Frjáls verslun - 01.04.1968, Side 14
12
FRJÁLS' VERZLUN
hófst. Þá var sett hafnbann á
Port Harcourt, sem var aðalvið-
skiptaborg íslendinga, og þangað
fóru um 70% af þeirri skreið, sem
seld var héðan til Nígeríu.
Frá olíulindunum í Austur-
Nígeríu komu 550 þús. tunnur
á degi hverjum, þar til framleiðsl-
unni var hætt. í Nígeríu voru
einnig framleidd 1966, svo dæmi
séu nefnd, 263 þúsund tonn af
kakaó, 147 þús. tonn af baðmull,
1067 þús. tonn af jarðhnetum, en
úr þeim fást olíur í smjörlíki og
sápur.
Öll þessi framleiðsla hefur
meira og minna lamazt vegna
átakanna í landinu. Flutninga-
kerfi landsins er í molum, herinn
notar járnbrautir og samgöngu-
leiðir. En linni stríðinu, má ætla,
að ástandið komist fljótt í samt
lag, og framleiðslumöguleikar
landsins eru svo miklir, að fjár-
hagurinn ætti að batna fljótt og
líf fólksins og viðskipti að kom-
ast í eðlilegt horf.
— Eru það vissir þjóðflokkar
eða hópar manna, sem öðrum
fremur neyta skreiðar?
— Ibo-mennirnir í austurhluta
landsins voru helztu viðskipta-
vinir íslendinga. Ófriðurinn í
landinu hófst einmitt út af Ibo-
um, því að þeir töldu, að verið
væri að gera tilraun til að útrýma
þeim. Af þeirra stofni er meiri-
hluti tækniverkamanna í landinu
og meginhluti menntamanna.
Þarna í austurhluta landsins
landsins vildu Ibo-mennirnir stóra
skreið, og af henni höfum við ís-
lendingar mest. í Lagos og vestur-
hlutanum vildi fólk smáskreið.
Hana höfðu Norðmenn.
— Þér hafið þá enn trú á, að
Nígeríumarkaðurinn opnist?
— Ég reikna með, að innflutn-
ur verði leyfður þegar er end-
ir er bundinn á ófriðinn. í
nýafstaðinni Afríkuför ræddi ég
við marga skreiðarinnflytjendur,
og allir töluðu þeir um áframhald-
andi viðskipti jafnskjótt og tök
verða á. Ég gat engan Ibo-mann
hitt, því að samgöngur við Austur-
Nígeríu eru bannaðar. Ég gerði
tilraun til að fá leyfi til að fara til
Calabar, en fékk neikvætt svar.
En ef til vill eru atburðir síðustu
daga í Nígeríu upphaf að enda-
Bragi Eiríksson.
lokunum, hvað ófriðinn í landinu
snertir.
— En hvað um aðra markaði?
— Mjög óverulegt magn hefur
verið selt til annarra Afríkuríkja,
svo sem Kamerún. Til ítalíu hef-
ur og farið nokkurt magn af sér-
verkaðri skreið, og hefur sá kvóti
fyllzt, þegar skreiðarframleiðslan
hefur verið flokkuð. Þessi útflutn-
ingur hefur numið 50—60 millj.
kr. á ári. Vegna erfiðleikanna á
sölu skreiðarbirgða okkar og
minnkandi framleiðslu af þeim
sökum, hafa einstakir framleið-
endur verkað lítið magn skreiðar,
sérstaklega fyrir þennan markað,
sagði Bragi Eiríksson að lokum.
VERÐLÆKKUN FYRIR-
SJÁANLEG Á ÍTALÍU
Þóroddur E. Jónsson.
Þóroddur E. Jónsson, stórkaup-
maður, svaraði einnig spurning-
um blaðsins varðandi skreiðar-
markaðinn.
Markaðsástandið í dag er mjög
slæmt. Aðalkaupandinn, Biafra, í
stríði og öll sund lokuð þangað.
Lítið er selt til annarra hluta Ní-
geríu og til Kamerún. Kaupendur
þar hafa fengið tilboð langt um-
fram kaupgetu, jafnvel með dag-
prísum.
Þróunin undanfarin ár var okk-
ur hagstæð, reglulegar afskipanir
allt árið. Þetta lokaðist í maí 1967,
og sú skreið, sem var þá á leið-
inni til Biafra-svæðisins í Nígeríu,
kom endursend með miklum
kostnaði fyrir sendanda og oft
skemmd.
Horfur í náinni framtíð: Ef
Biafra ekki opnast fyrir skreiðar-
sölu, verður sala til Afríku mjög
lítil. Samkv. síðustu fréttum frá
Biafra (útvarpsfréttir) fer ástand-
ið síversnandi og getur ekki batn-
að, nema Biaframenn semji frið
við stjórnina í Lagos. Fjögur lönd
í Afríku hafa viðurkennt Biafra.
Sala á skreið til ítalíu gæti orð-
ið eins og undanfarin ár, nema
hvað ég held, að verðlækkun sé
fyrirsjáanleg.