Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 15

Frjáls verslun - 01.04.1968, Síða 15
FRJÁLS VERZLUN 13 BREYTTAR NEYZLUVENJUR OG VIÐSKIPTAHÆTTIR VALDA ERFIÐLEIKUM Loítur Bjarnason, stjórnarformaður Félags ísl. botnvörpuskipa- eigenda, varS við beiðni Frjálsrar verzlunar um að svara spurningum um ísfisksölur. Um markaðinn fyrir ísfisk nú og þróun hans að undanförnu sagði Loftur: — Það, sem af er þessu ári, hef- ur ísfiskverð íslenzku togaranna í Bretlandi og V.-Þýzkalandi verið verulega lægra en á síðasta ári og mörg undanfarin ár. Meðal- verð íslenzku togaranna undan- farin ár hefur í þessum löndum verið, sem hér segir: Verðið fyrstu fjóra mánuði þessa árs er reiknað á gamla geng- inu, eða eins og það var 19. nóv. s.l. Hið háa meðalverð í V.-Þýzka- landi 1967 á að töluverðu leyti rætur að rekja til fjögurra eða fimm sala í febrúar og marz, er skipin fengu geysilega hátt verð, aðallega fyrir karfa, enda var þá tvíslegið af b/v Maí heimsmet í andvirði fiskfarma. Er þetta og eina árið, að meðalverð okkar er hærra í V.-Þýzkalandi en Bret- landi. Eins og sjá má af töflunni að ofan, fer ísfiskverð stöðugt hækk- andi á mörkuðunum frá 1962 fram á árið 1967. Síðan kemur veru- legur afturkippur, og gætir hans mjög mikið, það sem af er þessu ári, þrátt fyrir það, að s.l. tvo mánuði hafa margir togarar feng- ið góðan ýsuafla, sem selzt hefur á góðu verði í Bretlandi. Bæði í Englandi og í Þýzka- landi er það höfuðnauðsyn, sér- staklega nú, er við þurfum að keppa við frysta fiskinn, að fisk- urinn sé nýr og vel með farinn. Ef neytandinn fær slæman fisk venst hann af því að neyta ísfisks og snýr sér í auknum mæli að hraðfrysta fiskinum. Orsakir þessa afturkipps, hvað verð snertir, eru margvíslegar, m. a. bær, að afli togara hefur aukizt s.l. ár og það, sem af er þessu ári, og framboðið frá þeirra hendi m. a. þess vegna aukizt. En 'það, sem mestu ræður, eru breytt- ar neyzluvenjur og viðskiptahætt- ir í viðskiptalöndunum. í V.- Þýzkalandi t. d. fer neyzla á ferskum fiski stöðugt minnkandi, en fólk kaupir þess í stað í aukn- liretlana V.-Þýzkaland 1962 kr. 7.45 pr. kg. kr. 7.94 pr. 1963 — 8.49 — 7.71 — 1964 — 9.20 — 8.51 — 1965 — 9.17 — — — 8.63 — 1966 — 9.75 — 9.45 — 1967 — 9.00 — 9.62 — 1968, jan/apr. — 8.53 — 7.98 — SIMCA 1301/1501 Vandaðir Sterkir Glæsilegir CHR YSLER-LIVIBOÐID VÖKIJLL Blf. Hringbraut 121 — Sími 10600 Glerárgötu 26 — Akureyri

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.