Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 29
frjáls verzlun
27
Vöxtur fraktflutninga á Norður-Atlantsliafi 1951—1966 og áætluð aukning til 1975.
flytja við hagkvæmum gjöldum í
flugi vegna t. d. eðlisþyngdar,
verðmæti þyngdareininga o. s.
frv.
Þess vegna eru örðugleikarnir,
sem við eigum við að stríða í þess-
um efnum ef til vill meiri en hjá
þjóðum, sem geta haft nokkurn
veginn sléttan „flutningajöfnuð“,
ef svo mætti að orði komast, þ. e.
a. s. að sem minnst bil geti verið
á milli inn- og útflutningsþunga.
íslenzku flugfélögin, sem fljúga
milli landa, Loftleiðir og Flugfé-
lag íslands, hafa nú þegar gert
ráðstafanir til þess, að innflytj-
endur og útflytjendur geti not-
fært sér flugþjónustuna í frakt-
flutningum í ríkara mæli með því
að auka flutningagetu sína með
stærri flugvélum og auknu frakt-
rými í þeim vélum, sem notaðar
eru.
MARGIR FLYTJA EINGÖNGU
MEÐ FLUGVÉLUM.
Fram til þessa hafa flugflutn-
ingar verið mjög einskorðaðir við
smáar sendingar, sem mjög hef-
ur legið á að fá til landsins, en um
reglulega flutninga hefur vart
verið að ræða. Innlendir aðilar,
sér í lagi innflytjendur, hafa nú
með aðstoð flugfélaganna gert sér
grein fyrir því hagræði, sem flug-
ið hefur upp á að bjóða, og æ
fleiri hugsa nú alvarlega til þess
möguleika að flytja margar af sín-
um vörutegundum eingöngu með
flugvélum, og þá fyrst, þeg-
ar um reglulega árlega flutn-
inga verður að ræða, verður hægt
að vinna ötullega að því að gera
öll framkvæmdaratriði sem með-
færilegust.
KAPPKOSTAÐ AÐ GREIÐA
SEM MEST FYRIR
AFGREIÐSLU.
Eitt er það, sem háir okkur
mjög í sambandi við innflutning
á vörum til landsins með flugvél-
um, og er þetta hinn langi tími,
sem nauðsynlegur er til þess að
leysa vöruna úr banka og tolli.
Ekki alls fyrir löngu voru sett
lög þess varðandi, að aðeins þyrfti
að greiða toll af helmingi flug-
farmgjalda, ef varan væri leyst
úr tolli innan 10 daga frá því að
hún kom til landsins. í fram-
kvæmd reyndist þessi tími of
stuttur og var þar af leiðandi fyr-
ir skömmu lengdur upp í 15 daga.
Þetta er atriði, sem er mjög at-
hyglisvert, er nokkuð, sem í öðr-
um löndum er unnið markvisst að
að endurbæta með því að greiða
sem bezt og mest fyrir afgreiðslu
vöru, sem komið hefur til land-
anna með flugvélum. Það gefur
auga leið, að vara, sem til dæmis
kemur frá Bandaríkjunum á 7
klukkustundum, en þarf svo að
liggja í 15 daga áður en kaup-
andi getur fengið hana afgreidda
úr tolli, nýtur auðsjáanlega ekki
þess tímasparnaðar, sem flugið
veitir, og hún gæti öðru jöfnu not-
ið, ef flýtt yrði fyrir afgreiðslu
hennar í gegnum skrifstofubákn-
ið hér heima.
Við megum búast við, að þessi
framþróun geti tekið einhvern
tíma, og ef til vill ekki nema eðli-
legt. En raunhæfur árangur næst
ekki, nema allir leggist á eitt við
það að reyna að finna leiðir til
þess að leysa megi vörur úr
banka og tolli daginn eftir að þær
koma til landsins, til þess að hag-
kvæmni flugflutninganna nýtist
að fullu.
Mín trúa er sú, að á næstu
fimm árum muni inn- og útflutn-
ingur með flugvélum til og frá
íslandi aukast geysilega, einkum
þar sem taka má tillit til þess, að
margir erlendir framleiðendur
hafa nú þegar sett upp sínar
framleiðslu- og dreifingaráætlanir
beinlínis með það fyrir augum að
senda ekkert frá sér nema með
flugvélum.
Þess vegna legg ég ítrekaða
áherzlu á það, hve nauðsynlegt er,
að allir, bæði opinberir aðilar,
hagsmunasamtök og einstakir
innflytjendur, leggist á eitt með
það að gera sem allra hagkvæm-
ast að flytja vörur íslendinga með
flugvélum, til þess að við getum
fylgzt að fullu með þeim við-
skiptaháttum, sem nú ryðja sér til
rúms alls staðar í heiminum.
Þess mun ekki langt að bíða, að
eins sjálfsagt þyki að senda vör-
ur með flugi, og það þykir fráleitt
í dag að senda bréf í sjópósti til
útlanda.