Frjáls verslun - 01.11.1967, Síða 15
FRJÁLS VERZLUN
15
ÞJÓÐMÁL
„ŒNGISLÆKKUNIN MUN MJÖG AUÐVELDA
OKKUR INNGÖNGU í EFTA,
ef við ákveðum að leita eftir henni,"
segir dr. Gylfi Þ. Gíslason
viðskiptamálaráðherra
í viðtali við F.V.
F.V.: Má ekki ganga út frá þvi
að við ákvarðanir í verðlagsmál-
um, verði tekið tillit til þeirra
launahcekkana, sem verða l.des.
n. k. og þeirra hœkkana á kostn-
aði, sem leiða af gengisbreyting-
unni?
RÁÐHERRA: Það er í verka-
hring verðlagsnefndar að meta,
hvort fyrirtæki getur borið auk-
inn reksturskostnað, þ. á. m.
vegna launahækkana, eða ekki.
Þegar um gengislækkun er að
ræða, er eðlilegt, að verðlag inn-
anlands, bæði á innfluttri vöru og
vöru framleiddri í landinu, hækki
sem svarar hækkun á innkaups-
verði erlendis og flutningsgjöldum
til landsins. Ýmis rekstrarkostnað-
ur innanlands hækkar einnig í
kjölfar gengislækkunar. Verð-
lagsnefnd verður að meta hverju
sinni, hvort söluverð vöru þarf að
hækka af þeim sökum.
F.V.: Teljið þér nauðsynlegt
að lœkka tolla til að halda verð-
lagi niðri og hamla á móti verð-
hœkkunum af völdum gengis-
breytingarinnar?
RÁÐHERRA: Ég tel víðtæka
tollalækkun þá efnahagsráðstöfun,
sem nú sé einna mest nauðsyn á.
Við íslendingar búum við hærri
innflutningstolla en nokkur önn-
ur nálæg þjóð. Þetta hefur verið
svo í áratugi og hefur haft marg-
vísleg og að mörgu leyti mjög
skaðleg áhrif. Gengislækkunin
auðveldar mjög að framkvæma