Frjáls verslun - 01.09.1967, Qupperneq 27
rRJÁLS VERZLUN
27
VÚRUBÝNINGAR
í REYKJAVÍK
Iðnaðar- og verzlunarsýningar
hafa mjög færzt í aukana hér á
landi. í ár hafa m. a. þrjár slíkar
verið haldnar í Reykjavík.
Sú fyrsta var „La Linea Itali-
ana“ til kynningar á ítölskum
framleiðsluvörum. Hún var opnuð
af sendiherra ítala þann 4. maí
í Háskólabíói og stóð yfir í 10
daga.
Sýndar voru skrifstofuvélar,
nýjasta tízkan í fataiðnaðinum,
og verzlanir skreyttu glugga með
ítölskum varningi. Verðlaun voru
veitt fyrir gluggaskreytingar.
Fyrstu verðlaun hlaut verzlunin
Optik í Hafnarstræti.
Vörusýning fimm A.-Evrópu-
ríkja: A.-Þýzkalands, Póllands,
Sovétríkjanna, Tékkóslóvakíu og
Ungverjalands var opnuð í Laug-
ardalshöllinni 20. maí og stóð til
4. júní. Hana sóttu um 20 þúsund
manns, og var þessum ríkjum til
mikils sóma. Fjölskrúðugt úrval
iðnaðarvamings var þar til sýnis
og gaf góða hugmynd um fram-
leiðsluvörur landanna. Vinsæl
voru líkön af fiskiskipum, skut-
togurum og fiskihöfn, en þettavar
til sýnis í deildum Póllands og
A.-Þýzkalands. Þá voru fata- og
kvikmyndasýningar vel sóttar.
Kaupsýslumenn notuðu tækifærið
og fjölmenntu. T. d. tókust sölu-
samningar í Póllandsdeildinni fyr-
ir 12000 dollara.
Um sama leyti og opnun sýn-
ingarinnar í Laugardalshöll fór
fram, kom til Reykjavíkur fljót-
andi vörusýning á vegum heild-
verzlunar Hervalds Eiríkssonar.
Stóð hún yfir í þrjá daga, og sýnd-
ar voru ýmsar umboðsvörur Her-
valds. Var þetta bæði hugsað sem
kynningar- og sölusýning. Um tvö
þúsund manns komu um borð í
„Frost Monsunen“, og seld voru
m. a. um borð mikill fjöldi kæli-
borða.
Þess er að vænta, að framhald
verði á slíkum sýningum íReykja-
vík á næstu árum, enda hefur að-
staða til þeirra gjörbreytzt eftir
tilkomu Laugardalshallarinnar.
BÍLAVARAHLUTIR
í FLESTAR GERÐIR Bí LA
Kristinn Guðnason hf.
Klapparstíg 27 — Sími 22675
nonGJE conoNET
1967
FRAM KVÆMD AST J 0 RAR
Látið oss athuga hvort hagkvœmt muni vera
íyrir íyrirtœki yðar að hagnýta sér tölvuþjón-
ustu vora.
Tökum að oss vinnslu m. a. á eftirfarandi:
Bókhaldi
Launaútreikningi
Reikningsútskrift
Vér erum ávallt reiðubúnir til að gefa allar
nánari upplýsingar.
á íslandi