Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1968, Side 5

Frjáls verslun - 01.01.1968, Side 5
FRJÁLS VERZLUN 5 FRJAI-S VIERZLIJIM JANÚAR 196B 2B. ÁRGANGUR 1. TBL. MÁNAÐARLEGT TÍMARIT UM VIÐSKIPTA- □ G EFNAHAGSMÁL— STDFNAÐ 1939. G'EFIO ÚT í SAMVINNU VIÐ SAMTÖK VERZLUNAR- DG' ATHAFNAMANNA. ÚTGAFU ANNAST: VERZLU NARÚTGÁ FAN H.F. SKRIFSTDFA □ÐINSG'ÖTU 4. SÍMAR: B23□□ - B23 □! - B23D2. PDBTHDLF 1193. FRAMKVÆMDASTJDRI □ G RITSTJÓRI: JÖHANN BRIEM. FRETTASTJDRI: BJÖRN VIGNIR SIGURPÁLSSDN. AUGLÝSINGASTJÖRI: AXEL AXELSSDN. SETNING □ G PRENTUN: FELAG SPRENTS M IÐJAN H.F. BÖKBAND: FELAGSB □ KB ANDIÐ. LJDSMYNDARI. KRISTINN BENEDIKTSSDN. PRENTUN KÁPU*. KASSAG ERÐ reykjavík;ur h.f. □ LL RÉTTINDI ÁSKILIN. BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA Eins og alþjóð er kunnugt hafa undanfamar vikur staðið miklar deilur um málefni verzlunarinnar. Er verzlunarstétt- in þeirrar skoðunar, að harkalega hafi verið að henni veitzt, hún notið lítils skilnings og sá brugðizt, er sizt skyldi. Og Jjví ber síður en svo að leyna, að sumir verzlunarmenn velta því fyrir sér þessa dagana, hvort verzlunarrekstur sé ómaksins verður, þegar öllu er á botninn hvolft, því að hvernig í ósköp- unum á að vera unnt að reka verzlun, þegar þeim, sem hafa litið vit á málefnum hennar og alltaf hafa liaft horn í síðu verzlunarstéttarinnar, er falið að ráðskast með málefni hennar og vera þar æðsta vald? Eflaust finnst ýmsum, að hér sé F.V. aðeins að gera skyldu sína með því að taka málstað verzlunarstéttarinnar og því séu ofangreind ummæli eins og hver önnur hrópyrði, sem ekki sé of mikið á takandi. Svo er þó ekki, því að í þessu blaði birtum við grein, sem sýnir, að afkoma verzlunarinnar er ekki eins góð og margir vilja vera láta. Greinin um „mat- vöruverzlunina í Reykjavík árhi 1964 og 1965“ er byggð á hlutlægri og nákvæmri skýrslu, sem samin var um afkomu þessarar verzlunargreinar þessi ár, og hlaut viðurkenningu fulltrúa viðskiptamálaráðuneytisins sem áreiðanleg og grein- argóð heimild. Þessi grein ætti því að verða til þess að glæða skilning manna á málefnum a. m. k. einnar verzlunargreinar og sýna, að gróðinn er ekki eins óskaplegur og l'lestir halda. Samtiðannaður F.V. í janúarmánuði er Skafti Áskelsson, forstjóri Slippstöðvarinnar h.f. á Akureyri. Skafti var val- inn samtíðarmaður F.V. í þessum fyrsta mánuði ársins 1968 vegna þess, að fyrirtæki hans er nú að hefja smíði tveggja stórra skipa, og það, að lítil skipasmíðastöð norður við íshaf skuli hæf til slíkra átaka, ætti að sanna mönnum, að ekki þurfi með öllu að örvænta um framtíð íslenzks iðnaðar, og okkur er það mikil ánægja, að geta ritað með bjartsýni um islenzkan iðnað i byrjun þessa árs, og vonum, að þar þurfi ekki að skipta um til hins verra, er á árið líður.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.