Frjáls verslun - 01.01.1968, Blaðsíða 19
FRJÁL'S VERZLLtN
19
Skipið hreppti vont veður á leið-
inni suður, ogtókferðinheilaviku.
Víxillinn hafði verið nákvæmlega
fyrir fargjaldinu og önnur fjár-
ráð engin. Þessa vikuna smakkaði
Skafti því ekki annað en blátt
vatn. í Reykjavík gisti hann hjá
einum bróðurnum, sem þar var
seztur að. Iðnbréfið var auðfengið.
Heimferðin gekk svo til á svipað-
an hátt. Á meðan á þessu stóð,
beið konan með soninn hjá frænd-
fólki sínu. — Síðan var hafizt
handa. Lífsstarfið var framundan.
Þegar Skipasmíðastöð KEA var
stofnuð nokkrum mánuðum síðar,
fór Skafti til þess fyrirtækis og
vann þar undir stjórn Gunnars
Jónssonar, forstjóra þess og yfir-
skipasmiðs, þar til Slippstöðin hf.
kom til sögunnar.
Aðdragandi þess var töluvert
merkilegur, eins og fleira í þessu
máli. Þegar Skafti byggði ásamt
Þóri bróður sínum árið 1946 í
Norðurgötunni, hafði verið á döf-
inni hjá Akureyrarhöfn að byggja
dráttarbraut á Tanganum. Og
framkvæmdir hófust þar einmitt
árið 1946, Þangað horfði Skafti,
og hann dreymdi um að fá tæki-
færi til að nýta það mannvirki.
Byggingarlóðina reyndu þeir bræð-
ur því að fá sem næst þessum
tilvonandi athafnastað. Það tókst,
og þar var byggt.
Því er svo skemmst frá að segja,
að nokkrum mánuðum eftir að
dráttarbrautin var fullgerð tók
Skafti Áskelsson hana á leigu
ásamt nokkrum öðrum mönnum.
Óhætt er um það, að ekki gerðist
þetta hljóðalaust, en það gekk.
Draumurinn rættist.
SLIPPSTÖÐIN HF.
Upp úr þessu var Slippstöðin hf.
stofnuð. Stofnfundurinn var hald-
inn þann 22. nóvember 1952.
Hlutafé var ákveðið 125 þús. kr.
Stofnendur voru Skafti Áskelsson
(25 þús.), Þorsteinn Þorsteinsson
(25 þús.), Herluf Ryel (25 þús.),
Útgerðarfélag KEA (48 þús.),
Gísli Konráðsson (1 þús.) og Arn-
grímur Bjarnason (1 þús.). Fyrsti
stjórnarformaður var kosinn Gísli
Konráðsson, en þegar hann tók
við framkvæmdastjórastöðu hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
1958, kom Bjarni Jóhannesson
inn í stjórnina í hans stað og
varð stjórnarformaður. Fram-
kvæmdastjóri frá upphafi hefur
verið Skafti Áskelsson. Hlutafé
hefur síðan verið aukið og færzt
til, nema hvað þeir Skafti og Þor-
steinn halda sínum hlutum, sömu-
leiðis Útgerðarfélag KEA.
Við upphaf stálskipasmíðanna
var stofnað systurfyrirtækið
Bjarmi hf., véla- og plötusmiðja.
Um þessar mundir hefur það verið
sameinað Slippstöðinni hf.
í dag er þetta eitt af stærstu
fyrirtækjunum í höfuðstað Norð-
urlands og það fyrirtækið, sem
iðnaðurinn þar bindur sínar
stærstu framtíðarvonir við.