Frjáls verslun - 01.01.1968, Blaðsíða 41
FRJÁLS VERZULIN
41
Á SÍÐUNNI ræðum við núna
við ungt verzlunarfólk, Sigríði
Sæmundsdóttur, tvítuga af-
greiðslustúlku, og Garðar Siggeirs-
son, verzlunarstjóra, og fræðumst
lítillega af þeim um starfið.
Við hittum Sigríði að máli, þar
sem hún starfar í kjörbúðinni
Kostakjör í Skipholti, og spyrjum
hana fyrst, hve lengi hún hafi
fengizt við verzlunarstörf.
Sigríður Sæmundsdóttir.
Talað við
ungt verzlunarfólk
— Ég hef unnið hér í Kostakjöri
rúma sjö mánuði, en áður vann
ég um nokkurt skeið í Kaupfélagi
Skagfirðinga. Ég er ættuð úr
Skagafirðinum.
— Hvernig líkar þér vinnan
hér og hvernig er vinnutíma hátt-
að?
— Ég kann prýðilega við mig
hér. Yfirleitt vinnum við frá því
kl. 9 til 18.30, nema þriðju hverja
viku, þá vinnur ein okkar frá
8 til 18.00. Þetta kemur til af því,
að margt fólk, sem vinnur úti á
daginn, kýs heldur að hafa lokið
matarinnkaupum áður en það fer
til vinnu.
— Hvernig eru launin?
— Þau hafa batnað talsvert nú
á siðustu árum. Að vísu eru byrj-
unarlaunin ósköp lág, en eftir
tveggja ára starfstíma ltemur
fyrsta verulega hækkunin, og eru
launin þá alveg skapleg.
— En möguleikar á aukavinnu?
— Þeir eru talsverðir. Við fáum
tímann milli kl. 8 og 9 á morgn-
ana borgaðan í aukavinnu, en auk
þess er hér stimpilklukka. Hún
er mesta þarfaþing, og við fáum
borgaða hverja mínútu, sem unn-
in er fram yfir ákvarðaðan vinnu-
tíma.
— Hvað er kjörbúðin hér orðin
gömul í hettunni?
— Ég held, að verzlunin hafi
verið opnuð fyrir um fjórum ár-
um.
— Eru stór íbúðahverfi hér í
kring?
— Það má eiginlega segja, að
við séum alveg í útjaðri þess. í
byrjun var verzlunin sú eina hér
á stóru svæði, en síðan hafa fleiri
verzlanir risið hér í nánd. Það
hefur þó ekki dregið neitt úr
fjölda viðskiptavinanna, því að
margir eldri viðskiptavinanna
hafa haldið tryggð við verzlun-
ina. Hér er líka kappkostað að
hafa allar matvörur á boðstólum,
bæði nýlendu- og kjötvörur, en
ennfremur er fiskbúð hér við hlið-
ina, og tökum við fisk þaðan, ef
óskað er, og sendum heim með
okkar pöntun. Hefur þetta mælzt
mjög vel fyrir.
Að endingu spyrjum við Sig-
ríði, hvort hún telji að taka ætti
upp 5 daga vinnuviku hjá verzl-
unarfólki.
— Nei, ég held að það séu ýmsir
annmarkar á því, enda þótt það
væri óneitanlega kostur fyrir okk-
ur verzlunarfólkið. Ég held að
þetta myndi skapa hálfgert öng-
þveiti á föstudögum, þar sem öll
helgarverzlunin myndi hlaðast
niður á föstudaginn. Nei, ég held
að ég kjósi heldur að vinna laug-
ardaginn.
í herraverzlun P & Ó uppi á
Laugavegi ræddum við við Garð-
ar, sem er verzlunarstjóri þar.
Hann hefur starfað hjá verzlun-
inni í fimm ár og er elzti starfs-
maður hennar, að eigendunum
undanskildum að sjálfsögðu.
— Hvað er langt síðan, Garðar,
að verzlunin hér uppi á Lauga-
vegi var sett á laggirnar?
— Ég held ég fari rétt með, að
þetta séu fjórðu jólin, sem hún
hefur verið hér til húsa.
— Myndir þú telja hana vel
staðsetta svona ofarlega á Lauga-
veginum? Verzlar fólk ekki frek-
ar í verzluninni í Pósthússtræti?