Frjáls verslun - 01.04.1968, Qupperneq 8
6
FRJAL5 VERZLUN
SÖLU- OG MARKAÐSMÁL
ERFIÐLEIKAR ISLENZKRA
ÚTFLUTNINGSAÐILA
Markaðsörðugleikar íslenzkrar íramleiðslu svo alvarlegir, að
þeirra gœtir á hvaða vettvangi þjóðlífsins, sem er.
Daglegt líf launafólks hér á
landi sem annars staðar mótast
mjög af baráttu fyrir auknum lífs-
gæðum, aukinni velmegun. Fólk
keppir að því að eignast ng njóta
sem flestra lífsins gæða. Baráttan
stendur um að eignast íbúð, bíl,
sumarbústað og fleira og fólk
dreymir um utanferðir og lysti-
semdir, sem á boðstólum eru —
ferðist til útlanda strax, — greið-
ið síðar!
Margir reisa sér hurðarás um
öxl í bessu kapphlaupi og afleið-
ingin verður í ríkum mæli krafa
um hækkað kaup, fleiri krónur.
Oft gleymist að auknum krónu-
fjölda fylgir ekki ávallt betri hag-
ur. Ef undirstaða þjóðarteknanna,
framleiðslan, á við erfiðleika að
stríða: aflabrest, verðfall erlendis,
markaðslokanir, harða samkeppni
og undirboð eða því um líkt, er
það fljótt að segja til sín hjá þjóð,
sem býr við jafn einhliða útflutn-
ingsframleiðslu og íslendingar.
Þegar harðnar á dalnum um sölu
okkar á fiski og öðrum útflutn-
ingsverðmætum, þá segir það
furðu fljótt til sín á öllum svið-
um þjóðlífsins, jafnvel hjá þeim,
sem hvergi nærri útflutningsfram-
leiðslu koma.
Undanfarin ár hefur þessara
erfiðleika gætt verulega, að því
er snertir aðalliði útflutningsfram-
leiðslunnar.
Árið 1966 var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um rösklega
800 milljónir króna,
Árið 1967 var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um 2.800 millj.
Fyrstu 'þrjá mánuði yfirstand-
andi árs hafa verið fluttar út ís-
lenzkar afurðir fyrir 859 mdllj.
kr., en inn verið fluttar vörur fyr-
ir 1.387.916.000 kr.
Af þessum tölum má glögglega
sjá, að markaðsörðugleikar ís-
lenzkrar framleiðslu eru svo al-
varlegir, að þeir eru ekkert einka-
mál, heldur gætir þeirra á hvaða
vettvangi þjóðlífsins sem er.
Frjáls verzlun sneri sér því til
nokkurra manna, er bezt þekkja
markaði erlendis, og lagði fyrir þá
þrjár spurningar.
1. Hverjar eru markaðshorfurn-
ar nú?
2. Hver hefur þróunin verið að
undanförnu?
3. Hverjar eru horfurnar?
Þeir, sem spurningunum svara,
eru: Guðmundur H. Garðarsson
varðandi frystar fiskafurðir, Loft-
ur Bjarnason útgerðarmaður varð-
andi ísfiskssölur, Sveinn Bene-
diktsson varðandi síldarmjöl og
síldarlýsi, Bragi Eiríksson fram-
kvæmdastjóri og Þóroddur E.
Jónsson varðandi skreið og Agnar
Tryggvason varðandi landbúnað-
arvörur. ...
LANDSBANkl ÍSLANDS
AUSTURSTRÆTI 11 — REYKJAVÍIÍ — SÍMI 17780
ÚTIBU í REYKJAVÍK:
AUSTURBÆIARÚTIBÚ. Laugavegi 77, sími 21300.
ÁRBÆJARÚTIBÚ, Rofabœ 7, sími 84400.
LANGHOLTSÚTIBÚ, Langholtsvegi 43, simi 38090.
MÚLAÚTIBÚ, Lógmúla 9, sími 83300.
VEGAMÓTAÚTIBÚ, Laugavegi 15, sími 12258.
VESTURBÆJARÚTIBÚ, Háskólabíói v/Hagatorg. sími 11824.
UTIBÚ
ÚTI A LANDI:
Akranesi
Akureyri
Eskiíirði
Grindavík
Húsavík
Hvolsvelli
ísafirði
Sandgerði
Selfossi
AFGREIÐSLUR:
Keflavík
Rauíarhöfn
Þorlákshöfn
Annast öll venjuleg bankaviðskipti innanlands og utan