir. Efnahagssamvinnustofnun Ev- rópu, OEEC, reyndi að afstýra þessu. Beitti stofnunin sér fyrir víðtækum umræðum um myndun stórs fríverzlunarsvæðis. Var hugmynd OEEC sú að koma á fót stóru fríverzlunarsvæði, sem öll aðildarríki OEEC ættu aðild að. Umræður um slíkt fríverzlunar- svæði fóru fram á árunum 1957 og 1958, og íslendingar tóku þátt í þeim umræðum. En þessar um- ræður fóru út um þúfur, og klofn- ingi Vestur-Evrópu í tvær við- skiptaheildir varð ekki afstýrt. STOFNUN EFTA. Árið 1959 var annað markaðs- bandalag stofnað í Evrópu. Var þá undirritaður í Stokkhólmi samningur um stofnun Fríverzl- unarbandalags Evrópu, EFTA, European Free Trade Associ- ation. Ríkin, sem stóðu að stofn- un EFTA, voru Bretland, Svíþjoö, Danmörk, Noregur, Portúgal, Austurríki og Sviss. Það, sem vakti fyrir stofnendum EFTA í upphafi, var að koma á fót bandalagi, sem starfaði til bráðabirgða, meðan unnið væri að sameiningu Vestur- Evrópu í eina viðskiptaheild. En reyndin hefur orðið sú, að EFTA hefur starfað lengur en ætlað var í upphafi, og hefur bandalagið fest rætur og orðið varanleg stofn- un. MISMUNUR BANDALAGANNA. EFTA er aðeins fríverzlunar- svæði, en ekki tollabandalag eins og Efnahagsbandalag Evrópu. Munurinn á fríverzlunarsvæði og tollabandalagi er sá, að fríverzi- unarsvæði fellir aðeins niður innri tolla, en breytir ekki ytri tollum, en tollabandalag fellir hins vegar bæði niður innri tolla og samræmir ytri tolla. En mun- urinn á EFTA og Efnahagsbanda- laginu er þó einnig annar og meiri en þessi. EFTA er fyrst og fremst viðskiptabandalag, sem gerir ekki ráð fyrir víðtæku efnahagslegu samstarfi eins og Efnahagsbanda- lagið, og engin ákvæði er að finr.a í Stokkhólmssáttmálanum um víð- tækt efnahagslegt samstarf eins og í Rómarsáttmálanum. Stokkhólmssáttmálinn gerði ráð fyrir því, að aðildarríki EFTA felldu niður alla innbyrðis tolla á iðnaðarvörum og unnum sjávar- afurðum á 10 ára tímabili. Þeirri áætlun var þó síðar flýtt, og var tollaafnámi EFTA lokið um sið- ustu áramót. AFSTAÐA ÍSLENDINGA. íslendingar hafa haldið sig ut- an við bæði markaðsbandalögin í Evrópu. Það kom aldrei til greina, að íslendingar gerðust fullgildir aðilar að Efnahagsbandalagi Ev- rópu, þegar það bandalag var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.