Frjáls verslun - 01.09.1967, Blaðsíða 31
FRJALS VERZLUN
31
SDLU- DG MARKAÐSMÁL
ÞDRGDDUR E. JDNSSDN STDRKAUPMAÐUR
SKRIFAR U M KYNNI SÍN
AF NÍGERÍUMÖNNUM DG
SKREIÐARSÖLUNA TIL AFRÍKU
Ekki er nema hálfur annar ára-
tugur liðinn, síðan íslendingar
hófu sölu skreiðar beint til Vestur-
Afríku — og þá til Nígeríu, semer
masti skreiðarkaupandi þar í álfu.
Þó kaupa Kamerúnmenn svolítið,
en Ghanamenn og Líberíumenn
vart teljandi. — Skreiðarsala
hefur verið til Vestur-Afríku allt
árið, því að kaupendur töldu nauð-
synlegt að láta skreiðina aldrei
vanta.
Fyrs'u árln. Skreiðarsala íslend-
inga til Nígeríu hefur gengið vel,
en þess ber að gæta, að Norðmenn
höfðu að vissu leyti plægt akur-
inn, því að fyrst í stað fóru við-
skiptin mikið fram fyrir milli-
göngu Norðmanna, og Englendinga
að hluta.
ÓFRIÐUR HEFST.
Siðan gerðist það í maí s.l., að
ófriður hófst milli ættflokka í
Nígeríu. Ibó-þjóðflokkurinn, sem
byggir Austur-Nígeríu, gerði upp-
reisn gegn .sambandsstjórninni í
Lagos og stofnaði sjálfstætt ríki,
sem nefnt var Biafra. Þeir
Biaframenn hafa keypt mest af
skreið íslendinga, eða rúmlega
80%. Stjórnin í Lagos setti þá
hafnbann á Austur-Nígeríu, svo að
íbóar fá hvorki skreið né aðrar
vörur.
Segja má, að aðallega berjist
Norður-Nígeríumenn (Hausar og
Fulanir) gegn íbóum, sem kunn-
ugir telja menntaðasta og dugleg-
asta allra Nígeriumanna. Einnig
byggja þeir auðugasta hluta Níger-
íu, austurhlutann, en þar eru
einnig miklar olíulindir og frjó-
samt land og gott.
VÁ FYRIR DYRUM.
Ef ekki kemst bráðlega á friður
í Nígeríu, er vá íyrir dyrum skreið-
arframleiðenda. — Reynslan sýn-
ir, að ef menn venjastviðaðkaupa
Þóroddur E. Jónsson með vinum
í Austur-Nígeríu (Biafra).
eða geta notað annað en það, sem
þeir eru vanir að nota, minnkar
salan á þeim vörum, er áður feng-
ust, eftir að þær fást á ný. Því
er mikil hætta á því, að vinir mín-
ir, Ibóarnir, minnki skreiðarkaup
sín, eftir að friður kemst á, fyrir
utan það, að eftir styrjöld er allt
í rúst og fátækt og vesaldómur
tekur við hjá því fólki, er áður
var vcl bjargálna. Þetta eru afleið-
ingar strí'os, hvar sem er, og verð-
ur skaðinn aldrei fullbættur.
NÍGERÍA.
Nígería er fjölmennasta land Af-
ríku, og ríkti þar velmegun, meðan
hún var nýlenda Breta, en landið
naut þá mikillar sjálfstjórnar. Það
hlaut sjálfstæði í apríl 1960, og
gekk þar allt vel fyrstu árin. Var
uppbyggingin mikil, og var oft til
landsins vitnað,er nefna þurfti Af-
ríkuland á framfarabraut.
SUNDURLYNDI.
Hinar góðu og miklu vonir hafa
nú brugðizt. Það má mest kenna
sundurlyndi íbúanna, enda er
kannski ekki við öðru að búast,
því að ættflokkarnir eru margir
og talar hver sína tungu, þó að
enska sé sameiginlegt mál, opin-
Heildarskreiðarútflutn-
ingur fslendinga
(í tonnum):
1960: 7434,0
1961: 10674,1
1962: 10653,5
1963: 9615,5
1964: 11579,7
1965: 12243,3
1966: 8744,8
Útflutningur skreiðar til
Nígeríu (í tonnum):
1960: 5090,1
1961: 4635,7
1962: 4628,6
1963: 5228,6
1964: 8212,0
1965: 8641,8
1966: 6602,8
Skreiðarútflutningsverðmæti
(í millj. ísl. kr.):
1963: 278,656
1964: 337.403
1965: 375.944
1966: 309.882
Heildarútflutningur íslendinga
alls (í millj. kr.):
1963: 4.046.308
1964: 4.775.949
1965: 5.558.880
1966: 6.046.951
bert mál, eins og kallað er. Aðal-
þjóðflokkarnir eru: HausaríNorð-
ur-Nígeríu, Yorubar í Vestur-
Nígeríu, Fulanir í Norðaustur-
Nígeríu og íbóar í Austur-Nígeríu.
Nú hefur þjóðflokkunum lent
saman, og óhugsandi virðist, að
nokkrar sættir verði. Þessa blóm-
lega lands, er eitt sinn átti sér
svo mikla framtíð, virðast því
bíða erfðir tímar og ill örlög.