Frjáls verslun - 01.09.1967, Side 7
FRJÁLS VERZLUN
V
óábyrgur og hávaðasamur minnihluti, sem þykist
bera hag svartra manna fyrir brjósti. Aðferðir
hans eru íkveikjur, rán og morð. Höfuðstoð ábyrg-
ari aflanna eru hin gömlu og fjölmennu baráttu-
samtök NAACP undir forystu eins mikilhæfasta
blökkumannaleiðtogans, Roy Wilkins. Þessi sam-
tök skipa hvítir sem svartir, og þau hafa komið
til leiðar mestu réttarbótum blökkumanna á síð-
ari árum.
ÞEIR VILJA AÐSKILNAÐ.
Meðal ofstækismannanna, sem kenna sig við
„svart vald“, hefur einna mest borið á Stokely
Carmichael og Rap Brown. Þeir eru leiðtogar
stúdentasamtaka, sem kenna sig við andstöðu gegn
ofbeldi. Tvímenningarnir segja, að eina ráðið sé
bylting blökkumanna og — að brenna Ameríku.
Þeir standa í nánu sambandi við Kastró, og
Carmichael sótti ráðstefnu hans í Havana, þar
sem lagt var á ráðin um skæruhernað í Ameríku.
Síðan hélt hann til Hanoi til að lýsa yfir stuðningi
sínum við Viet Cong.
Meðal samtaka, er staðið hafa að óeirðunum í
bandarískum borgum í sumar, eru ein, sem skamm-
stöfuð eru RAM og talin styrkt af Kastró. Sam-
tök þessi höfðu samsæri á prjónunum um að ráða
af dögum hina ábyrgari leiðtoga blökkumanna,
svo sem Wilkins. Á svarta listanum var einnig
Martin Luther King. Hann virðist annars hafa
orðið milli steins og sleggju í baráttu hinna tveggja
afla meðal blökkumannanna. Hefur hann varið
miklu af tíma sínum til baráttu gegn stríðinu í
Vietnam.
Næstu mánuðir geta orðið örlagaríkir í sögu
samtaka bandarískra blökkumanna.
◄ ◄
Útlendingar í Reykjavík. Höfuðstaðabúar mega nú
oft Iíta févana útlendinga, sem ráfa eirðarlausir og
illa til hafðir um göturnar.
Þyrla flytur hermenn og lögreglulið upp á háhýsi
í miðhluta Hong Kong.
►
Tízkan er ekkert annað en endurtekning. Þessi
glæsilega stúlka er klædd í eins konar „Hróa
hattar búning“, en þessi klæðnaður er með því
nýjasta í tízkuheiminuin.
Negrauppþot í Bandaríkjunum.