Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 44

Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 44
42 FRJALS VERZLUN ÍGAMLA OG NVJA BILA vörubirgðir og verulegur hluti inneigna hjá skuldu- nautum: mjög skammvinnir veltufjármunir --------------------------------x 100 skammvinnt fjármagn Nefnist hlutfall þetta á ensku quick ratio, en á dönsku likviditetsgrad. Það eru ednkum þrjú atriði, sem hafa þau áhrif, að hlaupatalan ein gefur ekki til kynna, hvort greiðsluhæfi sé nægilegt. Samkvæmt skýrgreiningu eru skammvinnar skuldir þær skuldir, sem falla til greiðslu innan árs. Ekki er nánar tilgreint, hvenær á árinu þær falla. Svipað er að segja um veltufjármuni. Þeir eru annað hvort reiðufé eða verða það einhvern tíma á komandi ári. Séu veltufjármunirnir jafn- lengi í fyrirtækinu og það nýtur skammvinnu lán- anna, og sé ekki nauðsynlegt að gefa gaum að öðru, sem fyrir kann að koma á næsta tímabili, er nægi- legt, að hlaupatalan hafi gildið 100%. En veltu- tímar (turn — over period) einstakra fjármuna og einstakra skammvinnra lána geta að sjálfsögðu ver- ið mjög mismunandi. Til dæmis getur verið, að inneign hjá skuldunautum verði að reiðufé að með- altali eftir 2 mánuði, vörubirgðir eftir 5 mánuði o. s. frv., en skammvinn ián falli til greiðslu að meðal- tali eftir 4 mánuði. Ef veltutími veltufjármuna væri skemmri en veltutími skammvinnra lána, kæmist fyrirtækið af með lægri hlaupatölu en 100%. Þessar hugleiðingar eru alls kostar óraunhæfar að því leyti, að ekkert tillit er tekið til rekstrarins á komandi tímabili. Með rekstrinum eignast fyrir- tækið á þessu tímabili veltufjármuni, og það stofn- ar til nýrra skammvinnra skulda. Þessi nýju við- skipti geta ráðið úrslitum um greiðsluhæfina á komandi tímabili. Þriðja atriðið, sem kalla má gagnrýni á hlaupa- tölu sem mælikvarða á greiðsluhæfi, er það, að fyrirtækið kann að hafa aðgang að umsömdum lán- um, sem það hefur ekki notfært sér til þessa, t. d. hlaupareikningsyfirdrátt eða reikningslán, eða að það á, meðal fastafjármuna, fjármuni, sem það gæti losað sig við, án þess að reksturinn bdði nokk- urt tjón af, svo sem skuldabréf eða jafnvel hluta- bréf. Oft er talað um, að fyrirtæki sé í hættu statt, ef hlaupatala þess er komin niður fyrir eitthvert ákveðið gildi. í Bandaríkjunum, þar sem gerðar hafa verið hvað umfangsmestar rannsóknir á þessu sviði, hefur hlutfallið 2/1 (200%) löngum verið talið hæfilegt fyrir fyrirtæki í iðnaði og verzlun. Hvað viðkemur hlaupatölunni, þá er hún mikl- um sveiflum háð vegna ýmiss konar áhrifa, og eiga slíkar sveiflur sér stað hjá öllum fyrirtækjum. En stundum tekur hlaupatalan óheillavænlega stefnu, þ. e. veltufjármunirnir minnka eða standa í stað, en skammvinna fjármagnið hleðst upp og jafnvel það langvinna einnig. Oft tekst að ráða bót á slíkum erfiðleikum í tæka tíð, en ef svo er ekki, leiðir slík þróun til gjaldþrots. En hvernig stendur á því að fyrirtæki verða gjaldþrota, jafnvel á tímum velmegunar og fram- fara? Verður reynt að gera þessu atriði nokkur skil í næstu grein hér á eftir. 3) Orsakir gjaldþrota. Vissulega er vafasamt að ætla sér að kveða upp úr um aðalorsök gjaldþrots í hverju einstöku til- felli, eins og menn gera oft í rannsóknum sínum. Rannsókn á viðskiptum, sem hafa mistekizt, leið- ir í ljós ýmsar veilur í rekstrinum. Skortur á rekstrarfé, offjárfesting í birgðum og óhóflegar skuldir eru meðal þeirra algengustu og leiða oft hver af annarri. Sum fyrirtæki hefja rekstur án nægilegs fjár- magns. Onnur byggja starfsemi sína á vörum og þjónustu, sem falla ekki neytendum í geð. Enn önnur geta kennt um skorti á sölutækni, tækni- kunnáttu og nýtízku framleiðsluaðferðum. En þó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.