Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 12
ia FRJÁLS VERZLUN — Vegna kauptregðu á mörkuðunum eru hér ennþá óseld um 25000 tonn af síldarlýsi af fyrra árs framleiðslu. — Allt íslenzkt síldarmjöl frá fyrra ári er nú selt og mun meðalverð á því hafa verið um sh. 15/6 á proteineiningu í tonni, eins og fyrr segir. — Horfur eru á, að langt verði að sœkja á miðin nú í sumar eins og í fyrra. 540 þús. tonnum í nær 1 milljón tonna í heiminum. Mikið hefur skort á það, bæði hjá Perúmönnum og Norðmönn- um, að geta geymt meginhluta framleiðslunnar, ef svo bæri und- ir, að þeir vildu bíða með sölu og afskipanir til þess að reyna að ná hagstæðara verði en kostur kann að vera á í bili. Á s.l. ári urðu báðir þessir aðilar stundum að sæta neyðarsölum af þessum sök- um, þar sem þeir áttu að velja á milli þess að stöðva framleiðsluna eða sæta sílækkandi verði. Eins og kunnugt er, brást vetr- ar- og vorsíldveiði Norðmanna að miklu leyti fyrstu fjóra mánuði þessa árs. Hinn 30. apríl s.l. var lýsisfram- leiðsla Norðmanna um 24 þús. tonn á móti 59 þús. tonnum á sama tíma í fyrra. Talið er, að veiðar Norðmanna á síld og makríl til bræðslu næsta misserið muni hafa úrslitaáhrif á verðlag bollýsis á þessu ári. Ríkir mikil óvissa um hvort tveggja, síldveiðarnar og markaðsverðið á lýsinu. — Framtíðarhorfurnar? — Áætlað hefur verið, að fram- leiðsla á ýmislegum jurta-olíum og kjörnum til fæðu og fóðurs í heiminum muni nema á þessu ári samtals um 21.750 þús. tonn. Jurtaolíur til iðnaðar um 1.250 þús. tonn Dýrafciti: Smjör (fituinnihald) um 4.260 þús. tonn Svínafeiti ....... um 4.260 þús. tonn Tólg ............. um 4.260 þús. tonn Lýsi (allar teg.) .... um 1.180 þús. tonn Samtals 36.960 þús. tonn Er þessi framleiðsla áætluð um 1.360 þús. tonnum meiri en í fyrra. Virðist það vera eðlileg aukning miðað við undanfarin ár, svo að ekki ætti hún að hafa áhrif til lækkunar á lýsisverðinu, enda er verð á lýsi nú lægra mið- að við jurtafeiti og dýrafeiti en venjulega hefur verið. Eins og menn vita, er síldarlýs- ið hert og notað að mestu leyti til framleiðslu á smjörlíki og steikar- feiti. Víða í löndum eru nú miklar birgðir af smjöri og verðið því niðurgreitt af opinberu fé, og stuðlar það að sjálfsögðu að minnkandi eftirspurn og lækkun á smjörlíkisverði. Verðmunur á hertu matarlýsi og síldarlýsi hefur farið minnk- andi s.l. þrjú ár, og víða eru herzluverksmiðjurnar í höndum sama aðila og smjörlíkisverk- smiðjurnar. Framleiðsla á fiskmjöli hefur farið ört vaxandi á undanförnum árum í heiminum. Hjá þeim lönd- um, sem flytja út fiskmjöl, var framleiðslan á s.l. ári talin hafa numið 3.287 þús. tonnum á móti 2.807 þús. tonnum árið 1966. Út- flutningur þessara landa hækkaði úr um 2.300 þús. tonnum 1966 upp í um 2.850 þús. tonn 1967. Áætlað hefur verið, að fram- leiðsla þessara landa muni hækka upp í 3.400 þús. tonn á þessu ári, en jafnframt er þess vænzt, að neyzluþarfir muni aukast meira en framleiðslan. Birgðir í árslok 1967 námu um 850 þús. tonnum og talið af sumum, sem góð skil kunna á þessum málum, að birgð- ir muni verða minni í árslok 1968, en í fyrra. Allt íslenzkt síldarmjölfráfyrra ári er nú selt, og mun meðalverð á því hafa verið um sh. 15/6 á proteineiningu í tonni, eins og fyrr segir. Verð á fiskmjöli var mjög óstöð- ugt á heimsmarkaðinum á þessu ári, þar til komið var fram í maí- mánuð, að það fór hækkandi. Hafa nú verið seld fyrirfram um 20.000 tonn af íslenzku síldar- mjöli, og hefur verðið verið sh. 17 til sh. 18/6 fyrir proteinein- inguna í tonni cif. Hefur þá feng- izt hækkun á síldarmjölinu í sterl- ingspundum frá því í fyrra, sem svarar verðfalli pundsins gagn- vart dollar. Virðist markaðurinn á fiskmjöli, þar með töldu síldar- mjöli, stöðugur síðustu 2—3 vik- urnar. Mun aðalástæðan vera sú, að Perúmenn hafa ákveðið að stöðva veiðar sínar næstu þrjá mánuði og síld- og makrílveiðar Norðmanna hafa brugðizt að verulegu leyti, þótt loðnuveiði hafi verið þar með bezta móti og síld- og makríiveiði aukizt síðustu vikurnar. Horfur eru á, að langt verði að sækja á miðin nú í sumar eins og í fyrra. Þótt verðlag bræðslusíld- arafurðanna, síldarlýsis og síldar- mjöls, sé nú samanlagt enn lakara en í fyrra um þetta leyti, þá er það talsverð bót í máli, að flutn- ingar á bræðslusíld af fjarlægum miðum verða auknar, þar sem síldarverksmiðjur ríkisins hafa leigt tankskip, sem lestar 4300— 4500 tonn í ferð, til flutninganna og skipin, sem önnuðust þá í fyrra, munu verða gerð út áfram í sama skyni. Síðast en ekki sízt er hafinn undirbúningur að því, að unnt verði að salta verulegt magn af síld í veiðiskipunum á fjarlægum miðum. Þannig er leitazt við að stuðla að því, að afli íslenzkra síldveiði- skipa á fjarlægum miðum aukist og hann nýtist betur og verði verðmeiri. Veitir sannarlega ekki af, að reynt sé að hamla á móti afla- bresti, sem nam í fyrra sumar og haust um 40% af því, er aflinn hafði numið árinu áður, og á móti verðfalli afurðanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.