Frjáls verslun - 01.09.1967, Page 10
1 □
FFÍJAL5 VERZLUN
ENSK
GÓLF-
TEPPI
FYRIR:
Verzlanir
afgreiðslusali
skrifstofur
hótel,
opinberar stofnanir,
tryggingafélög,
banka,
matsölur,
stigaganga,
forstofur,
íbúðir,
o. fl.
★
DÚNMJÚK,
FALLEG,
ÁBYRGÐ Á ENDINGU.
ÖNNUMST
ÁSETNINGU.
KYNNIÐ YÐUR
VERÐ OG GÆÐI
POLARIS H.F.
HAFNARSTRÆTI 8
SÍMAR: 21085 OG 21388
að afla fjárins. Persónulega þarf
ég ekki að kvarta undan ágengni
starfsbræðra minna í ríkisstjórn-
inni, en það liggur í hlutarins
eðli, að fjármálaráðherranum er
ætlað að segja neiið. Það er því
miður langsennilegast, að vinsæll
fjármálaráðherra sé ekki góður
fjármálaráðherra. Því kann ein-
hver að álykta sem svo, að annað-
hvort sé ég ekki hæfur fjármála-
ráðherra eða þá illa innrættur,
er ég svara síðari hluta spurn-
ingarinnar á þann veg, að mér
hefur eftir atvikum líkað vel að
gegna embættinu og mundi eigi
fremur kjósa annað ráðherraem-
bætti. Hvort embættið er öðrum
ráðherraembættum erfiðara, get
ég ekki dæmt um, en ég er að
minnsta kosti ekki meiri afreks-
maður en svo, að mér finnst ég
alltaf hafa næg viðfangsefni.
SKATTAEFTIRLIT.
F.V.: Sá orðrómur hefur lagzt
á, að Guðmundur Skaftason,
fyrrverandi forstöðumaður rann-
sóknardeildar ríkisskattstjóra,
hafi sagt starfi sínu lausu vegna
óánœgju með starfsskdlyrði sín.
Er eitthvað til í þessu?
RÁÐHERRA: Eins og spurning-
in er orðuð, get ég ekki svarað
henni nema að takmörkuðu leyti.
Með tilkomu skattarannsóknar-
deildarinnar var í fyrsta sinngerð
kerfisbundin tilraun til þess að
uppræta skattsvik, og var því hér
um mjög erfitt brautryðjandastarf
að ræða. Þetta erfiða hlutverk
leysti Guðmundur Skaftason af
hendi með ágætum. Kom fjölþætt
menntun hans og mikil reynsla
þar að góðu gagni. Það er hins
vegar mikil þolraun að gegna
slíku starfi, ekki sízt meðan það
er í mótun, og lagði ég því marg-
oft á það áherzlu við Guðmund,
hversu mikilvægt ég teldi starf
hans og að ég væri reiðubúinn til
að beita mér fyrir breytingum á
starfsaðstöðu með lagabreytingum
eða á annan hátt, ef reynsla hans
af starfinu leiddi í Ijós, að slíkt
væri nauðsynlegt. Nokkru áður
en hann lét af störfum, afhenti
hann mér, eftir minni ósk, ýmsar
fróðlegar ábendingar um ýmis
atriði, bæði í lögum og fram-
kvæmd, er hann teldi æskilegt að
breyta með hliðsjón af fenginni
reynslu, en sérstaklega aðspurð-
ur kvað hann þær breytingar,
þótt gerðar yrðu, ekki geta haft
nein áhrif á þá ákvörðun sína að
láta af störfum skattrannsókna-
stjóra. Ég tel það ekkert undrun-
arefni, þótt Guðmundur Skafta-
son hafi ekki verið ánægður með
þá starfsaðstöðu, sem núverandi
skattkerfi veitir til fullnægjandi
skatteftirlits. Það er ég ekki held-
ur, en það skiptir mestu máli 1
því sambandi, að af minni hálfu
og ráðuneytisins var lögð áherzla
á að styðja við bakið á honum,
en ekki setja fyrir hann fótinn,
svo sem mér skilst orðrómurinn
gefa til kynna. Ég harma það, að
Guðmundur Skaftason sá sér
ekki fært að gegna þessu veiga-
mikla starfi lengur, en ég vil
nota þetta tækifæri til þess að
lýsa því yfir, að það er staðföst
ákvörðun mín að auka fremur
skattaeftirlit en draga úr því og
stefna markvisst að því að upp-
ræta spillingu skattsvikanna. Mik-
ill árangur er þegar fenginn, þótt
enn sé langt að markinu.
VERÐBÓLGAN.
F.V.: Hverja teljið þér megin-
orsök verðbólgunnar?
RÁÐHERRA: Orsakir verðbólg-
unnar eru svo margþættar, að
þær verða ekki skýrðar í fáum orð-
um, enda eru menn þar ekki á
eitt sáttir. Við höfum verið í þeim
framkvæmdaham frá stríðslokum
og sótt svo fast fram til betri lífs-
kjara, að við höfum alltof oft
brotið viðurkennd jafnvægislög-
mál efnahagskerfisins og með
kröfugerð okkar á hendur atvinnu-
vegunum og raunar þjóðfélaginu
gengið lengra en þanþol fram-
leiðslunnar hefur leyft. Þá hefur
einnig hinn mikli munur á
greiðsluþoli atvinnuveganna og
framleiðni þeirra átt verulegan
þátt í að auka vandann. Því mið-
ur hafa líka alltof margir haft
hag af aukinni verðbólgu.
VERÐSTÖÐVUNIN.
F.V.: Eruð þér ánœgður með
árangur verðstöðvunarinnar?
RÁÐHERRA: Verðstöðvuninhef-
ur tvímælalaust heppnazt í öllum
meginatriðum, og tel ég sérstaka
ástæðu til að þakka stéttarsam-
tökunum fyrir skilning þeirra á
nauðsyn hennar. Verðstöðvunin
hefur leitt í Ijós, að almenningi